Kvartmílan => Almennt Spjall => Topic started by: Nonni on February 24, 2004, 21:39:41

Title: Kerra til bílaflutninga???
Post by: Nonni on February 24, 2004, 21:39:41
Sælir,

Ég þarf að koma mínum Transam í sprautun um eða eftir næstu helgi og var að velta því fyrir mér hvort það væri hægt að fá lánaða/leigða bílaflutningakerru fyrir ekki alltof mikinn pening.  Ég þarf að flytja bíl úr Breiðholti yfir í Mosó og held að þetta væri örugglega ódýrari kostur en að semja við Krók eða Vöku (og vil helst ekki fara með bílinn í spotta).

Látið mig endilega vita ef þið vitið af einhverju,

Kv. Jón H.
Title: Kerra til bílaflutninga???
Post by: 1965 Chevy II on February 24, 2004, 21:55:11
Hringdu í Bjössa 8923450,hann er með pallbíl og tekur 3-4000kr fljótlegt og öruggt.
Title: Kerra til bílaflutninga???
Post by: Nonni on February 24, 2004, 21:58:55
Takk, ég bjalla í hann :)
Title: Kerra til bílaflutninga???
Post by: Kiddi on February 24, 2004, 22:16:57
usss þetta er ljótt að heyra :evil:  :evil:  :lol:
Title: Kerra til bílaflutninga???
Post by: JHP on February 25, 2004, 00:41:01
Quote from: "Trans Am"
Hringdu í Bjössa 8923450,hann er með pallbíl og tekur 3-4000kr fljótlegt og öruggt.
ÖRUGGT!!! Ef Bjössi er að lesa þetta þá er ég enn að bíða eftir að fá frammljósið og grillið borgað sem hann eyðilagði á bimmanum mínum :mrgreen:
Title: Kerra til bílaflutninga???
Post by: 1965 Chevy II on February 25, 2004, 09:21:31
ehhemm...uhh já svo er Krókur mjög góður og meðlimir KK fá 15%afsl og... :oops:  :?  :D
Title: Kerra til bílaflutninga???
Post by: Óskar on February 26, 2004, 19:03:04
Getur líka fengið leigða kerru hjá byko...