Kvartmílan => Almennt Spjall => Topic started by: Addi on April 25, 2010, 08:14:00

Title: Burnout 2010 starfsfólk
Post by: Addi on April 25, 2010, 08:14:00
Núna styttist í stórsýningu Kvartmíluklúbbsins,
Snigla og BÍKR, Burnout 2010.
Þetta er 35ára afmælissýning hjá KK,
en sýningin verður haldin í Kauptúni í Garðabæ,
helgina 30.apríl - 2.maí.

Nú sem fyrr vantar okkur aðstoð,
þ.e.a.s. okkur vantar starfsfólk á sýninguna.
Þá er verið að tala um fólk í gæslu á gólfi, miðasölu,
og annað tilfallandi.

Við komum til með að keyra þetta á vöktum,
vaktaplanið er ekki alveg komið á hreint.
En okkur vantar sem flesta, sem hafa áhuga
og tíma til.

Tilvalið tækifæri til að kynnast fólki og hafa gaman.


Ef þið hafið áhuga á leggja hönd á plóginn endilega
hafið samband við mig.

Þannig að fram komi nafn, sími og hvenær fólk getur verið á svæðinu.


Fyrir hönd sýningarnefndar KK
Arnar B. Jónsson (Addi)
s. 694 7067
addicamaro@hotmail.com
nú eða bara PM hérna á síðunni.

Vonast til að heyra frá sem flestum :)