Kvartmílan => Alls konar röfl => Topic started by: Gísli Camaro on April 24, 2008, 01:09:02

Title: MÓTMÆLI MÓTMÆLI MÓTMÆLI
Post by: Gísli Camaro on April 24, 2008, 01:09:02
þeir sem hafa áhuga á að styðja TRUKKABÍLSTJÓRA í öllum þessum mótmælum eru hvattir til að mæta niður á lögreglustöðina á hverfisgötu kl 11 í fyrramálið fimmtudaginn 24 apríl. þeir eiga að mæta í skýrslutöku kl 11:15 og vilja okkar stuðning. P.S ÞETTA ERU FRIÐSAMLEG MÓTMÆLI VAR TEKIÐ SKÝRT FRAM. bara mæta og sýna stuðning. þeir sem geta póstað þessu inn á sem flest spjöll og síður, endilega gerið það
Title: Re: MÓTMÆLI MÓTMÆLI MÓTMÆLI
Post by: TONI on April 24, 2008, 21:51:01
Sendiði nú mannfíflinu póst og látið skoðun ykkar í ljós, það er meðal annars ein leiðinsem og að mæta og standa með þeim sem eru með hnetur á milli lappana og þora. http://www.bjorn.is/
Title: Re: MÓTMÆLI MÓTMÆLI MÓTMÆLI
Post by: Jón Þór Bjarnason on April 24, 2008, 22:43:33
Það var ekkert hallærislegra en að lesa póstana sem Björn Blöndal hefur fengið.
Þeir sem geta ekki skrifað annað en DREPTU ÞIG HÁLFVITI ÞINN OG VONA AÐ ÞÚ DEYIR KVALARFULLUM DAUÐDAGA.
Fyrirgefið en ég bara get ekki séð að þetta geti gert neitt gott fyrir okkur.
Title: Re: MÓTMÆLI MÓTMÆLI MÓTMÆLI
Post by: TONI on April 24, 2008, 23:24:46
Ég sendi honum póst og hann svara mann fíflið en Guð minn góður hvað það vantar mikið í kollinn á honum, hann virðist ekki sjá vandann. Menn eiga að sjálfsögðu að spara stóru orðin, manndrápshótanir og annað slíkt er líklega ekki leiðin til að ná fram úrbótum en með því að gera ekki neitt geta menn gengið að því vísu að það verður ekki gert neitt í málunum, það er pottþétt mál. Ég get ekki skilið áhugaleysi manna mér á þessu spjalli á því að fá þessa hluti í lag, það er nú ekki á það bætandi að bensínið sé á þessu verði ofan á allar aðrar hækkanir.
Title: Re: MÓTMÆLI MÓTMÆLI MÓTMÆLI
Post by: Kristján Skjóldal on April 26, 2008, 13:34:43
þarf 3 þræði um Mótmæli #-o
Title: Re: MÓTMÆLI MÓTMÆLI MÓTMÆLI
Post by: Dodge on April 26, 2008, 14:14:17
Er hann nú ekki bjarnason félaginn?

- Björn Bjarnason!! hvað á þetta að þíða, þegar ég var á þínum aldri þá var ég 12 ára!! :)

- Kaffibrúsakarlarnir