Kvartmílan => Leit að bílum og eigendum þeirra. => Topic started by: Kristján Skjóldal on January 07, 2009, 23:35:00
-
veit einhver hvað var um bílinn sem Óðinn Mag átti hér fyrir nokk mörgum árum síðan hann var að mig minnir græn og hann málaði hann Gulan væri gaman að vita hvað varð um hann :?:
-
Ef þetta er bíllinn sem Biggi Pálma átti á Akureyri forðum, sem ég held að sé rétt. Þá mun hann vera í skúr á Selfossi, allur sundurrifinn
Kveðja Sævar P.
-
Jú, þetta er örugglega sá, var með í sandi örugglega fyrir 1990, á til myndir af honum þar.
Hérna er síðan hans Gísla, á 2 '69 GTO bíla --> http://gislisk.googlepages.com/x4511
-
er nokk til mynd þegar hann er gulur :?:og er einhver að gera hann upp eða er hann falur :?:
-
er nokk til mynd þegar hann er gulur :?:og er einhver að gera hann upp eða er hann falur :?:
Myndi nú ekki veðja á að hann væri falur, en það sakar ekki að kanna það, hann var amk. kominn í uppgerð. Hérna er ein af honum í sandi.
-
en var hann ekki öruglega N/M GTO :?:
-
Þetta er orginal '69 GTO en ekki numbers matching drivetrain... og það kæmi mér virkilega á óvart ef hann væri til sölu. Mér fannst hann vera ansi riðgaður þegar ég sá hann síðast og ég held að hann sé ekki í neinni uppgerð... Hefur meira verið notaður í varahluti í hinn bílinn hans held ég..... sá bíll er í uppgerð
-
Ég keypti hann af Óðni 1988 eða 1989 seldi hann ári seinna, sá seldi úr honum vélina(ekki orginal vél)og skiftinguna. Þannig eignast Gísli Skúla á Selfossi hann og hefur hann staðið inni hjá honum síðan. Eitthvað hefur hann notað af honum í uppgerðina á hinum sem hann á.
-
ok takk :D
-
Myndin er tekin 1988 og Óðinn er á honum, Fjör-88 sandur Melgerðismelum
-
sælir, ég veit að þessi þráður er ekki búinn að vera virkur í mjög langan tíma en nenni ekki að vera gera nýjan þráð fyrir sama bíl.
Þannig ermál með vexti að ég ætlaði að gera þráð til að finna gamla pontiacinn hans pabba míns en svo finn ég þennan þráð og er viss um að þetta sé hann. En mig langaði bara að forvitnast hvort þið vitið eitthvað meira um hann eða hvort þetta er bara svona endanleg niðurstaða að hann sé niðurkominn í einhverjum bílskúr á selfossi allur sundurtættur?
pabbi minn átti hann áður en hann fór á akureyri en hann var einmitt grænn eins og á þessum myndum þá.
-
tek þessu sem nei :)
-
tek þessu sem nei :)
Hvað villtu vita??
-
hvort þið það er alveg víst að hann liggji bara í einhverjum skúr á selfossi allur sundurtættur og búið að selja í varahluti
-
hvort þið það er alveg víst að hann liggji bara í einhverjum skúr á selfossi allur sundurtættur og búið að selja í varahluti
Nei, maðurinn sem á bílinn á annan '69 GTO og hefur notað varahluti í hann.... Ekkert selt úr honum sem ég best veit. Ég sé ekki fyrir mér að bíllinn sé til sölu eða verði til sölu í bráð.