Kvartmílan => Almennt Spjall => Topic started by: Nonni on August 07, 2004, 15:38:02

Title: Fjórðu kynslóðar sæti í þriðju kynslóð
Post by: Nonni on August 07, 2004, 15:38:02
Ég var að versla þessi sæti úr 2002 módeli af WS6 Trans AM en þau eiga að fara í 1986 Trans AM.

Kv. Jón H.
Title: Fjórðu kynslóðar sæti í þriðju kynslóð
Post by: Nonni on August 07, 2004, 15:39:23
Humm, sama myndin átti nú ekki að koma tvisvar  :oops: , hér er allavegana hin myndin :)
Title: Fjórðu kynslóðar sæti í þriðju kynslóð
Post by: JHP on August 07, 2004, 15:45:28
Það var rétt svona á að gera þetta en hvernig passa aftursætin  :?:
Title: Fjórðu kynslóðar sæti í þriðju kynslóð
Post by: Nonni on August 07, 2004, 15:49:16
Ég er að bíða eftir að þau komi á klakann.  Skv. mínum heimildum þá eiga þau að passa, en það gæti komi smá bunga í miðjuna þar sem að minn bíll er með eftursætum með skipt bak (mér skilst að það eigi að sjást eitthvað en sé ekki vandamál).

Kv. Jón H.
Title: Fjórðu kynslóðar sæti í þriðju kynslóð
Post by: Binni GTA on August 07, 2004, 19:07:11
Hvað prís var á þessu ?
Title: Fjórðu kynslóðar sæti í þriðju kynslóð
Post by: Nonni on August 07, 2004, 19:21:52
Þau enduðu í $730.  Það er ágætlega sloppið fyrir þetta ný sæti, en fjórðu kynslóðar sæti fara yfirleitt á $600-$800 (ég var búinn að skoða þetta lengi áður en ég fór af stað að bjóða).  

Það voru nokkur pör í gangi þegar ég keypti þessi og flest voru að fara á svipuð verði, en eitt parið var komið yfir þúsund dollara.  Eina skýringin sem mér dettur í hug er að þau hafi verið úr blæjubíl, en þau eru sjaldgæf sjón (og þau passa ekki í þriðju kynslóðina).

Kv. Jón H.
Title: Fjórðu kynslóðar sæti í þriðju kynslóð
Post by: sJaguar on August 07, 2004, 23:43:00
Þetta líkar mér. Ég hef nú ekki mátað mín sæti enn, en ég held að þetta eigi nú alveg að smell passa ég er búin að máta teppið en það passaði mjög vel, þetta var úr 96 camaro tjónabíl sem skemmdist að mér skilst 98. Svo vonast maður til að vera tilbúin með Transann fyrir næsta sumar. Var að panta á Summit Racing fyrir 5000 dollara:)

Trans Am Kveðja Márus Líndal
Title: Fjórðu kynslóðar sæti í þriðju kynslóð
Post by: Nonni on August 08, 2004, 00:00:00
Ég þarf að taka myndir af mínum eftir helgina.  Það er búið að sprauta og hurðir og framendi eru komin á.  Ég geri samt ekki ráð fyrir að ég setji hann á skrá fyrr en næsta sumar.

Kv. Jón H.
Title: Fjórðu kynslóðar sæti í þriðju kynslóð
Post by: Binni GTA on August 08, 2004, 15:01:55
Ok...borga 50 þúsund fyrir sætin,svo hvað ..vsk ? en hvað með toll ?

Hljómar svo helvíti vel...væri gaman að gera þetta !
Title: Fjórðu kynslóðar sæti í þriðju kynslóð
Post by: Nonni on August 08, 2004, 15:32:31
Þetta fer vel yfir hundrað kallinn þegar flutningur og gjöld eru komin á, en er samt minna en hefði kostað að taka þau gömlu í gegn.
Title: Fjórðu kynslóðar sæti í þriðju kynslóð
Post by: Binni GTA on August 08, 2004, 17:04:34
Hvernig er það,Hvað er það mikið mál að skella Digital mælaborði í bíl sem er með Venjulegum Gauges  :?:
Title: Fjórðu kynslóðar sæti í þriðju kynslóð
Post by: Nonni on August 08, 2004, 17:16:45
Nú veit ég ekki.  Það er allt hægt.  Þú ættir að athuga á www.thirdgen.org en mig minnir að þar sé grein um þetta.  Ef ekki þá færð þú örugglega svar á spjallborðunum þeirra (mjög margir þriðju kynslóðar sérfræðingar).

Kv. Jón H.
Title: Fjórðu kynslóðar sæti í þriðju kynslóð
Post by: Binni GTA on August 08, 2004, 17:41:02
Ok....gat ekki séð neitt svona við fyrstu sýn á síðunni,en áttu einhverjar myndir af þínum ?
Title: Fjórðu kynslóðar sæti í þriðju kynslóð
Post by: Nonni on August 08, 2004, 17:56:08
Ég á nokkrar gamlar, og einhverjar af honum í vinnslu.  Læt tvær gamlar fljóta með :)

Kv. Jón H.
Title: Fjórðu kynslóðar sæti í þriðju kynslóð
Post by: Binni GTA on August 08, 2004, 19:58:17
Nice.....ætlarðu að halda litnum........er bara mjög flottur svona + ef hann væri á GTA felgunum  8)
Title: Fjórðu kynslóðar sæti í þriðju kynslóð
Post by: Nonni on August 08, 2004, 20:06:26
Ég held litnum.  Ég er búinn að redda mér 16" orginal felgum (ekki GTA) sem ég hef verið að pólera.  Þær koma helvíti vel út.

Þetta eru samskonar felgur
Title: Fjórðu kynslóðar sæti í þriðju kynslóð
Post by: Nonni on August 08, 2004, 22:15:29
Ég rakst á eftirfarandi link um digitaliska mæla í þriðju kynslóð:

http://www.thirdgen.org/techbb2/showthread.php?s=&threadid=176672

Kv. Jón H.
Title: Fjórðu kynslóðar sæti í þriðju kynslóð
Post by: Binni GTA on August 08, 2004, 23:23:03
Heyrðu já......þessar felgur koma bara helvíti vel út !
Title: Fjórðu kynslóðar sæti í þriðju kynslóð
Post by: Binni GTA on August 08, 2004, 23:23:30
Quote from: "Nonni"
Ég rakst á eftirfarandi link um digitaliska mæla í þriðju kynslóð:

http://www.thirdgen.org/techbb2/showthread.php?s=&threadid=176672

Kv. Jón H.


Takk félagi....kíki á þetta   :wink:
Title: Fjórðu kynslóðar sæti í þriðju kynslóð
Post by: Nonni on September 03, 2004, 20:47:51
Jæja, þá eru sætin komin heim.  Þau eru næstum því eins og ný og líta margfallt betur út en þriðju kynslóðar sæti (með miklu meiri stuðning).  

Það er ekki spurning um að þetta borgar sig frekar en að bólstra gömul sæti uppá nýtt, bæði ódýrara og fæ betri (og flottari) sæti.
Title: Fjórðu kynslóðar sæti í þriðju kynslóð
Post by: Binni GTA on September 04, 2004, 00:12:05
Já ég hef verið að skoða þetta á Ebay,ég mun gera þetta í vetur !
Title: Fjórðu kynslóðar sæti í þriðju kynslóð
Post by: blobb on September 05, 2004, 10:41:34
bara flott sæti  :D