Kvartmílan => Leit að bílum og eigendum þeirra. => Topic started by: Moli on April 28, 2009, 11:49:13
-
Jæja.. tími til kominn að rífa þetta spjall aðeins upp, hvaða bíll er þessi '68 Charger? Þekkir einhver sögu hans?
-
Þessi mynd er greynilega tekin á Húsavík
Ekki þekki ég sögu þessa bíls en grunar þó að á einhverjum tímapunkti hafi húsvíkingurinn Ólafur Emilsson átt hann. Það er að vísu fyrir mitt mynni sem hann var með svona bíl (er þó ekki alveg viss hvaða árgerð) og hvaðan hann kom og hvert hann fór veit ég ekki
-
Jæja.. tími til kominn að rífa þetta spjall aðeins upp, hvaða bíll er þessi '68 Charger? Þekkir einhver sögu hans?
Ég átti þennan Charger í kringum 1980, var sprautaður orange.
Veit ekki meir, er ekki einn 68 á Selfoossi sem gæti verið þessi bíll.
Kveðjur
Maggi

Sæll nafni, ég veit amk. ekki um neinn '68 Charger á Selfossi. Það er hinsvegar einn '68 Charger sem er orange í dag, það er gamli bíllinn hans Torfa, BM-599, sjá mynd:
(http://www.bilavefur.net/album/albums/uploads/charger_68_70/normal_570.jpg)
(http://www.bilavefur.net/album/albums/uploads/charger_68_70/68_charger_torfi.jpg)
Hérna er önnur mynd af þeim hvíta:
-
veit einhver eigandaferilin á þessum volvo þarna í bakgrunn :mrgreen:
nei flottur svona hvítur, verður gaman að sjá hvað kemur út úr því.. hvað varð um hann
-
Fyrst man ég eftir þessum hvíta á Akureyri 1982; þá í eigu Jóns Grétarssonar (A 6242). Þar var hann sprautaður orange. 318 og sjálfskiptur. Fór svo til Húsabvíkur (Þ 2466) og málaður þar hvítur. Var rifinn um 1987. Gulli Emilss átti lengi, og ef til vill enn hurðirnar af bílnum.
Góðar stundir
Err
-
Neðri myndin af þessum hvíta er líka tekin á Húsavík og átti Grímur Agnarsson hann þarna.Minnir að hann hafi keypt hann af Jóni Víkingssyni og að það hafi orðið "smá" vesen á milli þeirra út af ryði sem að leyndist undir hvíta litnum
-
BLÁR sástu Camaroinn? :wink: :-"
-
BLÁR sástu Camaroinn? :wink: :-"
Já, og hann virkar bara nokkuð heillegur :mrgreen: