Kvartmílan => Leit að bílum og eigendum þeirra. => Topic started by: Heiðar Broddason on December 12, 2010, 23:49:10
-
Var í kaffi á Fáskrúðsfirði og þá koma bílar til tals eins og oft vill verða og karlinn átti á sínum tíma camaro RS 1969 með númerinu U2888 hvítur á lit er þessi bifreið enn til
kv Heiðar Brodda
-
Hér er ferillinn af honum, en ég á að vísu enga mynd af honum.
EG168
Camaro
124379N 543760
Blár
Eigendaferill
10.12.1982 Sigmar Helgi Gunnarsson Arnarklettur 30
3.10.1982 Anna Björk Baldursdóttir Einiberg 25
11.8.1981 Þorsteinn Einarsson Baðsvellir 25
2.1.1900 Edvin Karl Benediktsson Hvassaleiti 15
1.2.1980 Ólafur Böðvar Þórðarson Foldahraun 37f
2.8.1978 Sigjón Rafn Óskarsson Hlíðargata 32
26.9.1977 Gylfi Már Hilmisson Bandaríkin
Skráningarferill
11.11.1987 Afskráð -
1.1.1900 Nýskráð - Almenn
Númeraferill
29.7.1983 Y10936 Gamlar plötur
24.9.1981 G14137 Gamlar plötur
1.2.1980 U3261 Gamlar plötur
2.8.1978 U2888 Gamlar plötur
26.9.1977 G3443 Gamlar plötur
-
ég man eftir þessum bíl um 1983-4, þegar Sigmar átti hann, þá var bíllinn orðinn mjög lasinn, talsvert ryðgaður og lélegur..
-
Sælir félagar.
þennan Camaro átti ég þarna 1982 (skráður á Önnu mína).
Ég keypti hann í frekar lélegu ástandi,minnir að hann hafi verið með 327 og 3ja-gíra beinaður.
Það var aðeins gert við hann og sölu málaður.man ekki hvert hann fór og hef ekki heyrt af honum fyrr en nú.
Kv.S.A.
-
gott að það sé búið að finna hvaða númer var á þessum bil ég átti gott samtal við sigmar sem er skráður eigandi af þessum bil þessi bill var á reyðarfyrði og honum var stolið fyrir utan skúrinn sem hann var og billin rifinn og sigmar var alveg viss um að hann hefði verið grafinn eftir að þessi góðhjartaði maður hafði tekið allt sem hann vildi nota úr bilnum. allavegana er þessum bil sárt saknað
-
Er ekki þá einhver af ykkur sem gæti útvegað mynd af honum? :)
-
Sælir félagar.
þennan Camaro átti ég þarna 1982 (skráður á Önnu mína).
Ég keypti hann í frekar lélegu ástandi,minnir að hann hafi verið með 327 og 3ja-gíra beinaður.
Það var aðeins gert við hann og sölu málaður.man ekki hvert hann fór og hef ekki heyrt af honum fyrr en nú.
Kv.S.A.
Málaðir þú hann bláann kall ???
-
það er nú alveg möguleiki að ég geti fengið mynd hjá Lilla á fáskrúðsfirði og fengið einhvern til að skanna hana inn eftir að hann seldi hann fór á hann á höfn hélt Lilli hvítur með rauðum strípum
kv Heiðar Brodda
-
Mér segir svo hugur að þessi hafi fyrir 1977 verið í eigu Stefáns Þórs Ragnarssonar sem var nágranni minn þegar ég var gutti.Hann fékk bílinn bláan en málaði seinna grænan og svartan með stuttu "Cowl" húddi.Svarthvít mynd er til af honum hér á spjallinu í bílasölu þræði.Stefán keppti í einni af fyrstu sandspyrnukeppnum KK og vann.Bíllinn var einmitt 327 og 3ja gíra.Eftir að Stefán selur hann man ég eftir honum grænum á Nýbílaveginum og skömmu síðar orðinn hvítur.
-
Sælir félagar.
Ég málaði hann hvítan aftur,það var auðveldara þá þurfti ekki að taka föls ofl.....
Kv.S.A.
-
bílinn var einlitur hvítur þegar sigmar eignaðist hann það hefur líklega verið 1982 og hann var með 327 og 3 gíra beinaður í gólfi þennan bíl kaupir sigmar af einhverjum í vogum á vatnsleisu ég man ekki af hverjum bílinn var keiptur en man allavegana hvar hann átti heima. ég á enga mynd af bílnum en ég skal tekka á því hvort sigmar eigi mynd af gripnum
-
Sælir félagar.
Þetta þassar allt,ég var með þennan bíl í skúrnum hjá mági mínum sem átti heima
í Vogunum á þessum tíma.Ég og Oddur mágur vorum í smá bílabraski þarna,áttum líka
AMC Javelin 69,svo þann fræga R/T Coronet sem Gulli á flúðum á núna,mig minnir að við höfum
selt Gulla hann.(eða kanski Lúlla sem á Superbeeinn í Vogunum).
Kv.S.A.
-
sorry sigmar á ekki neina mynd af gripnum
-
Ekkert að frétta af myndum af gripnum? 8-)
-
Sælir ég verð greinilega að fara í kaffi til Lilla og fá myndina lánaða það er greinilegt eða heyra í karlinum kv Heiðar Brodda