Kvartmílan => Leit að bílum og eigendum þeirra. => Topic started by: Anton Ólafsson on September 30, 2008, 01:01:17

Title: Ég las það í Samúel
Post by: Anton Ólafsson on September 30, 2008, 01:01:17
(http://farm4.static.flickr.com/3196/2899807201_d74e4721ba_b.jpg)

(http://farm4.static.flickr.com/3091/2899807247_897259eb54_b.jpg)


Quote
Hver eru aðal áhugamál þín?

Þau eru mörg. Mjög mörg. Númmer eitt er málverndun. Ég læt mig dreyma um það, að heyra einn góðan veðurdag alla landsmenn tala með ekta Akureyrarframburði. Það er íslenskan eins og á að tala hana. Ég þoli ekki linmælsku Reykvíkinga







Er þetta í lagi?
(http://farm4.static.flickr.com/3179/2902129547_6ab3923b84.jpg)
Title: Re: Ég las það í Samúel
Post by: Camaro-Girl on September 30, 2008, 01:05:08
þú hefðir akkveg mátt sleppa þessari forsíðumynd :roll:
Title: Re: Ég las það í Samúel
Post by: Racer on September 30, 2008, 01:06:30
hehe

ætlarðu nokkuð að skanna inn allar greinar um kvartmílu úr samúel?
væri ansi margir þráðir  =D>
Title: Re: Ég las það í Samúel
Post by: Moli on September 30, 2008, 01:16:38
Góður Anton, var farinn að halda að þú værir búinn að gleyma þessu! 8)

Getur annars einhver útskýrt viðarmælarborðið sem er í honum þarna? Hvað kom til að þetta var sett í og hver gerði það?
Title: Re: Ég las það í Samúel
Post by: Jón Þór Bjarnason on September 30, 2008, 01:26:54
þú hefðir akkveg mátt sleppa þessari forsíðumynd :roll:
Sammála.  [-X
Title: Re: Ég las það í Samúel
Post by: íbbiM on September 30, 2008, 03:57:17
hvah.. hún  er bara tilbúinn með bananan og allt :mrgreen:
Title: Re: Ég las það í Samúel
Post by: Belair on September 30, 2008, 07:42:23
þú hefðir akkveg mátt sleppa þessari forsíðumynd :roll:
Sammála.  [-X

 ja það hefið verði kannski rett ,EN hver er daman  :mrgreen:
Title: Re: Ég las það í Samúel
Post by: Racer on September 30, 2008, 08:50:03
miðað við Samúel og módel þá er hún 99% erlend , trúlega dönsk eða eitthvað.
Title: Re: Ég las það í Samúel
Post by: Kristján Skjóldal on September 30, 2008, 09:17:37
en hvernig lítur hún út í dag :D
Title: Re: Ég las það í Samúel
Post by: Skúri on September 30, 2008, 09:22:37
Ég á líklega flest öll Samúel blöðin sem voru gefin út og er ég með sér möppu inni í geymslu sem er bara með Samúel blöðum þar sem fjallað var um mótorsport. Eins á ég flest öll Mótorsport blöðin sem voru gefin út og einnig flest öll Ökuþór blöðin sem voru með einhverri mótorsport umfjöllun. Ég gæti skannað þetta allt inn og sett hérna inn, en ég hef áður lent í vandræðum vegna höfundarréttar hérna inni á þessari síðu þegar ég sett hérna inn gamlar myndir sem JAK tók í gamladaga og pabbi keypti af honum, þannig að ég er ekki vissum að ég treysti mér í það  :-(. En ég gæti kannski lánað Antoni blöðin sem honum vantar upp á til að skanna inn og setja hérna inn eða jafnvel fyrir klúbbinn til að eiga fyrst hann er byrjaður á þessu 8-), svona í staðinn fyrir allar myndirnar sem þeir bræður eru búnir að láta mig fá inn á síðuna mína  :)
Title: Re: Ég las það í Samúel
Post by: kerúlfur on September 30, 2008, 17:45:44
hvar er þessi bill í dag, á einhver myndir af honum  :!: minnir að frændi minn á djupavogi hafi átt einn svona þegar ég var litill pjakkur að mig minnir :D
Title: Re: Ég las það í Samúel
Post by: Moli on September 30, 2008, 18:56:17
hvar er þessi bill í dag, á einhver myndir af honum  :!: minnir að frændi minn á djupavogi hafi átt einn svona þegar ég var litill pjakkur að mig minnir :D

Bíllinn er í Japan.
Title: Re: Ég las það í Samúel
Post by: Racer on September 30, 2008, 22:08:56
hvar er þessi bill í dag, á einhver myndir af honum  :!: minnir að frændi minn á djupavogi hafi átt einn svona þegar ég var litill pjakkur að mig minnir :D

þessi bíl var nú seldur víst ansi mikið á stuttum tíma , man að náungi sem ég var að vinna með átti hann og fékk hann á slikk og seldi hann fyrir aðeins meira og fékk bíl með.. seldi hann vegna þess hann barnaði konuna og þurfti fjölskylduvæni bíl hehe
Title: Re: Ég las það í Samúel
Post by: Moli on September 30, 2008, 22:14:31
hvar er þessi bill í dag, á einhver myndir af honum  :!: minnir að frændi minn á djupavogi hafi átt einn svona þegar ég var litill pjakkur að mig minnir :D


þessi bíl var nú seldur víst ansi mikið á stuttum tíma , man að náungi sem ég var að vinna með átti hann og fékk hann á slikk og seldi hann fyrir aðeins meira og fékk bíl með.. seldi hann vegna þess hann barnaði konuna og þurfti fjölskylduvæni bíl hehe


Svona kallar!! Ég tæki nú ´67 Shelby GT-500 fram yfir einhverja kerlingu any day!  :mrgreen:
Title: Re: Ég las það í Samúel
Post by: Racer on September 30, 2008, 23:19:06
verður að gera þér grein fyrir því að það eru meira en 20 ár síðan og þessi eftirfarandi hefur aldrei verið mikill bílakarl þó Frændi hans er alþekktur í heimi rallycross og torfæru hérlendis.
Title: Re: Ég las það í Samúel
Post by: cecar on October 01, 2008, 01:29:47
en hvernig lítur hún út í dag :D

Sjálfsagt eins og aðrar ömmur af þessari kynslóð  :smt104 :smt104 :smt005

Úpps vonandi móðgaði ég eingan mér eldri  :-"
Title: Re: Ég las það í Samúel
Post by: Anton Ólafsson on December 08, 2008, 20:45:16


Getur annars einhver útskýrt viðarmælarborðið sem er í honum þarna? Hvað kom til að þetta var sett í og hver gerði það?

Veit einhver meira um þetta mælaborð??
Kom þessi virkilega með viðar en ekki burstuðu áli?????
Title: Re: Ég las það í Samúel
Post by: JHP on December 08, 2008, 21:23:59
hvar er þessi bill í dag, á einhver myndir af honum  :!: minnir að frændi minn á djupavogi hafi átt einn svona þegar ég var litill pjakkur að mig minnir :D
Hver er frændi þinn þar?
Title: Re: Ég las það í Samúel
Post by: Gummari on December 09, 2008, 07:58:41
ég er ekki viss um að þessi bíll sé mikið original að innan á þessum myndum með rýjateppi hurst skiptir og viðarklæðningu sem var ekki í boði fyrr en 68
það væri gaman ef einhver ætti myndir inní hann til að skoða betur
Title: Re: Ég las það í Samúel
Post by: GunniCamaro on December 09, 2008, 12:54:34
Ég veit ekki hvað menn eru að slefa yfir þessu Shelby dóti, Ford gat ekki (og hefur aldrei) smíðað almennilegan Mustang og þurfti að fá aðstoð frá Shelby til að smíða eitthvað skárra og besta var að ég las viðtal við kallinn þar sem hann sagði að þessir Mustangar voru ekkert uppáhald hjá honum, það voru AC bílarnir, en peningarnir sem hann fékk fyrir Mustangana komu sér ágætlega.
Síðan þegar þessir Shelby vagnar hittu fyrir alvöru Camaroa voru þeir rassskelltir af Camarounum á öllum kappakstursbrautum og á götunni, það sannar bílasagan svo reynið ekki að halda öðru fram.
(he he, nú verður allt vitlaust)
Title: Re: Ég las það í Samúel
Post by: Firehawk on December 09, 2008, 13:53:43
Síðan þegar þessir Shelby vagnar hittu fyrir alvöru Camaroa voru þeir rassskelltir af Camarounum á öllum kappakstursbrautum og á götunni, það sannar bílasagan svo reynið ekki að halda öðru fram.
(he he, nú verður allt vitlaust)

(http://i.pbase.com/o4/98/583898/1/63713938.qaEEdjG9.popcorn.gif)

-j