Kvartmílan => Alls konar röfl => Topic started by: Jón Þór Bjarnason on July 07, 2008, 00:10:11

Title: KK óskar eftir filmumanni/konu
Post by: Jón Þór Bjarnason on July 07, 2008, 00:10:11
Kvartmíluklúbburinn óskar eftir manni/konu til að filma öryggisbíl KK.

Einnig þyrfti að filma stjórnstöð.

Þeir sem hafa áhuga geta sent mér verðtilboð á nonni@kvartmila.is

eða bjallað í mig í síma 899-3819

Þetta er eitthvað sem þarf að gerast sem fyrst, allavega með bílinn.
Title: Re: KK óskar eftir filmumanni/konu
Post by: Jón Þór Bjarnason on July 07, 2008, 02:41:48
Bara taka það fram að það er ekki verið að fara fram á að fá þetta ókeypis.
Title: Re: KK óskar eftir filmumanni/konu
Post by: Jón Þór Bjarnason on July 07, 2008, 15:17:04
Það hlítur að vera einhver hérna sem kann þetta og vantar smá aur.
Title: Re: KK óskar eftir filmumanni/konu
Post by: Hera on July 07, 2008, 20:40:17
Filma hvernig? Rúður eða auglýsingar?
Title: Re: KK óskar eftir filmumanni/konu
Post by: Valli Djöfull on July 07, 2008, 20:48:26
Bara dökkar filmur myndi ég halda..  Það þarf fyrst að ná af gömlu filmunni og límdrullunni sem eftir er í turninum en bílinn má filma strax.

Pælingin með turninn er að filma báðar hliðarrúður alveg en rúðuna sem snýr fram að braut niður að hálfri rúðu.  Sólin truflar svakalega, maður sér ekkert númer hvað bílar og hjól eru stundum þegar sólin er búin að koma sér fyrir á góðum stað :)
Title: Re: KK óskar eftir filmumanni/konu
Post by: KalliGústi on July 07, 2008, 23:17:10
Trixið við þetta er að setja smá uppþvottarlög í vatn og spreyja vel á flötinn, skella svo filmunni í, skafa ´svo vatnið undann með rúðusköfu, þrýsta svo vel í kverkina með kíttispaða og skera með dúkahníf með spaðanum. Sápuvatnið gerir það að verkum að þú getir stjórnað filmunni svolítið. Hafið filmuna alltaf aðeins rúmlega á allav kanta.
Title: Re: KK óskar eftir filmumanni/konu
Post by: Jón Þór Bjarnason on July 08, 2008, 02:20:12
Trixið við þetta er að setja smá uppþvottarlög í vatn og spreyja vel á flötinn, skella svo filmunni í, skafa ´svo vatnið undann með rúðusköfu, þrýsta svo vel í kverkina með kíttispaða og skera með dúkahníf með spaðanum. Sápuvatnið gerir það að verkum að þú getir stjórnað filmunni svolítið. Hafið filmuna alltaf aðeins rúmlega á allav kanta.
Við erum að leita að fólki til að gera þetta fyrir okkur þar sem við í stjórn höfum nóg annað að gera.