Kvartmílan => Hlekkir => Topic started by: KiddiGretarzz on March 27, 2009, 16:26:49

Title: Gamalt brautarvideó
Post by: KiddiGretarzz on March 27, 2009, 16:26:49
Hér höfum við vídeó sem grafið var upp úr kössum á háalofti í heimahúsi. Þetta var tekið á 8mm vél c.a 1979-1980. Jóhann Þorfinnsson var á Dodge Challanger (´72?? og á hann ennþá) en var sjálfur á vélinni þennan dag.
Hafþór Karlsson frændi Jóhanns er eigandi vélarinnar í dag og færir okkur videóið í stafrænu formi.


http://vimeo.com/moogaloop.swf?clip_id=3882228&server=vimeo.com&show_title=1&show_byline=1&show_portrait=0&color=&fullscreen=1
Title: Re: Gamalt brautarvideó
Post by: Moli on March 27, 2009, 16:32:45
Hrikalega gaman að þessu, virkilega gaman fyrir KK að svona gögn séu til einhverstaðar!
Þetta er eitthvað sem verður að varðveita! =D>
Title: Re: Gamalt brautarvideó
Post by: ljotikall on March 27, 2009, 16:39:55
þrusu gæði i þessu lika!! gaman ad sja þetta :D
Title: Re: Gamalt brautarvideó
Post by: KiddiGretarzz on March 27, 2009, 16:41:54
Já, þessi 8mm vél er núna í höndum á einum af okkar fremstu upptökumönnum í hljómlistarbransanum (Haffi Tempo), maður sem kann með græjur að fara. Þetta mun verða varðveitt vel og rækilega. Kvartmíluklúbburinn þyrfti kannski bara að fá þetta í stafrænu formi á disk.
Title: Re: Gamalt brautarvideó
Post by: Moli on March 27, 2009, 17:39:05
Já, þessi 8mm vél er núna í höndum á einum af okkar fremstu upptökumönnum í hljómlistarbransanum (Haffi Tempo), maður sem kann með græjur að fara. Þetta mun verða varðveitt vel og rækilega. Kvartmíluklúbburinn þyrfti kannski bara að fá þetta í stafrænu formi á disk.

Endilega, Kvartmíluklúbburinn er einmitt að vinna í að hanna, og taka saman efni á DVD disk fyrir með ýmsu efni frá KK, nýju sem mjög gömlu. Þessi diskur verður til sölu á sýningunni í vor, og að sjálfsögðu allur ágóði rennur í sjóð KK. Það væri gaman að geta sett þetta video á þann disk. Það væri glimrandi ef ég gæti nálgast þetta einhverstaðar.  :wink:
Title: Re: Gamalt brautarvideó
Post by: edsel on March 27, 2009, 18:47:08
hvernig ameríski dreki er það sem sért í rassinn á í 3:24?
Title: Re: Gamalt brautarvideó
Post by: maggifinn on March 27, 2009, 19:11:30
Hvernig gengur Moli, með spóluna góðu?
Title: Re: Gamalt brautarvideó
Post by: kiddi63 on March 27, 2009, 20:43:01

Hér er eitthvað gamalt sem ég fann á netinu, gaman fyrir þá sem ekki hafa séð þetta áður.

http://video.google.com/videoplay?docid=4407032150355344772


Title: Re: Gamalt brautarvideó
Post by: KiddiGretarzz on March 27, 2009, 21:13:11
hehe það er svo skelfilega 80´s músík á þessu vídeói sem búið er að vera til.
Hugmyndin var samt að láta döbba þetta myndskeið sem ég var að pósta þarna og fá engan annan en BO Hall í verkið. Það yrði bara fyndið  :lol: þó auðvitað er alltaf skemmtilegast að heyra bara í öskrandi mótorum.
Title: Re: Gamalt brautarvideó
Post by: Moli on March 27, 2009, 22:57:58

Hér er eitthvað gamalt sem ég fann á netinu, gaman fyrir þá sem ekki hafa séð þetta áður.

http://video.google.com/videoplay?docid=4407032150355344772




sæll Kiddi, þetta er eitt af þeim videoum sem KK stefnir á að hafa á DVD disk klúbbsins. 8-)

Hvernig gengur Moli, með spóluna góðu?

Gengur fínt, búinn að fá tilboð frá Gagnvirkni ehf. með að færa efni af VHS og yfir á DVD, það verður gert vonandi strax eftir helgi. :wink: Um leið og það er klárt kem ég spólunni á ykkur bræðurna!  8-)