Kvartmílan => Myndir og video frá viðburðum Kvartmíluklúbbsins => Topic started by: Skúri on May 23, 2012, 10:30:36

Title: Fyrsta sandspyrnukeppni KK ´76 á Hrauni í Ölfussi
Post by: Skúri on May 23, 2012, 10:30:36
Hérna er videó af fyrstu sandspyrnukeppninni sem Kvartmílklúbburinn hélt á Hrauni í Ölfussi ´76.

Þetta er en eitt snilldar videóið frá þeim Finnbjörnsson feðgum  =D>

Fyrsta sandspyrnukeppnin ´76.avi (http://www.youtube.com/watch?v=pAJvF3RPlj4#)
Title: Re: Fyrsta sandspyrnukeppni KK ´76 á Hrauni í Ölfussi
Post by: Harry þór on May 23, 2012, 16:22:56
Snilld, þetta er þá til ennþá mig minnir að Kristján bróðir Dadda hafi tekið þettaog ef ekki þá var það Jón Auðunn Jónsson lögmaður . Ég man eftir að hann gaf KK útgáfu af þessu sem átti náttúrulega að geymast vel. Það hefur aldrei verið kosinn birgðavörður svo þetta bara glatast. En það er gaman að vita af svona fyrum út um allt sem geyma og safna vegna þess að þetta á eftir að verða enn merkilegra stuff.

JAK á æðislegt safn.

Svavar prentari á líka æðislegt safn - öll plakötin og auglýsingarnar.
 
Ingi  á líka flott safn.

Þeir eru nokkrir fleiri sem ég man ekki nöfnin á sem lúra á þvílíkum gögnum.

Einn hringdi í mig úr Grindavík sem er greinilega að gera góða hluti sem vonandi skila sér.

Í þessari keppni var í aðalhlutverki Chevelle 67 396 sem Þórhallur Jósepsson átti og Gunni Jóns og hinn umtalaði Daddi voru búnir að græja. Nema kvöldið fyrir keppni bauðst Gunni til að draga drumbinn til að slétta brautina og steikti kúpplinguna. Þannig að menn voru ekkert spara græjurnar í gamla daga.Eftir þessa keppni átti KK fullan Chevy van fullan af peningum - hann var pakkaður.

mbk harry Þór

Title: Re: Fyrsta sandspyrnukeppni KK ´76 á Hrauni í Ölfussi
Post by: Rampant on May 28, 2012, 03:49:43
Flott!!!  =D>
Gaman að rifja up gamlar mynningar.
Þarna var notuð hátækni við tímatöku. Tvær skeiðklukkur og talstöðvar.