Kvartmílan => Bílarnir og Græjurnar => Topic started by: Burt Reynolds on April 22, 2008, 20:08:26
-
Þessi er kominn inní skúr. Lét loks verða af því að kaupa bílinn sem mig hefur langað í sl 20 ár eða svo. Hvers vegna veit ég ekki - bara eitthvað Mojo sem þessi árgerð af Trans Am hefur (kannski er það logandi hænan á húddinu?) Konan ekki að skilja þetta en svo lengi sem hún skilur ekki við mig er þetta í lagi. Þetta er sumsé 1981 Trans Am Turbo, eyddi mestum hluta ævinnar í Californiu og gott eintak að innan sem utan. Hann fer úr skúrnum við hátíðleg tilefni s.s. þegar sólin lætur sjá sig (sumsé tvisvar á ári).
Bíllinn er að mestu í upprunalegri mynd en var sprautaður fyrir nokkrum árum. Ég ætla hlífa honum við nitro og öðru sulli en reyna fremur að halda honum sem næst upprunalegri mynd. Það verður elegant að fara á rúntinn og reykspóla ofan í allar þessar twin og rafmagnsdruslur í umferðinni. Nú er bara spurning hvort ekki sé starfræktur Firechicken klúbbur á klakanum?
(http://i285.photobucket.com/albums/ll60/MOTOXLEO/Picture015-1-2-1.jpg)
(http://i285.photobucket.com/albums/ll60/MOTOXLEO/TA-1.jpg)
-
Glæsilegt!
Það hafa verið hugmyndir um að stofna Pontiac klúbb, hvernig sem það fer...
-j
-
flott hjá þér en ég væri til í að sjá betri myndir :)
-
Já, gaman væri að komast í samflot með álíka Trans Am sérvitringum og maður sjálfur er. Massa flottir bílar. Smelli inn nýjum myndum næst þegar ég tek drekann út úr skúrnum. En hér er Pontiac sjónvarpsauglýsing frá 1980. Það er yndislegt að hlusta á þulinn í myndbandinu fara með heilaga Trans Am ritningu.
http://youtube.com/watch?v=NksrfEq2KQI
(http://i285.photobucket.com/albums/ll60/MOTOXLEO/Turrrbo.jpg)
-
Bara flottur bíll 8-)
Það verða teknir nokkrir Trans Am rúntar í sólinni í sumar \:D/
-
Jebbs. Djöfull flott að rúnta með þínum svarta í sumar. Bara spól. Heyrðu Spratz, áttu ekki mynd af bílnum?
En vita menn annars hvað er að frétta af Sódóma Reykjavík Transanum?
-
NEIHHHHHHHH!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!EKKI AFTUR;;; :smt021 :smt021 :smt021 :smt021 :smt021 :smt021 :smt021 :smt021
-
Þessi helvítis Sódóma trans er löngu brunninn og stóð við einhvern sveitabæ hjá Höfn.
Ég vona svo innilega að það sé búið að farga þessu helvítis hræi svo að það þurfi ekki að tala meira um það.
Djöfull er þetta orðið þreytt umræðuefni ! :smt011
-
Ég sé að þessi blessaða Sódóma drusla vekur sterkar tilfinningar. Sæll. Kannski þessi bíll sé hinn íslenski Christine, neitar að drepast. Rís alltaf aftur upp frá dauðum "NEIHHHHHHHH!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!EKKI AFTUR".......
-
Hvaða máli skiptir þó einhver sódómu hræ sé ónýt eða ekki, menn hljóta að geta spurt og fengið svar en ekki bara hraun yfir sig :roll:
Bestu kveðjur
Karl Magnús
-
http://www.kvartmila.is/smf/index.php?topic=22261.60
-
þetta er eins og fá annan Sódóma link (http://www.zwatla.com/emo/2007/gros-emoticones-002/471.gif)
-
(http://www.zwatla.com/emo/2007/msn/015.gif)
-
værir gaman að fá að sá svona venjulegar myndir
(http://i285.photobucket.com/albums/ll60/MOTOXLEO/Picture001-2.jpg)
(http://www.zwatla.com/emo/2007/gros-emoticones-002/227.gif)
-
þetta er eins og fá annan Sódóma link (http://www.zwatla.com/emo/2007/gros-emoticones-002/471.gif)
Rólegur í ruglinu. Þetta er enginn sódómu þráður.
Hérna bætis einn nýr spjallverji á þetta borð og er að kynna nýinfluttan flottan Trans Am.Af hreinum áhuga spyr um afdrif Sódómu bílsins og þá verður allt vitlaust. Menn geta bara sleppt því að commenta ef þetta er svona viðkvæmt umræðuefni.
Sættið ykkur bara við það að það verður alltaf af og til spurt um þennan blessaða sódómu bíl af nýjum spjallverjum, skil ekki hvað sé svona voða slæmt við það.
-
það verður kannski ekki allt vitlaus bara smá skot þennan blessaða bíll (http://www.zwatla.com/emo/2007/3D-blue/001.gif)
Og alltaf gott að fá nýtt blóð og nýja spjallverja
sem er líka kominn með nýja Trans Am til að ræða um
og verður gaman að sjá myndir