Kvartmílan => Almennt Spjall => Topic started by: Jón Bjarni on August 22, 2013, 00:18:21

Title: Loka umferð íslandsmótsins í kvartmílu - skráning
Post by: Jón Bjarni on August 22, 2013, 00:18:21
http://kvartmila.is/is/frett/2013/08/21/loka_umferd_islandsmotsins_i_kvartmilu_31_agust (http://kvartmila.is/is/frett/2013/08/21/loka_umferd_islandsmotsins_i_kvartmilu_31_agust)
Title: Re: Loka umferð íslandsmótsins í kvartmílu - skráning
Post by: Jón Bjarni on August 28, 2013, 22:42:31
Keppendalistinn fyrir helgina er kominn neðst í fréttina!
Title: Re: Loka umferð íslandsmótsins í kvartmílu - skráning
Post by: Kristján Skjóldal on September 01, 2013, 10:21:26
jæja eingar fréttir ? bestu tímar og met og þá hverjir :?:
Title: Re: Loka umferð íslandsmótsins í kvartmílu - skráning
Post by: Jón Bjarni on September 01, 2013, 15:45:27
jæja eingar fréttir ? bestu tímar og met og þá hverjir :?:

það er frétt á forsíðunni eins og venjulega. ....
Title: Re: Loka umferð íslandsmótsins í kvartmílu - skráning
Post by: Kristján Skjóldal on September 01, 2013, 22:48:35
ég sé ekkert um góða tíma eða met og hvað þá hverjir gerðu hvað þar #-o
Title: Re: Loka umferð íslandsmótsins í kvartmílu - skráning
Post by: maggifinn on September 03, 2013, 11:54:11
Trakkið og aðstæður almennt voru ekki beint líklegar til metasláttar.

 En það dúndraði enginn á vegginn og engin olíupanna tæmdist mér vitanlega. Er það vel
Title: Re: Loka umferð íslandsmótsins í kvartmílu - skráning
Post by: Kristján Skjóldal on September 03, 2013, 20:39:12
 =D>
Title: Re: Loka umferð íslandsmótsins í kvartmílu - skráning
Post by: Lindemann on September 03, 2013, 21:47:57
Þetta var frekar skrítinn dagur, dálítið svona einn af þessum dögum þar sem hlutirnir ganga ekki upp...

Allir keppendur sem mættu voru alveg til fyrirmyndar og keyrðu margir flott, en eins og áður kom fram þá voru aðstæður ekki alveg uppa sitt best.
Það var búið að vera rigning um morgunin og kom meðal annars skúr ofaní trackbiteið meðan það var að "þorna". Það er svosem í lagi ef það nær að hitna eitthvað a´eftir en veðrið var bara ekki okkur í hag hvað þetta varðar.

Fljótlega gerði lítilsháttar bilun vart við sig í tímatökubúnaðinum og eftir að við höfðum skipt um tímasellu útí enda í hægri braut töldum við að þetta væri komið í lag, en seinna um daginn kom í ljós að bilunin var annars eðlis og sennilega einhversstaðar útleiðsla í köplum eða tengidósum sem við fundum ekki.


Miðað við þetta allt fór keppnin þó vel fram og vil ég þakka öllum sem að keppninni komu með einum eða öðrum hætti fyrir sinn þátt!