Kvartmílan => Aðstoð => Topic started by: Ómar Firebird on March 08, 2009, 19:44:03
-
Sælir, ég er að velta fyrir mér hvort einhver hérna viti hvort það er hægt að "massa,- slípa " eða gera eitthvað sniðugt við rúður sem eru orðnar rispaðar í bílum
-
Já það á að vera hægt ef rispan er ekki orðin mjög djúp td ef nöglin á þér festist í henni þá er það of mikið :wink:
-
ég hef einmitt verið að bæla í þessu
hliðar rúðurnar í novuni eru pínu rispaðar
svo það væri magnað að geta lagað þær þó svo að þær verði ekki eins og nýar :wink:
bara spurning hver gerir þetta eða hvaða efni er best að nota :-k
-
Þær voru orðnar svona rispaðar rúðurnar í Chevy sem eg átti og það var maður hér á Akureyri sem bauðst til að slípa þær fyrir mig og sagðist nota einhver glermassa í það og hafi oft gert þetta með góðum árangri og það væri ekkert mál, en það varð aldrei úr því að eg færi með rúðurnar til hans svo eg get því miður ekki sagt ykkur hver árangurinn var.
-
talandi um massa
ég hef prófað að nota massa frá Glasurit á rúður og þær urðu betri :wink:
-
http://images.google.is/images?hl=is&q=glass%20polish%20kit&lr=&um=1&ie=UTF-8&sa=N&tab=wi
-
hann heitir Gvuðmundur og er að vinna hjá Bjarna Sigurjóns á AK sem á græjur í þetta
-
nei hann er kallaður Rikki, veistu ekki hver eg er að meina?
Eg hef aldrei þekkt hann undir öðru en Rikki og veit ekki hvers son hann er.
-
ja Gvuðmundur sagðist gera þetta þegar ég talaði við hann :roll:
-
það eru sennilega of djúpar rispur til að geta náð þeim úr þær eru eins og naglaþjöl þegar maður stríkur yfir þær :-"
en er séns að þið norðan menn getið reddað mér númerinu hjá þessum heiðurs manni sem er í þessu ??
-
En ein spurning, eru þessar hliðar rúður beinar eða eru þær kúptar?
-
Því ef þær eru beinar þá er ódýrasti og besti kosturinn sennilega sá að láta bara skera nýjar rúður. Ég var að spá í að gera þetta og fór niðrá Íspan hérna á Akureyri og fékk verð hjá þeim í 8 rúður, 4 litlar og 4 stórar í 55 chevy og það var litað öryggisgler og verðið var einhversstaðar á milli 20-25.000 sem er hrikalega vel sloppið :wink: reyndar eru orðin ca 2 ár síðan en gott verð :D
-
þetta verkstæði heitir bireiðaverkstæði Bjarna Sigurjóns :idea: ég hitti hann í dag og hann á græjunar í dag og gerir þetta :wink:
-
þær eru kúptar, annars væri já sniðugt að láta skera fyrir sig nýjar.
Takk fyrir þetta ég finn númerið hjá honum.