Kvartmílan => Almennt Spjall => Topic started by: ljotikall on September 27, 2008, 16:30:44

Title: mamma eg vill horfa a grease!!
Post by: ljotikall on September 27, 2008, 16:30:44
hahahahahahahaha #-o

http://visir.is/article/20080927/LIFID01/224309061/-1

Tæplega þrítug móðir úr Reykjanesbæ hafði samband við Vísi í gær en hún segist afar ósátt við starfsfólk verslunarinnar Góða hirðisins.

Móðirin fór með 7 ára dóttur sína í verslunina keypti þar handa henni kvikmyndina Grease. Sagði henni að Grease væri kvikmynd sem allir þyrftu að horfa á.

Þegar heim var komið fór stúlkan að horfa á kvikmyndina með ungri frænku sinni. En þegar frænkurnar settu myndina í gang birtist ekki aðtriði úr Grease. Á skjánum birtist í staðinn atriði úr grófri klámmynd.

Sem betur fer náði amma stúlknanna að stökkva til og slökkva á myndinni en þegar hún fór að kanna málið kom í ljós að á spólunni var gróf klámmynd í fullri lengd. Ekkert atriði úr Greasa var þar að finna.

Móðirin segir að dóttir sín og frænka hennar séu miður sín en sjálf segist hún öskureið.
Title: Re: mamma eg vill horfa a grease!!
Post by: Racer on September 27, 2008, 17:03:46
spurning hvort það sé ekki hægt að versla spóluna góðu af kellu fyrst hún er ósátt
Title: Re: mamma eg vill horfa a grease!!
Post by: Corradon on September 27, 2008, 17:26:17
Uss.. gaf eitthver kelling földu klámyndir mansins til góða hirðsins.. 

 :lol: