Kvartmílan => Aðstoð => Topic started by: motors on May 24, 2011, 13:35:58

Title: Olíusíur.
Post by: motors on May 24, 2011, 13:35:58
Hvar get ég keypt GÓÐA smursíu í 318 cid Chrysler :?:,skilst að smursía og smursía sé ekki það sama þegar kemur að gæðunum,er t.d. sagt að Fram síurnar séu alónýtar er þetta rétt :?:,allar ábendingar vel þegnar. :)
Title: Re: Olíusíur.
Post by: Ramcharger on May 24, 2011, 15:03:32
Hef notað Purolator :idea:
Title: Re: Olíusíur.
Post by: Dragster 350 on May 24, 2011, 22:37:16
Farðu í bílabúðBenna og síaðu þig upp, þeir eiga K og N síur fyrir flesta usa bíla. \:D/
Title: Re: Olíusíur.
Post by: 1965 Chevy II on May 24, 2011, 22:44:58
Mæli með WIX, mér skilst að þær fáist í N1. Sjálfur panta ég þær á ebay.
Title: Re: Olíusíur.
Post by: motors on May 25, 2011, 01:07:26
Takk fyrir þetta strákar,ég skoða þetta nánar. :)
Title: Re: Olíusíur.
Post by: Krissi Haflida on May 27, 2011, 10:30:16
WIX mæli með þeim, fást í paulsen nýbúin að versla svoleiðis þar
Title: Re: Olíusíur.
Post by: Dodge on May 30, 2011, 12:29:26
K&N smursíurnar eru bara fram síur
Title: Re: Olíusíur.
Post by: Kowalski on May 30, 2011, 19:38:19
K&N smursíurnar eru bara fram síur

Uuuu nei?
Title: Re: Olíusíur.
Post by: motors on May 31, 2011, 22:19:29
K&N smursíurnar eru bara fram síur
Nei andsk... er það málið :?:
Title: Re: Olíusíur.
Post by: Dodge on June 01, 2011, 11:32:21
Einhverntíma heirði ég því fleigt að HP serían frá FRAM og K&N smursíurnar væru sama stykkið, en ekki taka því
sem heilögum sannleika, það getur vel verið rugl í mér.
Title: Re: Olíusíur.
Post by: baldur on June 01, 2011, 13:37:20
Samkvæmt þessum eru það Champion sem framleiða K&N, en það gæti hafa breyst í tímans rás.
http://minimopar.knizefamily.net/oilfilters/index.html (http://minimopar.knizefamily.net/oilfilters/index.html)
Title: Re: Olíusíur.
Post by: Kowalski on June 01, 2011, 14:56:05
Champion Laboratories Inc. framleiða K&N síur ásamt Mobil 1, Royal Purple og fl.