Kvartmílan => Almennt Spjall => Topic started by: Moli on March 17, 2008, 12:01:33
-
:shock: --> http://www.mbl.is/mm/vidskipti/gengi.html
...og ég er að fá dót frá USA sem ég keypti í Nóvember þegar dollarinn var í 60 kalli! :?
-
ÁÁáááááááTSSSSS!!! sama hér !! :shock:
-
Og var það dót ekki sett á vísa á þeim tíma? Þá færðu gengið sem var skráð þann dag.
-
:evil: :evil: þetta er nú meira ruglið !
-
fer ekki samt tollurinn og flutningur eftir genginu þegar draslið er tollað?
-
Það kemur nýtt tollgengi í hverjum mánuði, skiptir engu hvenær þú keyptir dótið.
Tollgengi 17.3.2008
Heiti Gjaldmiðill Tollgengi
USD Bandaríkjadalur 65,46
-
ég var að tala um verðið á keyptum hlut úti fær væntanlega gengið þann dag sem það var fært á visa. En svo er kannski annað mál með hvað tollurinn gerir eins og þú segir einar
-
Það er rétt, ef þetta hefur verið verslað fyrir X tíma síðan reiknast verðið á þáverandi gengi, tollgengið hinsvegar er alltaf breytilegt.
-
Það kemur nýtt tollgengi í hverjum mánuði, skiptir engu hvenær þú keyptir dótið.
Tollgengi 17.3.2008
Heiti Gjaldmiðill Tollgengi
USD Bandaríkjadalur 65,46
Reglurnar voru að breytast og nú er daggengi. Þannig að hækkunin núna skilar sér í nýju tollgengi á morgun.
-
Síðast þegar ég vissi breytist tollgengi mánaðarlega, ekki daglega.
-
þetta hefur greynilega verið einhvað ford dót úr því það var svona lengi á leiðinni híhíhí
-
Svo þarf auðvitað að hækka bensínið líka
Heimsmarkaðsverð á hráolíu hefur lækkað um 3 Bandaríkjadali í viðskiptum í dag.
Snemma í morgun hækkaði verð og fór nærri 112 Bandríkjadölum á tunnuna á mörkuðum í Asíu en eftir að markaðir opnuðu í Bandaríkjunum í morgun hefur verðið lækkað aftur.
Þegar þetta er skrifað er verð á olíu 107,12 Bandaríkjadalir á mörkuðum í New York og 103,12 dalir á mörkuðum í London.
Bensínverð hækkar á Íslandi
Þá hefur N1 hækkað verð á bensíni um 3,6 krónur í dag og er verð á bensínlítra nú 152,9 krónur og 147,9 í sjálfsafgreiðslu. Þá hækkaði einnig verð á dísilolíu og kostar lítrinn nú 162,90 en 157,90 krónur í sjálfsafgreiðslu.
Olís og Skeljungur hafa ekki tekið ákvörðun um bensínverð í dag.
-
Varðandi bensínhækkunina rakst ég á mjög spes mynd áðan..
Tunnan er búin að hækka heeeelvítið mikið undnanfarin ár
(http://upload.wikimedia.org/wikipedia/en/2/2f/Oil_Prices_Medium_Term.png) :shock:
-
Síðast þegar ég vissi breytist tollgengi mánaðarlega, ekki daglega.
Jamm, það var svoleiðis, mig minnir að breytingin hafi tekið gildi 1. febrúar síðastliðinn.
-
Bara benda á að tollgengið er ennþá það sama :wink:
-
Bara benda á að tollgengið er ennþá það sama :wink:
Skv. www.tollur.is:
18.03.2008 - USD Bandaríkjadollar $ 75,0600
17.03.2008 - USD Bandaríkjadollar $ 69,9500
-
Tollgengi 18.3.2008
Heiti Gjaldmiðill Tollgengi
USD Bandaríkjadalur 65,46
Greinilega eru menn ekki sammála með gengið.
-
Tollgengi 18.3.2008
Heiti Gjaldmiðill Tollgengi
USD Bandaríkjadalur 65,46
Greinilega eru menn ekki sammála með gengið.
Ég veit ekki hvar þú færð tollgengið en skv. www.tollur.is og tollakerfi vistað hjá Skýrr (og gjöld eru álögð eftir því) þá er gengið það sem að ég skrifaði.
-
Þetta er nú bara af Glitni....
-
Þetta er nú bara af Glitni....
Get vel trúað þeim til að hafa gleymt að breyta forritunum hjá sér en hvað sem því líður þá er daggengi staðreynd við tollafgreiðslu.
-
Var að fá pakka áðan sem virðist hafa komið til landsins 13.03.2008.
Þá er tollgengið 66,45000. Eru menn með pakka frá öðrum dögum til að sjá breitingu :?:
-
Var að fá pakka áðan sem virðist hafa komið til landsins 13.03.2008.
Þá er tollgengið 66,45000. Eru menn með pakka frá öðrum dögum til að sjá breitingu :?:
Sést allt á www.tollur.is :
11.03.2008 - 68,41
12.03.2008 - 68,02
13.03.2008 - 68,19
14.03.2008 - 70,25
15.03.2008 - 69,95
16.03.2008 - 69,95
17.03.2007 - 69,95
18.03.2008 - 75,06
Gengið 66,45 var síðast 4. mars svo að sendingin hlýtur að hafa verið tollafgreidd þá.
-
NONNI þessi tolla mál eru nú eitthvað skrítin, er með aðra skýrslu frá 13.03 þar er gengið 68.19000 og passar við það sem þú segir.
Pakkinn sem ég fékk áðan var greiddur úti 08.03, gæti verið að tollurinn/pósturinn havi ekki nent að breita tollgenginu af því að það var bara Ö3 VSK 7 % Spurning. :?:

Tollurinn er með rétt gengi í sinni álagningu. Þá er spurning hvort að pakkinn hafi í raun verið afgreiddur fyrr í gegnum tollinn þó pósturinn hafi ekki skilað honum af sér fyrr en seinna.
En kannski hefur pósturinn ekki verið búinn að uppfæra gengið í sínum tölvum (og þá rukkar pósturinn rangt inn, tollurinn gefur ekkert eftir svo að pósturinn væri í raun að tapa).
-
Varðandi bensínhækkunina rakst ég á mjög spes mynd áðan..
Tunnan er búin að hækka heeeelvítið mikið undnanfarin ár
(http://upload.wikimedia.org/wikipedia/en/2/2f/Oil_Prices_Medium_Term.png) :shock:
Ekki man ég eftir svona bullandi lækkun á (milli 2006-2007)......
Svo það sem er FARANLEGT í þessu bensín rugli er að þeir heimsmarkaðsverðið hækkar þá hækka þeir hér heima nokkrum klukkutimum seinna....?? HÆKKA OLIU OG BENSIN SEM VAR KEYPT AÐ LÆGRA VERÐI!!! helvitis fávitar....
Þetta er eins og ef ég ætti búð með risa lager og allar vörunar keypti ég á genginu "60kr" en svo td. mánuðir seinna hækkar gengið í 70kr og þá um leið hækka ég verðið hjá mér og sel lager draslið á 10kr hærra gengi en ég keypti á.....
-
Þótt að gengið hafi verið eitthvað ákveðið þegar síðasti farmur kom, þá er ég nokkuð viss um að þeir staðgreiða olíuna ekkert á þeim tímapunkti sem hún kemur, þessvegna geta gengisbreytingar haft áhrif á verð á olíu sem er þegar búið að dæla inn í landið, því þeir eru ennþá að borga fyrir hana.
-
DariuZ, við höfum það nú samt gott hér heima, þýðir náttúrulega lítið að bera saman bensínverð á íslandi og í USA.. Sem dæmi eru hér nokkur lönd sem líterinn er dýrari en á Íslandi en samt lægra kaup, ódýrara að flytja bensínið þangað o.fl..
Belgía
Finnland
Þýskaland
Holland
Ítalía
Frakkland
Portúgal
Svíþjóð
England
í öllum þessum löndum er bensínið dýrara en á íslandi :lol:
Bensín er bara eitt af því sem allir væla yfir.. Það var líka vælt yfir því þegar ég fékk bílpróf og bensínið kostaði 75 kall, það var ALLT of dýrt þá :shock:
-
http://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/2008/03/19/bensin_dyrara_i_evropu/
-
ég á óútleyst dót í camaroinn minn fyrir 2500$ :(
-
Bara benda á að tollgengið er ennþá það sama :wink:
Ertu alveg viss?
Quote af tollur.is
Reglur um gildistíma tollafgreiðslugengis sem nota skal við tollafgreiðslu tollskýrslu vörusendingar hjá tollstjóra:
Frá 1. febrúar 2008 gildir, skv. breytingu á tollalögum og breytingu á 71. gr. reglugerðar nr. 1100/2006 um vörslu og tollmeðferð vöru, eftirfarandi við tollafgreiðslu inn- og útfluttra vara.
Notað er miðgengi (ekki kaup og sölugengi), sem merkir að sama gengistafla (gengi) er notuð fyrir inn- og útflutning. Athuga þó að ekki er allar sömu myntir skráðar í gengistöflu útflutnings og eru í gengistöflu innflutnings.
Ennfremur er nýtt gengi skráð á hverjum virkum degi skv. eftirfarandi reglum: Við tollafgreiðslu sendinga á degi hverjum skal ákvörðun tollverðs í tollskýrslum byggð á tollafgreiðslugengi eins og opinbert viðmiðunargengi, miðgengi, er skráð af Seðlabanka Íslands síðasta virkan dag á undan. Þetta merkir að gengið sem Seðlabanki skráir rétt fyrir hádegi (oftast upp úr kl. 11) á hverjum virkum degi gildir frá og með deginum eftir og út næsta virka dag. Dæmi: Gengi Seðlabanka á hádegi á mánudegi gildir allan þriðjudaginn (frá miðnætti til miðnættis), gengið sem bankinn skráir á þriðjudegi gildir allan miðvikudaginn o.s.frv. Frídagar virka á eftirfarandi hátt: Gengi Seðlabanka sem kemur t.d. á hádegi á föstudegi gildir laugardag, sunnudag og mánudag. Sérregla um útflutning: Sömu reglur gilda og um innflutning nema ekki skal nota nýrra gengi en í gildi er á brottfarardegi flutningsfars ef tollskýrsla er gerð og tollafgreidd eftir brottfarardag; þetta er sama regla og var í gildi fyrir 1. febrúar 2008. Um hraðsendingar (HS sendingar) og bráðabirgðatollafgreiðslu inn- og útflutnings gilda að öðru leyti sömu reglur og giltu fyrir 1. febrúar 2008. - Gengi AUD, HKD, INR, NZD, PLN, SGD, THB og TWD mynta er ekki hluti af opinberu gengi Seðlabankans en miðast við miðgengi þeirra eins og það er birt á á vef Seðlabanka Íslands.
-
hringdi til að vera viss og júbb.. alltaf gengið frá seðlabanka síðan í gær.. uppfært um miðnætti..
-
DariuZ, við höfum það nú samt gott hér heima, þýðir náttúrulega lítið að bera saman bensínverð á íslandi og í USA.. Sem dæmi eru hér nokkur lönd sem líterinn er dýrari en á Íslandi en samt lægra kaup, ódýrara að flytja bensínið þangað o.fl..
:shock:
Trúi ekki að þú sért að segja þetta þegar ALLIR aðrir er að brjálast yfir þessu.. :lol:

Gleymdir þessu í quoteinu..
Belgía
Finnland
Þýskaland
Holland
Ítalía
Frakkland
Portúgal
Svíþjóð
England
í öllum þessum löndum og fleirum er bensínið dýrara en á íslandi
Það er allt dýrt, mjólk, brauð, ostur og allt.. Ekki bara bensínið.. :wink: En fólk horfir mikið á bensínið þar sem það eitt og sér er orðinn helvíti hár gjaldaliður per mánuð.. EN hins vegar hefur allt hitt hækkað sóðalega líka.. Einu sinni kostaði 2ja lítra kók undir 200 kall þar sem það var dýrast...
-
Valli er ekki timi til kominn að KK seti upp bensinstöð upp á braut þá mundi gróðinn fara i goð málefni :D
-
Valli er ekki timi til kominn að KK seti upp bensinstöð upp á braut þá mundi gróðinn fara i goð málefni :D
Úff já hvernig væri það 8) :lol:
-
Bandaríkjadalur 77,65
uff ekki gott
-
greinilega ekki allir samála um gengi dollarans :
Glitnir - 78,33 kr-
kaupþing - 79,96 kr-
BYR - 78.17 kr-
Landsbankinn - 78,30 kr-
:?