Kvartmílan => Leit að bílum og eigendum þeirra. => Topic started by: Jón Þór Bjarnason on November 02, 2008, 00:29:42

Title: Gamlir en ekki tíndir
Post by: Jón Þór Bjarnason on November 02, 2008, 00:29:42
Var ekki alveg viss hvar þetta á heima þannig ég læt þetta hér.
Ég var að gramsa í gömlum myndaalbúmum hjá foreldrum mínum og sá þessar myndir.
Pabbi gamli flutti þessa inn í den-tíð.
Title: Re: Gamlir en ekki tíndir
Post by: Jón Þór Bjarnason on November 02, 2008, 00:31:28
Og svo líka þessi.
Title: Re: Gamlir en ekki tíndir
Post by: Jón Þór Bjarnason on November 02, 2008, 00:33:09
Svo verð ég að láta fylgja mynd af mér þegar bílaáhuginn kviknaði.
Title: Re: Gamlir en ekki tíndir
Post by: Moli on November 02, 2008, 05:49:24
´70 Orange-litaði Chargerinn er bíllinn hans Gulla Emilss. í dag, veit samt ekki með ´69 bílinn, en mikið djöfull fallegur er hann!! :neutral:
Title: Re: Gamlir en ekki tíndir
Post by: Kristján Skjóldal on November 02, 2008, 09:00:30
flottir bilar en þú hefur ekkert breyst :D
Title: Re: Gamlir en ekki tíndir
Post by: Jón Þór Bjarnason on November 02, 2008, 14:58:56
flottir bilar en þú hefur ekkert breyst :D
Nei sennilegast ekki. Mig langar allavegana alltaf jafn mikið til að eignast almennilegan mopar en myndi alveg sætta mig við chevrolet.
Title: Re: Gamlir en ekki tíndir
Post by: 1966 Charger on November 02, 2008, 15:30:14
Magnaðar myndir Nonni.  Takk fyrir að sýna okkur þær.

Þessi græni er 318 original. VINXP29F9B335543.  Fast númer EA561. Byggður í samsetningarverksmiðju Chrysler í Hamtramck, Michigan.  Pabbi þinn flytur hann inn c.a. 1973. Þetta mun vera Chargerinn sem Jónas Karl eignaðist síðar (R-64444) eða um 1980-81. Kalli setti í hann big block 440 og síðar 383, keppir á honum á mílunni og selur hann 1993 til Vestmannaeyja.  Hann er svo keyptur upp á land síðar.  Það hafa verið nokkrar myndir af þessum á sveimi á þessari síðu í núverandi og ömurlegu  ástandi.

Err