Kvartmílan => Keppnishald / Úrslit og Reglur => Topic started by: TONI on February 25, 2009, 23:51:02

Title: Sandspyrna KK 2009 fyrirhuguð
Post by: TONI on February 25, 2009, 23:51:02
Nú er það komið á stefnuskrána að keyra allavegana eina ef ekki fleiri keppnir í sandspyrnu á SV horninu. Stefnan er að fyrsta keppnin verði snemma sumars, verið er að leita að svæði sem og að fá vilyrði fyrir leyfi sýslumanns þar sem keppni myndi fara fram.
Ábendingar um staðsetningu sem gæti hentað eru vel þegnar.
Áhugasamir keppendur meiga vel láta vita af tilvist sinni, gaman að sjá hvað það má búast við mörgum úr hverju sporti í keppnina.
Kv. Anton
Title: Re: Sandspyrna KK 2009 fyrirhuguð
Post by: Halldór H. on February 26, 2009, 13:52:25
Sæll Anton.

Nú er ég ánægður með þig, svo er bara að standa við stóru orðin :D

Ég kem klárlega suður í sand,

reikna með að Stebbi kæmi líka með Cuduna.

Hvernig er með Langasand á Akranesi ?
Title: Re: Sandspyrna KK 2009 fyrirhuguð
Post by: Jón Þór Bjarnason on February 26, 2009, 15:51:33
Langar að staðfesta þetta hjá Antoni en hann hitti okkur í stjórn í gær og við ákváðum að kíla á þetta.
Anton ætlar að aðstoða klúbbinn eins og hann mögulega getur bæði með að finna gott svæði, finna styrktaraðila og aðstoða með staff.
Okkur líst mjög vel á þetta og boltinn er farinn að rúlla.  =D> =D> =D>
Title: Re: Sandspyrna KK 2009 fyrirhuguð
Post by: Valli Djöfull on February 26, 2009, 16:41:18
 =D> =D> =D>

Ánægður með þetta Toni  8-)
Title: Re: Sandspyrna KK 2009 fyrirhuguð
Post by: Brynjar Nova on February 26, 2009, 17:05:56
 =D>
Title: Re: Sandspyrna KK 2009 fyrirhuguð
Post by: Halldór H. on February 26, 2009, 21:19:32
Ein spurning,  hvað með það staff sem er á kvartmílukeppnum, er það ekki tilbúið að
starfa á sandspyrnu?
Title: Re: Sandspyrna KK 2009 fyrirhuguð
Post by: TONI on February 26, 2009, 22:21:24
Það lítur allt út fyrir að styrktaraðilarnir komi með starfsfólkið sem ekki snýr að beinu keppnishaldi s.s miðasölu, afgreiðslu í sjoppunni, gæslu o.s.fr. Ættla að vona að sem flest verði orðið klárt í lok marz hvað varðar undirbúning og ákvarðanatökur. Fæ góðar viðtökur á torfæruspjallinu og margir águgasamir að mæta til keppni, þarf að koma boðum á Sniglana og Motocross/enduro fólkið sem og sleðamennina, er ekki virkur á þeim spjallsíðum, gott væri ef einhver kæmi þessu á framfæri þar svo að öllu verði flaggað til.
Kv. Anton
Title: Re: Sandspyrna KK 2009 fyrirhuguð
Post by: Halldór H. on February 26, 2009, 22:34:24
Glæsilegt :smt041
Title: Re: Sandspyrna KK 2009 fyrirhuguð
Post by: Kristján Stefánsson on February 26, 2009, 22:46:49
Þetta er bara SNILLD hjá þér Anton, og ef að það verður stofnuð sandnefnd´(sem er náttúrulega eina vitið), þá er ég alveg til í að starfa í henni.  \:D/

K.v.
Title: Re: Sandspyrna KK 2009 fyrirhuguð
Post by: TONI on February 26, 2009, 23:18:09
Ættlum að sjá hvaða svæði gætu hentað, Ölfusið er gott en ræðst af sjávarföllum, Krísuvíkursvæðið er spennandi með allri þeirri náttúrufegurð og hljómburði sem þar er, Langisandur er flottur en held að hallinn í fjörunni sé og mikill, verður skoðað, Vík er full fjarri svo er bara gott að heyra allar góðar tillögur.
Kv. Anton
Title: Re: Sandspyrna KK 2009 fyrirhuguð
Post by: Kristófer#99 on February 27, 2009, 19:54:36
ég get komið á framfæri á sleða spjallsíðum
Title: Re: Sandspyrna KK 2009 fyrirhuguð
Post by: Lindemann on March 01, 2009, 21:03:03
ég er mjög ánægður með þetta, stefni á að taka þátt.....ef ekki þá hef ég áhuga á að aðstoða við keppnishald
Title: Re: Sandspyrna KK 2009 fyrirhuguð
Post by: TONI on March 04, 2009, 20:06:02
Sælir sjómenn.....já eða aðrir sem hafa aðgand að flóðatöflum fyrir 2009. Er einhver sem getur komið með tölurnar fyrir Þorlákshöfn 14.-17. Maí. Finn ekki tölur nógu lang fram í tímann á netinu.
Title: Re: Sandspyrna KK 2009 fyrirhuguð
Post by: Halldór H. on March 04, 2009, 23:07:16
Sæll Anton Sandspurnugúrú.

Afhverju 14-17 mai?  Vonandi ertu ekki með neitt fimmtudags eða sunnudags bull í huga?????

En á ekki að vera hægt að finna þessar flóðatölur einhverstaðar?
Title: Re: Sandspyrna KK 2009 fyrirhuguð
Post by: TONI on March 05, 2009, 00:11:09
Það er verið að spá í að halda sandinn 16 maí, það er rallý þá helgi en svo þar á eftir er Kvartmíla og Torfæra og svo stíft "prógram" í sportinu sem og keppnir erlendir í torfæru. Finn ekki flóðatöflu á netinu sem nær nægjanlega langt fram í tímann. Þetta er aðalega gert til að sjá hvort það gæti tekist að halda keppni í Ölfusinu þenna dag þó svo að Kleifarvatnið sé mjög spennandi er rétt að skoða alla möguleika þegar lagt er af stað í að tala við heilbrigðiseftirlitin. Held að Langisandur halli of mikið til að halda keppni þar.
Kv. Anton

Gamallt keppnisleifi:
http://hes.is/Starfsleyfi/skilyrdi/sandspyrna.htm

Myndir frá Kleifarvatni:

http://www.norvol.hi.is/~amy/kleifarvatn.html

http://images.google.is/images?hl=is&q=kleifarvatn&lr=&um=1&ie=UTF-8&sa=N&tab=wi

Keppnisdagatalið:

http://www.lia.is/

ALLLAR GÓÐAR ÁBENDINGAR VEL ÞEGNAR


Title: Re: Sandspyrna KK 2009 fyrirhuguð
Post by: TONI on March 05, 2009, 00:25:33
Hér er reindar mynd af Langasandi þar sem þetta gæti verið gerlegt á að mér sýnist.

http://ljosmyndasafn.akranes.is/picture3.asp?ID=4073
Title: Re: Sandspyrna KK 2009 fyrirhuguð
Post by: 57Chevy on March 05, 2009, 00:54:32
16 Maí er háflæði kl. 11.12 í Reykjavík.
Title: Re: Sandspyrna KK 2009 fyrirhuguð
Post by: TONI on March 05, 2009, 01:41:29
Sérðu hvernig staðan er á flóðamálum/tunglstöðu, verður hátt í þenna daginn eða er von að halda keppni þarna þenna dag?
Title: Re: Sandspyrna KK 2009 fyrirhuguð
Post by: Halldór H. on March 05, 2009, 14:53:44
Burtséð frá flóðatöflum, er ekki Langisandur málið :?:´ Ég vara að tala við félaga minn sem býr á Skaganun og hann vildi meina að hallinn á
fjörunni væri ekki svo mikill. Það þarf samt að rétta brautina af.

Þarna er nóg pláss, stutt að fara fyrir sunnan menn, og í mannabyggð, það koma líka fleiri að horfa á ef það er stutt að fara.



Title: Re: Sandspyrna KK 2009 fyrirhuguð
Post by: Kowalski on March 05, 2009, 16:23:33
Það er rétt, hallinn á fjörunni er ekki ýkja mikill.

ÍA spilar t.d. oft fótbolta á sandinum og það myndi nú varla ganga ef boltinn myndi alltaf rúlla niður á við.
Title: Re: Sandspyrna KK 2009 fyrirhuguð
Post by: 57Chevy on March 05, 2009, 18:00:28
Sérðu hvernig staðan er á flóðamálum/tunglstöðu, verður hátt í þenna daginn eða er von að halda keppni þarna þenna dag?
Er ekki með flóðatöflu almanak hjá mér, tölurnar eru úr vasabók.

Tel að það þurfi ekki að rétta Langasandinn af til að halda sand, hann hallar ekki það mikið vestast næst Sementinu, en aldan nær líka lengra upp ef er brim. Sandurinn er hálf heilagur hjá sumum og þessvegna erfitt að fá leyfi, var vonlaust þegar við vorum með AK-VEST dæmið að halda sand.
Hlutirnir hafa samt eitthvað breist, það er keft í crossi á sandinum á Írskum dögum, best er að tala beint við Gísla bæjarstjóra hann er fínn viðræðu.
Title: Re: Sandspyrna KK 2009 fyrirhuguð
Post by: Halldór H. on March 05, 2009, 20:00:51
Það má bara enginn halli vera á brautinni en ef hann er svona lílill þá er þetta ekki mikið mál.
Mér persónulega líst mjög vel á Langasand. Er ekki eitthvað öldurhús eða veitingastaður þarna sem væri hægt að halda þetta í
samvinnu við?

Er ekki málið að kanna viðbrögð bæjaryfirvalda sem fyrst.
Title: Re: Sandspyrna KK 2009 fyrirhuguð
Post by: TONI on March 05, 2009, 22:33:34
Er ekki vont að girða af svæðið eða halda utan um að greiddur sé aðgangseyrir þarna við langasand????
Title: Re: Sandspyrna KK 2009 fyrirhuguð
Post by: 57Chevy on March 05, 2009, 23:43:58
Er ekki vont að girða af svæðið eða halda utan um að greiddur sé aðgangseyrir þarna við langasand????
Jú það er mjög erfitt að mínu mati.
Title: Re: Sandspyrna KK 2009 fyrirhuguð
Post by: TONI on March 07, 2009, 23:24:31
Er búinn að senda mail á Heilbrigðiseftirlit Suðurnesja með fyrirspurn um þann möguleika að fá að halda keppni við Kleifarvatn, fæ vonandi svar snemma í næstu viku.
Kv. Anton
Title: Re: Sandspyrna KK 2009 fyrirhuguð
Post by: Halldór H. on March 08, 2009, 01:53:30
Er svæðið við Kleifavatn eitthvað verndað eða svoleiðis?
Title: Re: Sandspyrna KK 2009 fyrirhuguð
Post by: Kiddicamaro on March 08, 2009, 09:24:12
ekki ef þú heitir clint eastwood
Title: Re: Sandspyrna KK 2009 fyrirhuguð
Post by: Dodge on March 09, 2009, 12:35:19
Hver ætlar að fórna sér og skifta um nafn?  :D
Title: Re: Sandspyrna KK 2009 fyrirhuguð
Post by: Racer on March 09, 2009, 18:09:57
skrifa bara umsókn á ensku og með Clint Eastwood undir