Kvartmílan => Bílarnir og Græjurnar => Topic started by: Anton Ólafsson on March 27, 2008, 16:58:40

Title: Í portinu,
Post by: Anton Ólafsson on March 27, 2008, 16:58:40
Það streyma fákarnir til landsins.

Þessi var í Samskip í byrjun mánaðarins.




(Hallmar (Grill) ber þú ábyrgð á þessum?)
(http://farm3.static.flickr.com/2194/2366908540_555f3d465b.jpg)

(http://farm4.static.flickr.com/3090/2366079245_f1906d8a03.jpg)
Title: Í portinu,
Post by: Boggi on March 27, 2008, 19:17:35
Sæll Anton.

Ég veit ekkert um Cadillac-inn en hann virðist vera mjög fallegur!

Neðri bíllinn er Chrysler New Yorker Brougham St.Regis árgerð 1976.
Bíllinn er með 440cu. og er ekinn 68 þús. mílur. Fyrri eigendur eru tveir fullorðnir menn.

Pabbi keypti bílinn í desember síðastliðinn en hann kom ekki fyrr en fyrir tveimur vikum og var leystur út á mánudaginn fyrir viku.

Kv. Boggi
Title: portið
Post by: GTA on March 28, 2008, 09:53:56
Sælir, sýnist efri bíllinn vera einn að mörgum sem Jón (Jon´s garage) er með puttana í.
Title: Í portinu,
Post by: TONI on March 29, 2008, 02:13:56
Er þetta ekki 1958 árgerð af Cadillac, sýnist að þetta sé eins bíll og Pabbi er að gera upp og er að spá í að selja.....ekki gott :D