Kvartmílan => Almennt Spjall => Topic started by: Kristján Skjóldal on January 25, 2013, 09:30:53

Title: að keppa næsta sumar
Post by: Kristján Skjóldal on January 25, 2013, 09:30:53
asisport.is/index.php/Ums/Verdlisti
Title: Re: að keppa næsta sumar
Post by: bæzi on January 26, 2013, 00:47:37
asisport.is/index.php/Ums/Verdlisti

25k  usss.......

hræddur um að menn mæti bara á bikarmót og svo æfingar (test n tune) nema þeir al hörðustu kannski  :mrgreen:

kv bæzi
Title: Re: að keppa næsta sumar
Post by: 1965 Chevy II on January 26, 2013, 00:50:28
Það er áfram 15.000kr eins og verið hefur, hitt eru gjöld keppnishaldara sem sagt óbreytt staða.
Title: Re: að keppa næsta sumar
Post by: Kristján Stefánsson on January 26, 2013, 01:57:09
Átti þetta ísí gjald ekki að vera úr sögunni við stofnun þessa sérsambands ?
Title: Re: að keppa næsta sumar
Post by: 1965 Chevy II on January 26, 2013, 02:19:00
Nei ekki við stofnun en það er aldrei að vita hvað gerist á næstu árum.
Title: Re: að keppa næsta sumar
Post by: Kristján Skjóldal on January 26, 2013, 11:26:40
nú eru fullt af gjöldum þarna sem virðast vera til sem maður hefur ekki séð áður og spyr ég hver borgar þaug og eins með ný smíði hver borgar hver skoðar og hvenar?
Keppnisskírteini   15000
Dagsskírteini – gildir aðeins eina keppni   5000
Nýliðaskírteini (aldrei keppt áður)   2500
Staðfesting keppnisskírteinis pr.skírteini   5000
Homologation form F.I.A.   10000
Vörugjaldsúttekt/niðurfelling gjalda   15000
Svæðisskoðunarheimild   150000
Brautarúttekt v. reglugerðar   35000
Önnur skírteini og form   2000
Aðalskoðun ökutækis v. nýsmíði   20000
Sérvalið keppnisnúmer   100
Title: Re: að keppa næsta sumar
Post by: 1965 Chevy II on January 26, 2013, 11:41:41
Þrándur ætti að geta svarað því, hringdu bara í hann.

Framkvæmdastjóri   Þrándur Arnþórsson   514 4280   GSM 821-3919
Lárus Blöndal   Formaður
Guðbergur Reynisson   Varaformaður
Ólafur Guðmundsson   Gjaldkeri
Björgvin Ólafsson   Ritari
Ari Jóhannsson   
Tryggvi M. Þórðarson   
Ragnar Róbertsson   
Gunnar Hjálmarsson   
.

Title: Re: að keppa næsta sumar
Post by: Kristján Skjóldal on January 26, 2013, 15:50:38
ok takk en hafið þið hjá kk þuft að borga þessi gjöld td útaf svæði tekið út braut og svoleiðis??
Title: Re: að keppa næsta sumar
Post by: SMJ on January 26, 2013, 17:09:38
Átti þetta ísí gjald ekki að vera úr sögunni við stofnun þessa sérsambands ?

Þetta ÍSÍ gjald er algjörlega fáránlegt! Það er nóg dýrt að halda við keppnistækjum eins og gengið og verðlag er í dag og er hreint ótrúlegt að forráðamenn klúbba skuli ekki harðmótmæla þessu gjaldi.
Svona aukakostnaður gerir ekkert annað en að snarfækka keppendum í mótorsporti á Íslandi, og megum við alls ekki við því.
Ég vona að menn sjái að sér og fái þetta gjald niðurfellt, þetta á ekki að vera einstaklingsbundið, heldur klúbbatengt.
Title: Re: að keppa næsta sumar
Post by: Hr.Cummins on January 26, 2013, 18:06:23

Ég er alveg til í að borga þetta 15.000kr gjald, núna erum við viðurkenndir íþróttamenn í þessari grein...

Gerir það okkur ekki kleift að sækja styrki til byggingar íþróttavalla og fleira svona sem að mætti kannski segja að væri í lagi að rukka inn gjald á ??

Ef að allir guggna og borga ekki gjaldið geta þessir bjánar eflaust fyrrað sig frá því með því að segja að tölur sýni of litla þáttöku / fá-a íþróttamenn, samkvæmt þeirra talningu sem að er auðvitað "borgandi" meðlimir....
Title: Re: að keppa næsta sumar
Post by: 1965 Chevy II on January 26, 2013, 19:17:22
ok takk en hafið þið hjá kk þuft að borga þessi gjöld td útaf svæði tekið út braut og svoleiðis??
Já.
Title: Re: að keppa næsta sumar
Post by: SMJ on January 26, 2013, 19:28:41
Átti þetta ísí gjald ekki að vera úr sögunni við stofnun þessa sérsambands ?

Þetta ÍSÍ gjald er algjörlega fáránlegt! Það er nóg dýrt að halda við keppnistækjum eins og gengið og verðlag er í dag og er hreint ótrúlegt að forráðamenn klúbba skuli ekki harðmótmæla þessu gjaldi.
Svona aukakostnaður gerir ekkert annað en að snarfækka keppendum í mótorsporti á Íslandi, og megum við alls ekki við því.
Ég vona að menn sjái að sér og fái þetta gjald niðurfellt, þetta á ekki að vera einstaklingsbundið, heldur klúbbatengt.

Ég er alveg til í að borga þetta 15.000kr gjald, núna erum við viðurkenndir íþróttamenn í þessari grein...

Já vonandi, en ekki eru knattspyrnuiðkendur að borga ÍSÍ gjald hver og einn? Einungis félagið.

Gerir það okkur ekki kleift að sækja styrki til byggingar íþróttavalla og fleira svona sem að mætti kannski segja að væri í lagi að rukka inn gjald á ??

Ef að allir guggna og borga ekki gjaldið geta þessir bjánar eflaust fyrrað sig frá því með því að segja að tölur sýni of litla þáttöku / fá-a íþróttamenn, samkvæmt þeirra talningu sem að er auðvitað "borgandi" meðlimir....

Hættan er sú að þeir sem hafa áhuga á mótorsporti, koma ekki. Hverjir græða á því? Víða erlendis er mun hærri þátttaka en hér hjá okkur, við ættum alveg að geta fjölgað þeim sem vilja stunda mótorsport hér á landi, en ekki ef ÍSÍ er bara að hugsa um að rukka inn gjöld og þar með hækka enn frekar útgjöld keppenda. Varla er það stefna ÍSÍ?
Title: Re: að keppa næsta sumar
Post by: Hr.Cummins on January 26, 2013, 23:18:30
Ég veit það ekki, en svona liggur dæmið fyrir mér....

Finnst þetta vera þannig að þeir vilja auðvitað þurfa sem minnst að leggja út í styrkjum og annað, og helst bara rukka inn fyrir öllu sem að þeir leggja út...
Title: Re: að keppa næsta sumar
Post by: fordfjarkinn on January 27, 2013, 21:50:23
Summir halda auðsjáanlega að þetta kosti ekki neitt í útlöndum. Gaman væri ef einhver tæki samann hvað það kostar að mæta á svona æfingar og mót í útlandinu. Já og ég vildi líka að allt þetta bras væri allt frítt.