Kvartmílan => Muscle Car deildin og rúnturinn. => Topic started by: Arason on April 24, 2008, 19:43:27

Title: Suðurland / Selfoss
Post by: Arason on April 24, 2008, 19:43:27
Já Gleðilegt sumar allir saman!

Nú er kominn smá sumar gredda í mann og mann langar til að efna til smá hittings og rúnts á Selfossi... hvernig er stemmingin fyrir því? Nóg er af fallegum bílum á svæðinu og gaman væri að draga fólk hvaðan sem er til þess að koma!

Ég sé fyrir mér laugardaginn og kvöldið og jafnvel eitthvað fram eftir nóttu! þ.e.a.s 26. apríl 2008!

Hittast, spjalla i tækin og hvað hefur verið að gerast í vetur, monta sig og slefa af öfund. Hljómar vel í mínum eyrum.

Kv. Árni

Eigum við ekki að ræða þetta eitthvað og reyna að búa til einhvern start stað og svona aðal spjall...?
Title: Re: Suðurland / Selfoss
Post by: AlliBird on April 26, 2008, 11:42:35
Eins og þú sérð er ekki mikil svörun.. menn virðast ekki vera mjög virkir almennt.  :neutral:  Við erum búnir að reyna að hóa saman í Laugardagsrúnt ca tvisvar í vor á góðviðrisdögum en það hefur verið frekar dræm mæting, 6-8 bílar.
Þú ættir kannski að kíkja á Krúserafund eitthvert Fimmtudagshvöldið og stinga uppá þessu þar því það gæti verið skemmtileg tilbreyting að taka rúnt austur fyrir fjall.
Title: Re: Suðurland / Selfoss
Post by: DÞS on May 06, 2008, 23:47:41
stefna að þessu i mai frekar a goðum sumar degi.
Title: Re: Suðurland / Selfoss
Post by: eythorinn on August 28, 2008, 16:05:36
ég væri til í hitting á selfossi