Kvartmílan => Alls konar röfl => Topic started by: Valli Djöfull on May 05, 2009, 16:34:58

Title: Ökugerði af teikniborðinu?
Post by: Valli Djöfull on May 05, 2009, 16:34:58
http://www.ruv.is/heim/frettir/frett/store64/item263694/ (http://www.ruv.is/heim/frettir/frett/store64/item263694/)

Hjálpardekk leyfð við ökuþjálfun?

Samgönguráðuneytið íhugar að leyfa notkun svokallaðra skrikbíla (e.skidcar) við þjálfun ökumanna. Bílarnir eru með fjögur hjálpardekk sem gera ökumanninum kleift að æfa sig við erfiðar aðstæður þegar bílinn skrikar til í kröppum beygjum.

Fram kemur að mun ódýrara sé að þjálfa ökumenn með skrikbílum heldur en að útbúar sérstök þjálfunarsvæði. Samgönguráðuneytið biður þá sem hafa athugasemdir við þetta fyrirkomulag að koma þeim á framfæri fyrir hádegi föstudagsins 8. maí. Þá er einnig lagt til að ekki megi nota sjálfskipt ökutæki við próftöku til ákveðinna aukinna ökuréttinda.

(http://www.ruv.is/servlet/file/263695_258_preview.jpg?ITEM_ENT_ID=263695)
Title: Re: Ökugerði af teikniborðinu?
Post by: baldur on May 05, 2009, 18:05:13
Það þarf samt að hafa svæði til þess að aka þessu drasli, og þetta hegðar sér ekkert eins og alvöru bíll í alvöru hálku...
Title: Re: Ökugerði af teikniborðinu?
Post by: Dodge on May 05, 2009, 18:30:44
það er verið að henda þessum fákum útum allan heim... við förum andskotann ekki að taka þetta upp núna
Title: Re: Ökugerði af teikniborðinu?
Post by: Stefán Hansen Daðason on May 05, 2009, 18:42:06
Hvernig væri bara að gera eins og Finnarnir, braut með úðurum og undirlagið verður frekar sleipt?