Kvartmílan => Alls konar röfl => Topic started by: gvendur on September 22, 2009, 12:47:29
-
þar sem ég veit að hérna inni eru miklir dellukarlar er þá ekki einhverjir sem geta sagt mér hvernig trooperinn hefur verið að reynast, eru þeir að bila eitthvað óvenju mikið eða?
-
ef enginn svör koma herna profaðu þá torfæruspjallið torfæra.is
-
pabbi er með einn og er mjög ánægður nema að bremsuklossarnir að framan er svipað stórir og á micru og endast ekkert, og svo er komið að því að skipta um glóðarþræði en þeir eru fastir og það er víst eithvað sem hefur stundum komið fyrir á þessum bílum. þeir í umboðinu treystu sér ekki tila að skipta um, voru hræddir um að brjóta þræðina og þurfa að rífa heddið af
-
Þetta er nú ekki alveg rétt hjá þér Valur.
Ég á svona bíl 38" breyttan, bremsurnar eru mjög góðar að mínu mati.
Glóðaþræðir??? Glóðakerti getur hinsvegar verið bölvað bras að skipta um, kertin vilja festast í útaf sóti, Að umboðið vilji ekki eða treysti sér ekki í málið er bara bull, pabbi þinn hefur bara ekki tímt né viljað taka áhættuna, frekar en ég :D
Trooper er að mér finnst bara ágætis bíll. Ekkert síðri en Landcruser :D
-
Þessir bílar hafa ekki komið vel út og eru mjög margir gallar sem fylgja þeim.
-
Þessir bílar hafa ekki komið vel út og eru mjög margir gallar sem fylgja þeim.
Þetta er rétt þetta eru ekki neinir gæða gripir og hafa frekar slæmt orð á sér fyrir frekar döpur gæði.
Boddýin eru að vísu nokkuð vel smíðuð en alskonar kram vesin hefur verið viðloðandi þessa bíla enda eru þeir ekki að ganga á neinar stórar upphæðir í við sölu.
-
þeyr treystu sér ekki í að skipta um og lofa að það yrði ekkert mál, þeir voru allveg tilbúnir í að skipta um og hugsanlega rukka svo fúlgu.
en þettað eru mjög fínir bílar pabbi er allavega ekkert að fara að losa sig við sinn, og sjálfur hef ég pælt í að fá mér svona vegna góðrar reynslu hjá föður mínum