Kvartmílan => Keppnishald / Úrslit og Reglur => Topic started by: Bílaklúbbur Akureyrar on September 16, 2010, 22:37:52
-
Við höfum nú opnað fyrir aukaskráningu í lokaumferð Íslandsmótsins í sandspyrnu en keppnin fer fram á Hrauni við Ölfus laugardaginn 25. september. Þær skráningar sem komnar voru standa óbreyttar nema keppendur hafi samband og taki annað fram. Skráning fer annars fram í tölvupósti á netfanginu ba@ba.is og þessari aukaskráningu lýkur mánudaginn 20. september kl. 23:59.-
Það sem koma þarf fram við skráningu er: Nafn ökumanns og kennitala, gerð ökutækis og flokkur ásamt upplýsingum um akstursíþróttaklúbb.
Keppnisgjald er krónur 5. þúsund og skal greiðast inn á reikning 565-26-580 kt. 660280-0149. Upplýsingar um reglur Íslandsmótsins í sandspyrnu má finna hér: http://ba.is/page/keppnisreglur
F.h. Spyrnudeildar BA
Garðar Garðarsson
gg@ba.is