Kvartmílan => Almennt Spjall => Topic started by: Gilson on June 25, 2008, 00:41:46
-
sælir félagar
þannig er mál með vexti að það er kominn tími á kertaskipti á chevelluni hans kima(bláa sem margir sáu upp á braut áðan). Hvar er best að kaupa kerti í þetta dót hér á landi og hvernig kerti eru best.
Auðunn ?
-
N1/Bílanaust, NGK kerti.
-
jæja, það var bara svo einfalt :lol:
-
Farðu bara í N1 í Hafnarfirði og talaðu við Palla,hann reddar þér.
-
þakka ykkur fyrir þetta :D
-
Platinum kerti veita besta neistann
-
Platinum kerti veita besta neistann
og hvar fæ ég þau?
-
Platinum kerti veita besta neistann
og hvar fæ ég þau?
Athugaðu N1, hringdu bara í þá eða eitthvað þeir vita allt um þetta...
-
Mér var bent á að nota kerti frá Autolite í minn bíl þar sem NGK eru víst ekkert að gera neitt svakalega góða hluti í amerísku deildinni (samkvæmt reynslubolta frá bílanaust)
Ég er með Autolite Double Platinum og fást þau í N1 (bílanaust)
(http://www.shamrockchicago.com/pics/DoublePlatPlug.jpg)
-
eitthvað var það að NGK veita ekki réttan blossa miðað við autolite kerti sem á víst að vera sér amerískur blossi :D
þaggi?
-
AUTOLITE, báðir Mustangarnir á þessu heimili létu illa þegar við feðgarnir fengum þá með NGK!
-
www.sparkplugs.com og veldu þér það sem þér líst best á !
tekur 4-5 virka daga að fá þetta heim.
ég reyndar mæli með Ac Delco í GM bíla - hægt að fá mismunandi hitastig og fl. - ef það finnst ekki þá hef ég verið að nota Denso með góðum árangri.
-
Öll kerti bjóða uppá mismunandi hitastig.
Ég nota NGK V-Power R5671A-9 í mótorinn hjá mér, það var það sem mælt var með einróma af MÖRGUM.
Ætla ekkert að setja útá önnur kerti en þessi hafa reynst vel og þess vegna get ég mælt með þeim.