Kvartmílan => Alls konar röfl => Topic started by: Helgi on July 01, 2009, 22:22:07
-
Ég er með smá spurningu sem einhver ykkar veit alveg örugglega varðandi gömlu skráningarnúmerin (“steðjanúmerin”). Ef maður er með svoleiðis númer liggjandi inni á skoðunarstöð til lengri tíma, þ.e bíll skráður úr umferð, og lendir í því að þeim sé hent. Er það ekki alveg örugg að þrátt fyrir að hinum eignilegu númeraplötunum hafi verið hent tilheyrir þá ekki samt viðkomandi “gamla skráningarnúmer” samt áfram bílnum þangað til hann er hreinlega skráður ónýtur? Þ.e. það verður örugglega ekki laust til úthlutunar á aðra bíla sem mega bera svoleiðis númer?
kv.
Helgi
-
Þetta er rétt skilið hjá þér, þú átt þetta númer þar til bifreiðin er afskráð ónýt.
kv
Björgvin
-
Sælir,
Ég er ekki viss um að þetta gildi um bíla sem ekki eru skráðir/orðnir fornbílar, því að þeir eiga að fá nýju númeraplöturnar við endurskráningu sé búið að eyðileggja gömlu númerin. Þegar að bíllinn er komin á nýju númerin, er þá ekki það gamla laust til úthlutunar sem fornbílanúmer eða einkanúmer?
Kv. Kristján
-
u nei held ekki , það þarf leyfi síðasta eiganda númer þarf til úthlutunar sem fornbílanúmer eða einkanúmer
-
Þegar ég fékk fornbílanúmerið X-1974 á Ford Capri þurfti ég að afskrá þann bíl sem bar það síðast, það var í kring um 1985. Ég hringdi í eigandann og hann gaf leyfi á það.