Kvartmílan => Alls konar röfl => Topic started by: Blackbird on January 30, 2010, 23:48:57

Title: Fáfræði af minni hálfu
Post by: Blackbird on January 30, 2010, 23:48:57
mér var alltaf kennt að maður veit ekki ef maður spyr ekki, hvað eru menn að meina þegar talað er um 10 bolta hásingar og skiptingar? sömuleiðis 9" ford hásing? hvað er 9tommu og hvað er 10 bolta?
með virðingu og vinsemd Þröstur fáfróði
Title: Re: Fáfræði af minni hálfu
Post by: Belair on January 31, 2010, 00:29:47
10 boltar sem festa lokið
(http://i21.photobucket.com/albums/b299/JBimmolate/10BOLTID-1.jpg)
Title: Re: Fáfræði af minni hálfu
Post by: jeepcj7 on January 31, 2010, 02:22:08
Ekkert eðlilegra en að spyrja. 8-)
Hérna er smá listi yfir hásingar með myndum http://www.coloradok5.com/axleguide.shtml 
Skiptingarnar eru fjölmargar líka helstu nöfnin frá muscle car tímanum eru frá GM td. powerglide sem er eldgömul skipting sem er löngu hætt að smíða en allt til í ennþá og er 2ja þrepa vinsælt í race en ekki annað,350 sem er 3ja þrepa mjög algeng og þokkaleg skipting,400 sem er 3ja þrepa heavy duty dót.Frá Mopar er helst að nefna 904 létt og nett og svo 727 sem er heavy duty báðar 3ja þrepa.Og frá ford er aðallega um að ræða c4 og svo c6 sem er svona heavy duty báðar 3ja þrepa.
Í seinni tíð hafa svo bæst við fjölmargar skiptingar sem eru oft gamla dótið endurbætt td. fleiri gírar,overdrive,meira rafmagn ofl.
Menn þekkja oftast skiptingarna í sundur á pönnunum,boltafjölda og lögun svipað og drifkúlurnar á hásingunum.
Title: Re: Fáfræði af minni hálfu
Post by: Bjarni Ólafs on January 31, 2010, 11:15:12
sniðug síða  8-)
Title: Re: Fáfræði af minni hálfu
Post by: Blackbird on January 31, 2010, 13:01:15
frekar basic uppl á þessari síðu. takk kærlega fyrir þetta