Kvartmílan => Almennt Spjall => Topic started by: kiddi63 on April 28, 2004, 16:02:45

Title: Bílasýning í Keflavík
Post by: kiddi63 on April 28, 2004, 16:02:45
Ég heyrði auglýsingu á Radio Reykjavík þar sem verið er að auglýsa eftir bílum á sýningu sem á að fara halda í Reykjaneshöllinni, (ég heyrði ekki betur).
Var talað um nýja bíla og gamla og sérstaklega gullmola úr bílskúrnum,  ef einhver á eða veit um.
Vildi bara koma þessu á framfæri, kannski veit einhver meira um þetta.
Mér finnst bara gott mál ef það er hægt að nýta þessa stóru rándýru
innanhús-sparkvelli undir eitthvað af Viti, annað en að hlaupa á eftir bolta. (þetta er mín skoðun)
Title: Bílasýning í Keflavík
Post by: firebird400 on April 28, 2004, 18:24:53
getur verið að sýningin hafi verið um seinustu helgi? Það var allavegana sýning á nýjum bílum um helgina, ég átti að mæta með minn samt en nennti ekki að bóna :?
Title: Bílasýning í Keflavík
Post by: kiddi63 on April 28, 2004, 18:33:48
þori ekki að sverja fyrir það en allavega heyrði ég þessa auglýsingu áðan.
Gætu verið mistök hjá R.Reykjav og óvart sent út gamla auglýsingu.
Title: Bílasýning í Keflavík
Post by: firebird400 on April 28, 2004, 22:40:29
Jú þetta passar hjá þér, það er verið að plana aðra sýningu, held að hún verði haldin af félagsmiðstöð hérna.
Title: Bílasýning í Keflavík
Post by: Jakob Jónh on April 29, 2004, 18:10:31
Sælir strákar jú það verður haldinn bílasýning í tengslum við Lífstílsdaginn sem er tengdur við Líkamsræktarstödina Lífstíll í Keflavík(held að hún verði haldinn í júlí)meiri upplýsingar hjá eiganda Lífstíls 893-3820 Pálmi.

Kveðja Jakob.
Title: Bílasýning í Keflavík
Post by: kiddi63 on April 29, 2004, 18:53:58
Veistu hvar hún verður haldin?? Verður þetta í höllinni? Og þá hvernig bílum er verið að falast eftir?
Title: Bílasýning í Keflavík
Post by: Jakob Jónh on April 29, 2004, 23:06:10
Ég er ekki allveg viss hvar hún verður haldin,varðandi bílana sem hann ert að falast eftir þá eru það allir áhugaverðir bílar sem koma til greina.Endilega hafið samband við eigandann ef þið hafið áhuga að sýna bílana ykkar.

kveðja jakob.