Kvartmílan => Leit að bílum og eigendum þeirra. => Topic started by: F2 on August 27, 2008, 13:17:12
-
Ég hef nú ekki neinar upplýsingar bakvið höndina annað enn að þetta er trans am eða firebird,,,
Getur einhver sagt mér hva varð um þennan bíl og er mögulega til mynd af honum einhversstaðar og hvað seinasta númer á honum var :)
Fannar
-
Þú getur leitað hjá Honum Magga (Mola) á myndasíðuni hans
http://www.bilavefur.net/album/index.php
-
Þú getur leitað hjá Honum Magga (Mola) á myndasíðuni hans
http://www.bilavefur.net/album/index.php
Ég veit ekki einusinni hvaða árgerð þetta var,,,,
Er að leita að þessu fyrir ættinga,,, Eina sem ég veit er að bíllinn bar X1417 Númerið!
-
ég man svo eftir þessu númeri... en er ekki búinn að tengja ennþá
-
Var að komast yfir smá meiri upplýsingar hérna samkvæmt gömlu skatta framtali,,,
Þetta var 73 árgerð af firebird og Var seldur 1988 til Rúdólfs Jóhannsson????
Kannast einhver við þetta!!!!
-
Jæja,, búnað spjalla við Rúdólf :)
Og svaraði hann helling af spurningum:)
Hann Taldi líklegt að bíllinn væri staðsettur á Egilstöðum,,, Hringir það einhverjum bjöllum
-
Sæll,
maðurinn heitir Skarphéðinn Þráinsson. Hann á þennan bíl eða það sem eftir er af honum í dag, einnig á hann þennan fyrir neðan...
(http://www.internet.is/skarpi/bilasyning/images/PIC00020.jpg)
meira : http://www.internet.is/skarpi/ (http://www.internet.is/skarpi/)
hér er svo boddy'ið af þessum sem þú talar um...
(http://www.bilavefur.net/album/albums/uploads/firebird_transam_70_73/Skjoliscan_126.jpg)
-
edit..
Kiddi var á undan! :-"
-
væri hægt að fá oldsinn á klink??
-
væri hægt að fá oldsinn á klink??
Nei það er með öllu útilokað!
-
væri hægt að fá oldsinn á klink??
Nei það er með öllu útilokað!
en Firebirdinn? :mrgreen:
-
Gleymiði þessu.....hvað með golfinn þarna með veltibúrinu :-k
-
Ég var með einn af fyrrv. eigendum af þessum bíl í símanum áðan, fasta númerið á honum er held ég EH-977. Hann átti bílinn '93 til '94 eða '95 minnti hann.
Hann var stríheill þegar hann átti hann, eini gallinn voru felgurnar... sem voru jú eitthvað gallaðar og önnur þeirra fór af bílnum og uppí brettið. Sá sem kaupir bílinn af honum sagði hann hefði verið eins og útúr verksmiðjunni þegar hann tók teppi/klæðningar innan úr honum.