Kvartmílan => Alls konar röfl => Topic started by: Orriboy on June 02, 2008, 19:49:14
-
Jæja það er komið að því. Rall númer 2....
SUÐURNESJARALL
Verður haldið dagana 6-7 júní. Leiðirnar sem verða eknar eru t.d Djúpavatnið, Kleifarvatn, Stapinn sem er á milli Njarðvíkur og Voga, Nikkel er fyrir ofan Grænás þar sem skrifstofur lögreglunnar(Flestir vita hvar það er:punch: hehehehe), Og svo er auðvita ekið um höfnina í Keflavík þar sem er allveg tilvalið að skreppa og horfa á. Þar leggur fyrsti bíll af stað kl 20:00 á föstudags kveldið. Og eru eknar 2 umferðir þar :D. Svo er auðvita rúsínan í pylsu endanum, Rallycross brautin AKA Akstursbrautin verður ekin á laugardaginn , og er áætlað að fyrsti bíll leggi af stað kl 13:15. Og er góð aðstaða þar til að horfa á bílana þeysast áfram þar. Flykkjumst á þessa staði og styðjum þá sem þið þekkið eða eru ykkur mest spennandi áhöfn.... :D
Þetta er ekki eins og í leikhúsi.... Myndavélar ERU leyfðar og endilega hækkið í símanum ykkar :thumbr:
Í síðasta rally unnu þeir Sigurður Bragi og Ísak, á EVO, rallið. Eftir að hafa verið í baráttu við Jón og Borgar, á EVO, sem duttu út á Lyngdalsheiðinni eftir að gírkassi gaf sig. Og varð Pétur "bakari" og Heimir, einnig á EVO, í öðrusæti. í Jeppa flokki urðu Guðmundur og Ingimar, á Pajero, í fyrsta sæti og í 1600 og 2000 flokkum varð Henning og Gylfi, á Corollu 86, sigurvegarar. Og áttu þeir í baráttu við bræðurna Gunnar og Jóhann Hafsteinssyni sem lentu í því að sprengja dekk og töpuðu 11 mín á því á Lyngdalsheiðinni.
Nokkrir nýjir og skemmtilegar áhafnir voru mættar eftir langa fjarveru eins og Marian og Jón þór á Evo sem lentu í þriðja sæti, Ólafur Ingi og Sigurður á Corollu 86 og lentu þeir í 3 sæti á 1600 og 2000 flokki. Ný áhöfn á Corollu voru þeir Kjartan og Óli Þór og lentu þeir í 2 sæti í 1600 og 2000 flokki.
Hér að neðan er tímamasterinn fyrir Rallið um helgina.
http://lia.is/skjol/reykjanesrall08.pdf
(http://lia.is/skjol/timamaster.jpg)
Endilega kíkið á þessa snillinga.
Og munið að hafa ávalt beltin spennt og tökum fíflaskap í umferðinni og færum þá í skemmtun á brautum.
Bkv: Guðmundur Orri Arnarson
-
Fleirri upplýsingar inná www.Lia.is
Og þar inná "Spjall"
-
nett verð að fara þarna
-
Skráðir keppendur: Þetta eru 19 áhafnir skráðar í þetta rall.
Grup.N: 9 áhafnir
2000fl.: 2 áhafnir
Nýliðafl.: 5 áhafnir
Jeppafl.: 3 áhafnir
Group.N
Jón Bjarni Hrólfsson og Borgar Ólafsson á Mitsubishi Lancer EVO VII, Grup.N
Sigurður Bragi Guðmundsson og Ísak Guðjónsson á MMC Lancer Evo 7, Grup.N
Sigurður Óli Gunnarsson og Elsa K sigurðardóttir á Toyota Celica gt 4, Grup.N
Fylkir A. Jónsson og Elvar S. Jónsson á Subaru Impreza Grúp. N
Pétur Sigurbjörn Pétursson og Heimir Snær Jónsson á Mitsubishi Lancer Evo VI, Grup.N
Páll Harðarsson og Aðalsteinn Símonarsson á Subaru Impreza STI WRC, Grup.N
Jóhannes V. Gunnarsson og Björgvin Benediktsson á Mitshubishi Lancer Evo VII, Grup.N
Marian Sigurðsson og Jón Þór Jónsson á Mitsubishi Lancer Evo V, Grup.N
Valdimar Jon Sveinsson og Ingi Mar Jonsson á subaru impreza, Grup.N
2000 Flokkur
Gunnar Freyr Hafsteinsson og Jóhann Hafsteinn Hafsteinsson á Ford Focus ST 170-R, 2000flokkur
Guðmundur Orri Arnarson og Jakob Þórir Jónsson á Renault Clio 1800 sport, 2000flokkur
Nýliðaflokkur(1600 og undir)
Magnús Þórðarson og Þórður Bragason á Toyota Corolla, Nýliðaflokkur
Kjartan M Kjartansson og Ólafur Þór Ólafsson á Toyota Corolla 1600 GT, Nýliðaflokkur
Henning Ólafsson og Gylfi Guðmundsson á Toyota Corolla, Nýliðaflokkur
Gunnar Ásgeirsson og Bryndís Gunnarsdóttir á Nissan sunny, Nýliðaflokkur
Ólafur Ingi Ólafsson og Sigurður Ragnar Guðlaugsson á Toyota Corolla, Nýliðaflokkur
Jeppaflokkur
Guðmundur S Sigurðsson og Ingimar Loftsson á MMC Pajero, Jeppaflokkur
Reynir Þór Reynisson og Gunnar Stefánsson á Toyota Hilux, Jeppaflokkur
Ásta Sigurðardóttir og Steinunn Gústavsdóttir á jeep grand cherokee, Jeppaflokkur
-
Hvað segiru big bro, á ekki að fara keppa á einhverju skemmtilegra en clio :lol: þarf að bjóða þér inní skúr og sjá alvöru bíl :mrgreen: hvernig gekk þér annars ??
kv lil´bro