Kvartmílan => Almennt Spjall => Topic started by: ymirmir on March 29, 2004, 03:28:00
-
Hérna segið mér eitt... Er bíllinn hans Gústa enn til sölu.. fjólublái camminn?? og vitiði um fleiri 79-81 trans am eða camaro til sölu..er að leita einsog brjálæðingur núna
-
prufaðu bara að hringja í manninn, 8230504
-
ég held að þú náir ekki á hann núna......
-
afhverju ekki?
-
hva af hverju ætti ég ekki að ná í hann??.. er hann utanlands eða svoleiðis? er alveg gríðarlega að pæla í hans bíl.. helvíti flott kerra hjá honum.... Þekkið þið alveg til hans..og ef svo er er þetta ekki fínn gæi og nokk góður bíll? Athugasemdir þegnar með fyrirfram þökkum :wink:
-
Mér skilst á honum að hann vilji fá um 700.000 fyrir þennan bíl :!:
-
þekki manninn mjög vel jú og þetta er fínn bíll, segi ekkert að hann sé neitt fullkominn en... mjög góður samt og búið að vinna helling í honum, nú er bara spurningin hvað þú ert til í að borga því ég veit að hann stendur fast á sínu..
-
en hann er nokkuð góður? eru einhverjir fleiri sambærilegir bílar til sölu núna.... Er alveg útúr kú að leita að bílum.... Var hann ekki einhvern tímann að tala um 590þús stgr? Ég er vel til í þann bíl... endilega segið mér fleiri til sölu ef þið vitið um einhvern
-
jæja, hitti gústa áðan og hann er sko ekki á leið að selja, var að kaupa helling af dóti í hann og sona, efast um að þessi bíll verði nokkuð seldur á næstunni
-
Ég sá í gær fjólubláan TransAm uppí árbæ.. helvíti flottur bíll .. hann var eitthvað á þessu róli 79-81.. .. vitiði eitthvað um þann bíl ? að mínu mati var hann töluvert flottari en bíllinn hans Gústa.. ég renni kannski við og smelli nokkrum myndum af honum á eftir og posta hérna .. :)
-
já ekki gæti það verið að hann sé til sölu...er nefnilega miklu meira fyrir þá bíla en Camaro.... annars er mjög lítið um trans am hér á klakanum, ekki satt? endilega segið mér ef thid vitið um fleiri til sölu...kaup eru pottþétt