Kvartmílan => Aðstoð => Topic started by: Walter on April 12, 2011, 22:09:32

Title: Ford C5 vandamál
Post by: Walter on April 12, 2011, 22:09:32
Skiptingin hjá mér er byrjuð með vesen.

Hann skiptir sér ekkert upp? Hangir bara fastur í fyrsta gír. Er líka lengi að detta í bakkgírinn.

Þetta er Ford Maverick 5.0L með C5 auto.

Hver á höfuðborgarsvæðinu er góður í að laga svona?

Kv. Walter S. 840-2170

(http://i190.photobucket.com/albums/z171/Icepicture/09042011323.jpg)
Title: Re: Ford C5 vandamál
Post by: Bubbi2 on April 12, 2011, 22:51:53
myndi tékka á vagúminu hvort slangansé farinn eða vembran
Title: Re: Ford C5 vandamál
Post by: Walter on April 13, 2011, 11:15:54
já takk, tékkaði á því en vacum er í lagi.

Ég er búinn að heyra í Hafliða Guðjóns og hann ætlar að kíkja á hann. Vonandi bara governor að stríða.

kv. Walter
Title: Re: Ford C5 vandamál
Post by: Walter on April 17, 2011, 23:15:02
Búið að laga. Þetta var vacum membran eftir allt  :)
Title: Re: Ford C5 vandamál
Post by: kallispeed on April 17, 2011, 23:21:02
tala við edda bó hjá skipting í kef , þeir er liðlegir og góðir þar ... :mrgreen:
Title: Re: Ford C5 vandamál
Post by: Maverick70 on April 19, 2011, 09:18:08
þegar að ég átti þennan bíl að þá var C4 skipting í honum ;) og hún er í enþá :)
smá skot, en bara í góðu ;)
Title: Re: Ford C5 vandamál
Post by: Walter on June 14, 2011, 21:33:26
Quote
og hún er í enþá

Já að þekkja þessar Ford skiptingar í sundur er ekkert grín en allavega þá pantaði ég og það er kominn í kaggann nýr C5 gír frá olafsson racing uppgerð og betrumbætt af Einari Gunnlaugs  :mrgreen:

Toppvinna mæli með þeim, allt annað að keyra bílinn enda fékk hann að taka á því aðeins á brautinni á sunnudaginn. Á samt eftir að setja í bílinn alvöru snúningshraðamæli áður en ég fer að beita honum eitthvað nálægt mörkum.

Skiptingin sem ég tók úr var með pönnuáfyllingu (pan fill) merkt E2 á tveim stöðum. Reyndar vantaði kvarðann og hefur víst vantað í langan tíma en það er ekki vandamál með nýrri skiptingu.

Hér er smá um mismuninn á C4/C5 en þetta eru nánast sömu skiptingar en C5 með lock converter.

http://mmerlinn.tripod.com/f/c4notes.htm (http://mmerlinn.tripod.com/f/c4notes.htm)

Snilldar veður á sunnudag á brautinni og flottir bílar á svæðinu. Meira segja 3 stk Maverick mættu sem eru held ég allir 8cyl sem eru ökuhæfir á Íslandi.

(http://i190.photobucket.com/albums/z171/Icepicture/12062011496.jpg)

Svo er ég farinn á honum norður á bíladaga á fimmtudaginn  \:D/

Title: Re: Ford C5 vandamál
Post by: Maverick70 on June 15, 2011, 15:30:50
svo er einn 8cyl maverick í kópavogi ;)
en vantar þér ekki skyggni í bílinn þinn?
Title: Re: Ford C5 vandamál
Post by: Walter on June 15, 2011, 20:50:39
Neinei Heimir ég er svona and-skyggn  :twisted:

Þoli ekki þessi helv. skyggni svo það er bara fínt að þau vantar. Ríf þau yfirleitt úr mínum bílum.