Kvartmílan => Bílarnir og Græjurnar => Topic started by: JónBragi on June 27, 2012, 22:38:35
-
Chevrolet S10 Pickup
1992
402.000
LS1 V8
T56 gírkassi
Þessi bíll er innfluttur árið 2008 en hann kemst í mínar hendur í ágúst 2010, þá var hann himinhár, allur blár að innan hann var eins og bárujárn á hliðunum og með vægast sagt lélegt lakk.
(http://img801.imageshack.us/img801/7241/pallbill.jpg)
Ég tók hann aðeins í gegn strax, massaði og breytti innréttingunni aðeins þar sem ég þoldi ekki bláu innréttinguna. Í lok september set ég bílinn í geymslu, ég var búinn að ákveða að setja eitthvað annað í húddið á honum og fyrst ætlaði ég bara að finna mér einhvern 350 en sem betur fer hugsaði ég mig aðeins um og ákvað að finna LS1.
(http://a6.sphotos.ak.fbcdn.net/hphotos-ak-snc6/180331_1775755324149_1968111_n.jpg)
Veturinn leið og ég setti bílinn á númer í lok apríl 2011 en gat ekki beðið lengur og tók hann af númerum í lok maí og byrjaði að rífa og panta.
Þar sem að ég gæti sennilega skrifað heila bók um það sem ég gerði í þessum bíl þá ætla ég að fara í gegnum veturinn 2011/2012 í fljótu bragði.
Ég reif rafkerfið af mótornum þegar ég fékk hann og dundaði mér í því að slíta úr því það sem ég ætlaði ekki að nota.
(http://a7.sphotos.ak.fbcdn.net/hphotos-ak-snc6/197889_1826181824780_5894881_n.jpg)
Þá var að byrja að leita að gírkassa þar sem að sjálfskipting kom ekki til greina, ég var svo heppinn að Kiddi á kvartmíluspjallinu átti til T56 sem var aftan á LT1 þannig að ég þurfti að setja annað input shaft, kúplingshús, fremti plötu, 1-4 gír vegna þess að input shaft er 4 gír og það eru önnur hlutföll sem að kom ekki að sök þar sem að 4 gírinn var brotinn.
Það flotta við hann var líka að ég fékk hann í fötu:
(http://a3.sphotos.ak.fbcdn.net/hphotos-ak-ash4/421299_3152965033531_1789075990_n.jpg)
Ég keypti líka syncro sett og legusett, síðan setti ég kassann saman sjálfur og hann virkar svona glimrandi vel.
(http://a4.sphotos.ak.fbcdn.net/hphotos-ak-ash4/314870_2368246176050_1543213964_n.jpg)
Ég sleit 4,3 V6 og 700R4 upp úr honum, mátaði LS1 ofaní, notaði slípirokk og suðuvél, sat í herberginu mínu flæktur í vírum, gekk aðeins frá í vélasal, setti í gang í fyrsta skipti, gekk meira frá, keyrði í fyrsta skipti, smíðaði púst, setti veltibúr í hann, lækkaði hann og svo vantar mjöög mikið af verkefnum inn í þetta.
(http://a8.sphotos.ak.fbcdn.net/hphotos-ak-ash4/s720x720/484853_3395929667495_1991590032_n.jpg)
Þá var komið að málningarvinnu og Sindri Georgsson bauð sig fram, vill bara taka það fram hér og nú fyrir þá sem að ekki vissu það að Sindri er FAGMAÐUR í öllu sem að hann gerir!
Við vorum tveir í því að gera hann kláran fyrir málningu, hann var bara klossaður þ.e.a.s engir juðarar eða neitt svoleiðis. Ætla svosem ekki að fara í gegnum allt sem að við gerðum en til að þið gerið ykkur grein fyrir því hversu mikil vinna fór í þetta þá voru 320 tímar í undirvinnu og málningu.
Vildi líka taka það fram að í eina skiptið sem að bíllinn fór út úr skúrnum til að hægt væri að gera eitthvað var þegar hann var málaður, annars smíðaði ég allt sjálfur í skúrnum.
Ætla að láta þetta nægja…..
(http://a7.sphotos.ak.fbcdn.net/hphotos-ak-ash4/s720x720/428832_4194312776148_466004449_n.jpg)
(http://a5.sphotos.ak.fbcdn.net/hphotos-ak-ash4/s720x720/318013_4194301415864_1933493083_n.jpg)
(http://a7.sphotos.ak.fbcdn.net/hphotos-ak-ash4/s720x720/428500_4194307536017_679406981_n.jpg)
(http://a2.sphotos.ak.fbcdn.net/hphotos-ak-ash4/s720x720/484469_4194309856075_1875703173_n.jpg)
(http://a8.sphotos.ak.fbcdn.net/hphotos-ak-snc6/s720x720/206121_4194309056055_1233783495_n.jpg)
(http://a3.sphotos.ak.fbcdn.net/hphotos-ak-prn1/s720x720/539495_4194310496091_2133303300_n.jpg)
Þessi frásögn gerir þessu verkefni hjá mér engan vegin skil, en til þess að gefa ykkur smá mynd af því hversu mikið verkefni þetta var þá var svefninn hjá mér 4 tímar á meðaltali á virkum dögum.
Ætla mér að taka þátt í King of the street, bara til þess að taka tíma á hann. En ég geri samt engar gloríur því að ég er ennþá á GM 10 bolta og bara 8 tommu breiðum felgum...
-
Glæsilegt... þarf að skoða hann í persónu við tækifæri :)
-
Það er bara ekki hægt að hætta að dást að þessu hjá þér, þvílíkur bíll, þvílík vinna. Þetta er ótrúlegt. Þú átt allan heiður skilið fyrir þetta, og auðvitað Sindri líka, þið eruð báðir FAGMENN! Þetta er án efa einn af þeim alflottustu á götunni í dag.! Enn og aftur til hamingju með hann. =D>
-
Virkilega vel gert og mjög flottar hugmyndir =D>
-
Svakalega flottur ! Til hamingju með þetta.
-
ótrúlega flottur bíll, sérstaklega ánægður að þú sért með hann beinskiptan!
-
Flottur pickup =D>
Gaman að sjá að menn er farnir að græja til svona 2wd pickup , þeir geta nefnilega komið ótrúlega vel út \:D/
-
Hérna er verið að græja einn S10 fyrir rallý keppnir.
(http://a2.sphotos.ak.fbcdn.net/hphotos-ak-prn1/521533_3922532632349_1498971268_n.jpg)
-
Heltöff bíll hjá þér 8-),sá hann fyrst fyrir norðan á bíladögum og stoppaði til að skoða gripinn,vel gert =D>.eitthvað ætti þetta nú að virka með álrokknum,léttur bíll og léttur mótor. 8-)
-
Þetta er bara glæsilegt \:D/
-
Glæsilegur bíll hjá þér til hamingju með hann
-
Þakka kærlega fyrir öll þessi jákvæðu comment!
Hérna er smá hluti af myndum sem að Emil tók.
(http://farm9.staticflickr.com/8008/7701288894_f5c94f10c2_c.jpg)
(http://farm9.staticflickr.com/8432/7718425238_680c18e003_c.jpg)
(http://farm8.staticflickr.com/7119/7718398938_739c92c989_c.jpg)
-
Glæsilegur bíll, gaman að þessu eftir allan svitann, blóðið og tárin sem hafa væntanlega fallið í þessari uppgerð, ertu búinn að fá tíma á hann ?
Ég fór að hugsa hmmm.. ég kannast eitthvað við þetta combo : stuttur pikki með beinbýttaða V8 og hvítar felgur...... hvar hef ég séð þetta áður,
svo mundi ég það, í bíómyndinni The Driver frá ´78, mynd sem stendur enn fyrir sínu, þar er pickup í svaka bílachase við TransAm, sjá hér :
"The Driver" 1978 Chevrolet C-10 Stepside - chase scene (http://www.youtube.com/watch?v=_nIiroTIEBw#)
-
Já mjög flottur bíll hjá þér Jón Bragi og ekki taka mark á Gunna, hann er alveg orðinn litblindur og sjónlaus. Gunni þessir er rauður með allt öðrum palli og þó ég sé ekki GM maður þá sýnist mér sá rauði vera stærra boddý. Og svo er bíllinn hans Jóns miklu flottari.
-
Himmi minn, þú verður að nota gleraugun til að lesa og sjá rétt, ég talaði aldrei um litinn eða boddýið, aðeins um "stuttur pikki með beinbýttaða V8 og hvítar felgur" og það er rangt hjá þér, þetta er stuttur pikki en þetta er, að ég held, eini pikkupbílaeltingarleikur sem ég hef séð og mjög vel gerður, fyrir utan að byrja sem beinbýttaður og svo "skyndilega" breytist pikkinn í sjálfbýttaðann.
-
Takk fyrir það og þetta er alvöru eltingaleikur þarna, næsta mynd sem ég tek mig til að horfa á verður pottþétt þessi!
En ég fór upp á braut í dag og það gekk bara ekkert upp hjá mér, á best 13,1 á 108,9 mílum en fór best í dag 13,5 á 105 mílum.
Þetta byrjaði skelfilega og ég náði varla neinu trakki, keyrði nokkrar 15 sekúndna ferðir þangað til að ég gafst upp og náði í drasl til að setja á pallinn en hef verið of graður og setti 260 kg á pallinn og það hjálpaði alveg í startinu en endahraðinn var ekki nægur.
En svo er ég náttúrulega ennþá að læra inn á bílinn og brautina, eins og kannski sást í dag......
-
Snilldin ein þessi bíll. =D>
-
Sama hversu oft maður sér hann þá slefar maður alltaf jafn mikið :) Ekkert smá heppnaður bíl hjá þér
-
Sama hversu oft maður sér hann þá slefar maður alltaf jafn mikið :) Ekkert smá heppnaður bíl hjá þér
-
Þessi bíll er svo svalur hjá þér að hann er hrímaður.Til hamingju með tækið :D
-
Töff græja