Markaðurinn (Ekki fyrir fyrirtæki) => BÍLAR til sölu. => Topic started by: Benz on November 12, 2010, 23:52:37

Title: Daihatsu Charade XTE Coupé 1982 fornbíll til sölu (SELDUR)
Post by: Benz on November 12, 2010, 23:52:37
Þessi eðalgripur, S2203, er til sölu:

(http://dl.dropbox.com/u/1260886/Daihatsu%20Charade%20til%20s%C3%B6lu/DSC_0518%20%28Medium%29.jpg)

Upplýsingar um bílinn
Gerð:   Daihatsu Charade XTE Coupé  (Body type: G10)
Árgerð:    1982
Ekinn:    um 42.500 km frá upphafi
Vélarstærð: 3ja cyl, 1000cc
Gírskipting: 5 gíra beinskiptur
Eldsneytistegund: bensín
Litur:  hvítur
Drif:  framhjóladrif
Dekk / felgur: sumardekk / original Daihatsu stálfelgur
Útbúnaður:
Snúningshraðamælir; útvarp & geislaspilari (upprunalegt tæki fylgir með líka)
Ástandslýsing:  
Bíllinn er í toppstandi, lakk mjög gott en 1 „Kringludæld“ er þó á einni hurðinni.  Vél og kram í toppstandi en 1 öxulhosa er farin að gefa sig og þarf að skoða það mál betur.
Innréttingin er ágæt en ber merki þess að hún er barns síns tíma og er því meira slitinn en boddýið sjálft.

Aðrar upplýsingar:
Bíllinn er með sitt upprunalega bílnúmer S2203.
Fyrri eigandi eignaðist bílinn 2005, þá ekinn 38.000, og gerði hann upp. Hægt er að skoða nokkrar myndir um uppgerðina á þessum síðum:
Cardomain.com (http://www.cardomain.com/ride/2372788/1982-daihatsu-charade-reykjavk-is) og á Spjallþræði Fornbílaklúbbs Íslands (http://www.jsl210.com/spjall/viewtopic.php?t=313&postdays=0&postorder=asc&highlight=daihatsu+charade&start=30)

Kramlega var allt í bremsum endurnýjað, ný rör, dælur teknar upp, nýjar dælur að aftan, nýir diskar að framan og nýjir klossar og borðar. Nýir gormar og demparar að aftan, nýir demparar að framan.  Þá var allt rafkerfi tekið í gegn o.s.frv. og bíllinn sprautaður

Söluverð
Ásett verð:  kr. 590.000,-.
Skipti eða engin skipti:
Er ekki að leita að öðrum bíl svo að skipti koma vart til greina nema um auðseljanlega vöru sé að ræða.
Áhvílandi:
Ekkert!

Nafn og númer seljanda
Til sýnis og sölu hjá Bílalind  Funahöfða 1 Rvk.
Sími: 580 8900
Netfang: bilalind(hjá)bilalind.is

Fleiri myndir:
(http://dl.dropbox.com/u/1260886/Daihatsu%20Charade%20til%20s%C3%B6lu/DSC_0519-small%20%28Medium%29.jpg)

(http://dl.dropbox.com/u/1260886/Daihatsu%20Charade%20til%20s%C3%B6lu/DSC_0521%20%28Medium%29.jpg)

Km staðan við gerð auglýsingarinnar:
(http://dl.dropbox.com/u/1260886/Daihatsu%20Charade%20til%20s%C3%B6lu/DSC_0588%20%28Medium%29.jpg)

Frekar döpur mynd af innréttingunni:
(http://dl.dropbox.com/u/1260886/Daihatsu%20Charade%20til%20s%C3%B6lu/DSC_0590%20%28Small%29.jpg)

Skemmdin í mælaborðinu:
(http://dl.dropbox.com/u/1260886/Daihatsu%20Charade%20til%20s%C3%B6lu/DSC_0589%20%28Small%29.jpg)

Öxulhosan sem er að gefa sig:
(http://dl.dropbox.com/u/1260886/Daihatsu%20Charade%20til%20s%C3%B6lu/DSC_0366%20%28Small%29.jpg)
Title: Re: Daihatsu Charade XTE Coupé 1982 fornbíll til sölu
Post by: Benz on November 14, 2010, 01:18:36
Svo að ég svari nú þeim fyrirspurnum sem ég hef fengið í einu innleggi hérna:
- Bíllinn er staðsettur í Garðabæ.  Hann stendur ekki úti (er bílsskúrsbíll) og því ekki hægt að skoða hann án þess að tala við mig fyrst.
- Ástæðan fyrir því af hverju hann er svona lítið ekinn er að fyrsti eigandi, eldri kona, átti heima á Vopnafirði og ók mjög lítið
- Bíllinn er algjörlega óryðgaður þar sem hann var tekinn alfarið í gegn af eiganda nr. 2.  Hann er í raun eins og nýr hvað kramið varðar enda ekinn undir 5000 km. frá því að hann var endurgerður.
Title: Re: Daihatsu Charade XTE Coupé 1982 fornbíll til sölu
Post by: Benz on November 14, 2010, 23:31:21
Búinn að fá fullt af fyrirspurnum enda gripurinn auglýstur á öllum helstu bílaspjöllum landsins - og auðvitað barnalandi.

Merkilegt hvað marga langar til þess að kaupa gripinn og nota hann núna í kreppunni  :shock:  :shock:  :shock:

Ég hef sjálfur sparað hann frá því að ég fékk hann og hefur bíllinn aðeins einu sinni verið úti í beru lofti að nóttu til (í sólinni í júlí  8) ).

Hér má sjá vélarrýmið, andsk... smekklega gert hjá Gunnari Erni sem gerði hann upp:
(http://dl.dropbox.com/u/1260886/Daihatsu%20Charade%20til%20s%C3%B6lu/DSC_0604%20%28Small%29.jpg)
Title: Re: Daihatsu Charade XTE Coupé 1982 fornbíll til sölu
Post by: Benz on November 17, 2010, 01:12:46
Smá myndband af gripnum  ;)
http://www.youtube.com/v/0jH8SbFkInI?fs=1&hl=en_US
Title: Re: Daihatsu Charade XTE Coupé 1982 fornbíll til sölu
Post by: Benz on November 17, 2010, 22:06:14
TTT
Title: Re: Daihatsu Charade XTE Coupé 1982 fornbíll til sölu
Post by: Benz on November 18, 2010, 23:57:17
TTT
Title: Re: Daihatsu Charade XTE Coupé 1982 fornbíll til sölu
Post by: Benz on November 21, 2010, 23:37:21
TTT
Title: Re: Daihatsu Charade XTE Coupé 1982 fornbíll til sölu
Post by: Benz on November 24, 2010, 09:42:32
TTTTtttttttttt
Title: Re: Daihatsu Charade XTE Coupé 1982 fornbíll til sölu
Post by: Benz on November 26, 2010, 01:20:30
Er opinn fyrir tilboðum í gripinn - en ekki áhuga á því að setja hann upp í eitthvað dýrara þar sem ég er ekki að leita mér að fleiri bílum.
Title: Re: Daihatsu Charade XTE Coupé 1982 fornbíll til sölu
Post by: Benz on November 30, 2010, 13:51:22
Til sýnis og sölu hjá Bílalind  Funahöfða 1 Rvk.
Sími: 580 8900
Netfang: bilalind(hjá)bilalind.is