Kvartmílan => Keppnishald / Úrslit og Reglur => Topic started by: Jón Bjarni on September 11, 2010, 02:07:41
-
Sælir Félagar Góðir
Bílabúð benna og Skeljungur bjóða upp á áttundu keppni sumarsins.
Þetta er 1/8 míla, hún fer fram Laugardaginn 18. september
ATH þetta eru þeir flokkar sem verða keyrðir í þessari keppni
Þetta er bikarkeppni og bílar verða að vera götuskráðir og með almenna skoðun,
einnig þá verða dekk að vera DOT merkt,
nema FWD bílar þeir mega vera á hvaða dekkjum sem er.
ATH það eru ekki neinar takmarkanir á bensíni í þessari keppni.
ATH, allir flokkar verða keyrðir á pro tree!!
Bílaflokkar.
Bílar með drifi á einum öxli keppa í 4 flokkum:
4 sílendra
6 sílendra
8+ sílendra yngra en 1985
8+ sílendra eldra en 1985
Fjórhóladrifsbílar keppa í einum flokk:
4x4 flokkur
Jeppar, trukkar og pikkupar keppa í einum flokk:
Jeppaflokkur
OF – Opinn flokkur keyrður Heads up, ræst á jöfnu – allt leyft
Hjól
Racerar:
799 cc og minna óbreytt
799 cc og minna breytt
800 cc og stærra óbreytt
800 cc og stærra breytt
Hippar
Keppnisfyrirkomulag.
Keppt verður eftir fyrirkomulagi sem kallast Second chance. Þetta kerfi er þannig upp sett að þú þarft að tapa tvisvar til að detta út.
Skýringarmynd er hér:
http://www.kvartmila.is/smf/index.php?topic=51796.0
ATH: það er einungis keyrt 1 run í hverri umferð, Þannig að ef þú klikkar í ferðinni þá getur það kostað þig sigurinn.
Keyrt verður á protree.
Dagskrá:
Dagskrá:
9:30 – 11:00 Mæting Keppanda
11:00 Pittur lokar
11:15 Fundur með keppendum
11:25 – 11:55 Æfingarferðir
11:55 Tímatökur hefjast
13:20 Tímatökum lýkur
13:20 – 13:45 Hádegishlé
13:45 Keppendur Mættir við sín tæki
14:00 Keppni Hefst
16:25 Keppni lýkur – Kærufrestur Hefst
16:55 Kærufrestur liðinn
17:00 Verðlaunaafhenting á pallinum
Til að taka þátt þarftu að hafa:
Gilt ökuskírteni
Skoðaðan bíl
Hjálm
Vera meðlimur Akstursíþróttarklúbb innan ÍSÍ
Við mælum svo endilega með því að menn hafi samband við sín tryggingarfélög og fá að vita hvort þeir þurfa viðauka eða ekki
Þetta er á ábyrgð eiganda og keppanda
Ef þú hefur áhuga á að taka þátt vinsamlegast sendu þá eftirfarandi upplýsingar á netfangið:
jonbjarni@kvartmila.is
Nafn
Kennitala
Keppnistæki
Bílnúmer
Flokkur
GSM
Ég tek einnig á móti skráningum í einkapósti á kvartmíluspjallinu.
Nánari upplýsingar í síma 8473217, Jón Bjarni
SKRÁNINGU LÝKUR fimmtudagskvöldið 16. ágúst Á SLAGINU 23:59
þegar skráningu er lokið verður EKKI hægt að skipta um flokk nema að flokkurinn innihaldi aðeins einn keppanda.
Þeir sem eru ekki vissir í hvaða flokk þeir ætla að skrá sig í:
Það er leyfilegt að skrá sig án þess að tilgreina flokk.
Þá getur fólk mætt á æfinguna og ákveðið hvaða flokk það á heima í.
Það fær samt einginn að keyra á þessair æfingu nema að vera búinn að skrá sig og borga keppnisgjöld
Dagskrá keppninar verður birt síðar
Mæting er á milli 9:30 og 11.
Á slaginu 11 verður hliðinu lokað og þeir sem mæta eftir það verða ekki með.
ATH til keppanda.
Þeir sem mæta á keppnisæfinguna þurfa ekki að fylla út skráningarblaðið aftur.
ALLIR KEPPENDUR EIGA AÐ KOMA VIÐ Í FÉLAGSHEIMILINU OG FÁ DAGSKRÁ Á LAUGARDEGINUM ÁÐUR EN ÞEIR FARA NIÐUR Í PITT!!!!!!!!!!!
Til að flýta fyrir skráningu þá er gott ef menn geta komið með þetta skjal útfyllt.
http://www.kvartmila.is/smf/index.php?action=dlattach;topic=42742.0;attach=44370
Æfing fyrir keppnina fer fram Fimmtudagskvöldið 16. september
Hún verður keyrð frá 20:00 til 22:00
Keppnisgjöld verða að vera greidd fyrir Kl: 00:00 föstudaginn 20. ágúst
ATH. Þetta er loka frestur á keppnisgjöldum nema eitthvað komi uppá hjá mönnum og þeir geta ómögulega greitt keppnisgjald á réttum tíma.
Enginn fer niðrí pitt fyrr en keppnisgjöld hafa verið greidd
Einnig ætla ég að biðja sem flesta að reyna að millifæra keppnisgjöldin
Reikningsnúmerið er:
#1101-26-111199
Kennitala:
# 660990-1199
Keppnisgjaldið er 5000kr
KOMA MEÐ KVITTUN ÚR HEIMABANKA
Keppendur undir 18 ára aldri þurfa skriflegt leyfi frá foreldrum eða forráðamönnum
Ef það eru einhverjar spurningar þá er ykkur velkomið að hringja í síma 847-3217, Jón Bjarni
-
eru engin stærðar/þyngdartakmörk í jeppaflokk??
-
Vegna slakrar skráningar í mílunna er opið fyrir skráningar til 22:00 í kvöld, föstudaginn 17.09.10.
ég hvet sem flesta til að skrá sig til að við getum lokað sumrinu með stæl!
-
Vegna slakrar skráningar í mílunna er opið fyrir skráningar til 22:00 í kvöld, föstudaginn 17.09.10.
ég hvet sem flesta til að skrá sig til að við getum lokað sumrinu með stæl!
Ég er búin að bætast við :)
-
keppendalistinn
Flokkur Nafn Tæki Merking
4cyl Sigurjón M. Jóhannsson Ford Sierra RS Cosworth 4/5
4cyl Ólafur Rúnar Þórhallsson Opel OPC 4/6
4X4 Gunnar Yngvi Rúnarsson Subaru Impreza GT WRX X/9
8cyl Jón Borgar Loftsson Mazda RX8 LSX 8/9
8cyl Kjartan Kjartansson Ford Mustang LX 1986 8/10
8cyl Kjartan Hansson 2005 Mustang GT 8/11
MC Friðrik Daníelsson Pontiac Trans Am MC/1
MC Harry Herlufsen Chevrolet Camaro 1979 MC/9
MC Árni S. Magnússon 68 Camaro MC/10
MC Rúdólf Jóhannsson Pontiac MC/11
OF Stefán Kristjánsson dragster OF/9
OF Leifur Rósenberg Pinto OF/1
OF Árni Már Kjartansson Camaro RS OF/8
OF Ingólfur Arnarsson Konan OF/7
800+ Þórir Hálfdánarson Susuki Hayabusa 2008 H/9
800+ Þórður Hilmarsson Hayabusa H/7
800+ breytt Ólafur F Harðarson Yamaha R1 J/5
-
saelir
vantar Saevar thrastar tharna inna i 8cyl flokk
kv Baezi
-
Fyrir hönd Hulk Racing og KK Racing þökkum við fyrir góðan og skemmtilegan dag á brautinni.Þó gaman hefði verið að geta klárað þá getur alltaf svona olíu slys skeð og ekkert við því að gera.Takk fyrir allir þetta var bara gaman.Kv Árni Már Kjartans
-
Já þetta var bara gaman í dag, gott að ná contact við bílinn ,virkaði bara vonum framar með BBC 632 svona í fyrsta skipti
Takk fyrir matinn í kvöld strákar þetta var snild
kv. Stefán / Kristján
-
Til hamingju með fimm flatar Stebbi. =D>
-
Undirritaður þakkar öllum keppendum fyirir mætinguna í dag.....
...og ennfremur þeim eðalsálum sem hengu með okkur út kvöldið :o)
EKM
P.S
Þið hinir eruð...... (fyllið í þetta sjálfir) :o)
-
Takk fyrir daginn og kvöldið þá sérstaklega,steikin var fín og mjöðurinn líka,ekki laust við að maður hafi verið aðeins ryðgaður í gær :mrgreen:
Verst að hafa ekki náð að klára alla flokkana.