Kvartmílan => Almennt Spjall => Topic started by: grease monkey on April 28, 2009, 16:42:35
-
Mig vantar álit frá einhverjum sem hefur reynslu af DODGE DAKOTA QUADCAB 4.7 4WD hvernig þessir bílar eru að virka ,bíllinn sem ég er að spá í er árgerð 2000
Ég er að hugsa um að nota bílinn í sleðasportið og kem til með að draga tveggja sleða kerru sem er ca 750-800 kg með 2 sleðum
Hvernig hafa þessi bílar komið út varðandi eyðslu er hún ásættanleg miðað við afl
Ég persónuleg er orðin soldið leiður á jeppum með bátavélar (Disel) sem gera ekkert annað en að eyða 25 á hundraðið og steinsofna í öllum brekkum og skíta á sig í mótvindi
Endilega komið með kalt mat og ekki draga neitt undan =D>
-
Þessar vélar eyða HELLING hvað þá í svona drætti annars veit ég ekkert um bílinn sjálfann
-
Ef hann eyðir ca 25 +-2ltr á langkeyrslunni með kerruna þá er ég bara sáttur,en erum við ekki tala um ca 16-20 innanbæjar og 14-15 á langkeyrslunni
vitiði hvernig þessar vélar hafa verið að koma út í öðrum bílum eins og td cheroke
-
Átti Durango með 4,7 ltr. 31" dekk. Eyðslan var 12-14 ltr. í langkeyrslu og 15-20 ltr. í snatti. Nokkuð góð vinnsla en ekki mikið tog. Prófaði ekki að draga neitt á honum en gæti ímyndað mér að það væri í lagi með 800 kg kerru. Þó er spurning með að lækka drifið ef búið er að stækka dekkin.
-
12-14 ltr er ekki mikið þetta þungan bíl :!:
-
Mín reynsla af Grand Cherokee með sömu vél er 10-14 á þjóðvegi (10 er 90 km/klst í meðvind, 14 er með cruise control á 130 km/klst)
Innanbæjar þá er hann í 16-20, þó yfirleitt nær 20
-
Fór hrínginn í sumar á mínum 2000 Grand Cherokee lim. 4.7 og var eyðslan 11,3. á 94-98 km hraða mest með krúsið á .. Innanbæjar er það 17-21 eftir hvort kynið er að keyra... Átti svona quad cab 2003 með 3,9 magnum og var hann með svona 18-20innanbæjar , mældi aldrei lángkeyrslu. Lángar einnmitt í annan svoleiðis með 4.7.. :)
-
Ég á einn svona Dakota 2000 módelið með 4,7. Snildarvél alveg, togar 400 Nm @3200 RPM og fékk held ég verðlaun þar vestra sem best heppnaðasta 8cyl vélin það árið.
Eyðslan er þetta 16-18 í snattinu, ég hef mælt hann á 14 með fullan bíl af fólki og ca 250kg á pallinum í langkeyrslu.
Segðu annars frá hvaða grútarbrennarar hafa komið svona ílla út hjá þér. Ég er einmitt í hugleiðingum að selja minn eða setja upp í annan nýrri og hef verið að velta því fyrir mér hvort ég eigi ekki bara að halda mig við V8 bensín sem ég er harðánægður með eða prófa svona bátavélar :)
-
Ég var núna síðast með Pajero ´98 2.8 DTI 33" og hann var að eyða ca 25 með sleðakerruna aftaní og ekkert power í brekkurnar , það má auðvitað fara í dýrari Disel jeppa til að fá hestöfl og tog en þegar maður er að leita að jeppa uppá max eina miljón þá er fátt um fína drætti í disel geiranum þannig að þá fer maður auðvitað að skoða V8 jeppana