Kvartmílan => Alls konar röfl => Topic started by: Halldór Ragnarsson on February 16, 2009, 22:32:37

Title: Fiero 84
Post by: Halldór Ragnarsson on February 16, 2009, 22:32:37
Sá þetta á Barnaland :P
Til sölu Pontiac Fiero 1984 4 cyl úrbræddur
verð tilboð uppl í síma 847-1763
Title: Re: Fiero 84
Post by: Halli B on February 17, 2009, 00:45:24
Jón þór!!!!!!!!!!
Title: Re: Fiero 84
Post by: TONI on February 17, 2009, 01:04:32
Jón Þór á eftir að sýna mönnum hvernig á að gera mikið fyrri lítið  :D
Title: Re: Fiero 84
Post by: Racer on February 17, 2009, 03:25:55
óþarfi að hann kaupir þá alla , sérstaklega kominn með tvo fiero og unga barn fyrir.

spurning hvort hann sé í vogunum eins og símanúmer er skráð.
Title: Re: Fiero 84
Post by: stigurh on February 17, 2009, 07:45:58
Hann ætlar að gera þá báða upp og þá vantar hann að sjálfsögðu einn í varahluti !
stigurh
Title: Re: Fiero 84
Post by: Jón Þór Bjarnason on February 17, 2009, 09:22:14
Mér bauðst þessi bíll lika en þessi aðili var með tvo bíla. Ég verslaði betri bílinn. Mér var líka lofað felgunum af þessum bíl sem er til sölu en ekki hefur verið staðið við það loforð. Bíllinn sem ég verslaði var á þremur mismunandi felgum.
Uppgerð gengur vel og er farið að síga á seinni hlutann. Verst að mér vantar felgur á bílinn svo hann komist í skoðun.

Þetta voru samskonar felgur og eru undir þessum. Ef einhver á svona felgur og vill láta þær þá endilega hafið samband.
Title: Re: Fiero 84
Post by: Kristján Skjóldal on February 17, 2009, 12:14:27
ég á vélina sem verður að fara í svona dæmi 305 hö V8 32v með skiftingu og öllu klárt í svona græju ef einhver sem nennir að græja svona dæmi\:D/
Title: Re: Fiero 84
Post by: Jón Þór Bjarnason on February 17, 2009, 12:31:31
Kristján sendu á mig verðmiðann svo ég geti skoðað dæmið betur.

Annars er ég búinn að vera að spá mikið í V6 Buick 3.8l Annað hvort turbo vél eða setja blásara.
Þeir hafa verið að ná í kringum 11 sek með svoleiðis settup í ameríkuhreppi.