Kvartmílan => Keppnishald / Úrslit og Reglur => Topic started by: Axelth on September 11, 2008, 02:19:48

Title: ég skil ekki eitt
Post by: Axelth on September 11, 2008, 02:19:48
Er það rétt að það sé í lagi að þjófstarta í tímatöku  :?: :?: Ef svo er þá vil ég fá það staðfest og hversu mikið maður má þjófstarta
Title: Re: ég skil ekki eitt
Post by: Danni Málari on September 11, 2008, 03:07:00
Tíminn byrjar að telja þegar þú ferð úr geislanum hvort sem það er fyrir eða eftir að græna ljósið kveiknar. Græðir ekkert á því að þjófstarta í tímatökum en tapar engu á því heldur.
Title: Re: ég skil ekki eitt
Post by: Valli Djöfull on September 11, 2008, 07:42:48
Rétt er það... Skiptir engu máli hve mikið þú þjófstartar eða hve lengi þú bíður.. Mættir í raun bíða þar til hinn er kominn vel af stað áður en þú brunar af stað, og það hefur nákvæmlega engin áhrif á tímann þinn..
Title: Re: ég skil ekki eitt
Post by: Axelth on September 12, 2008, 02:43:38
ok :) ég skil þetta alveg .... taldi bara að rauða peran væri ógild ferð ..... alltaf

Takk fyrir svörin