Kvartmílan => Aðstoð => Topic started by: Runner on September 12, 2011, 21:03:35
-
er með 6,0 vortec í 2500 GMC sierru og er að spá í að rífa úr honum hvarfakútana en er hræddur um að hann fari að eyða meira, hefur einhver reynslu eða góð ráð?? :) kv Garðar.
-
Svo að ég deili minni reynslu hérna, eins og ég sagði þér í símann í gær...
Þá tók ég hvarfakútana úr 2500HD pikkanum mínum, þinn er reyndar með LQ4 og minn var með LQ9 en veit ekki hvort að það breytir neinu...
Eftir að ég tók hvarfana úr varð hann frekar máttlaus og eyddi yfir 40l/100km...
Sérð máttleysið hérna á þessu myndbandi:
Chevrolet Silverado 2500HD 6.0 Acceleration (http://www.youtube.com/watch?v=ssXcCVJnbaE#)
Þetta lagaðist svo strax við að setja hvarfana aftur í :!:
Þannig að mitt vote er, slepptu því að taka þá úr ;)
*edit* hélt fyrst að þetta hefði verið vegna þess að ég setti hann á 33" á sama tíma, en það kom svo í ljós að þetta voru hvarfakútarnir...
-
gæi er ekki hægt að leisa þetta með því að setja high flow cat í hann ...? :mrgreen:
-
gæi er ekki hægt að leisa þetta með því að setja high flow cat í hann ...? :mrgreen:
Þeir sem að ég hef ráðfært mig við segja að það sé góð lausn, menn hafa verið að nota MagnaFlow High Flow hvarfakúta..
En það fara samt sem áður misjafnar sögur af því, það er spurning hvort að það er vegna e'h misræmis á LQ4 og LQ9 :P
-
ég ætla að græja mér simulator á skynjarana :) og láta bora þessa kúta.
-
ég ætla að græja mér simulator á skynjarana :) og láta bora þessa kúta.
Þarft þess ekki, ef að þú vilt halda OEM lúkkinu þá græjaru þá úr... en lemur svo innanúr þeim bara með löngu skrúfjárni.... lætur svo glenna aðeins á þeim endana og stingur röri af sömu stærð í gegn... annars kemur frekar hommalegt dolluhljóð :)
og.... svo seturu 5 lítra af ísóprópanol í tankinn fyrir hverja skoðun ;) og passar að hann sé heitur þegar að hann fer inn ;)
-
var samt að skoða þetta, og það virðist bara vera í 2003 og nýrra sem að það er skynjari aftan við kútana...
spurning um að þú skríðir undir hjá þér og checkir á þessu, kannski er þetta munurinn á LQ9 líka.... 4 O2 skynjarar í stað 2 O2 á LQ4 :-s
-
Sæll.
Af hverju viltu taka hvarfakútana i burtu?
-
mér grunar að þeir séu stíflaðir.
-
mér grunar að þeir séu stíflaðir.
Hættu að plata, þér finnst röddin í honum bara ekki nógu steruð :mrgreen:
-
ég er hel sáttur við röddina :) það vantar sko ekki.