Kvartmílan => Almennt Spjall => Topic started by: Pababear on February 23, 2008, 11:43:59
-
Sælir ég hef verið að skoða inná síðum annarra bílaklúbba og annað og séð að þeir eru að prenta á límmiða, boli, derhúfur, húfur og annað dót með nöfnum klúbbanna og framvegis en væri þetta ekki ráð að styrkja KK lítilega að prenta boli og annað með merkjum klúbbsins til að aðstoða hann með fjárhagslegu stöðuna og til að auglýsa klúbbinn einnig í leiðinni til að fá meira af fólki í hann?
Sniðugt væri til dæmis að prenta boli með KK merkinu svo bílmerki á eftir hvað menn vilja eins og chevy menn væru með chevi merkið á bakinu og kk merkið að framan eða öfugt og svo ford menn svipað og mopar og svo framvegis......
Ef menn myndu leggja í púkk með þetta þá væri þetta góður styrkur fyrir klúbbinn og auglýsing í leiðinni!!
Ég myndi persónulega fá mér alla vega 2-3 boli og svipað handa stráknum mínum!!
Kv Ómar K.
-
kk voru með svona boli
(http://i205.photobucket.com/albums/bb183/1Belair/Alli.jpg)
já mig mundi vanta um 3 og 1 derhúfu
-
Er það ekki málið að ýta undir stjórnina til að gera þetta þar sem það er fullt af fólki sem er til að vera með í svona þó það sé meira áhorfendur en keppendur.... og svo að fá fólk til að kvitta hérna undir til að sýna áhuga í verki og styrkja klúbbinn og eignast eitthvað sniðugt í leiðinni, jafnvel að selja fyrirtækjum auglýsingablett einhversstaðar til að styrkja þetta ennfrekar!!
-
ég skal taka alveg heilan helling af bolum, húfum og jafnvel peysum ef það yrði 8)
-
það má styrkja þennan klúbb á marga vegu...
Styrktarbeiðni
Hvað er Kvartmíluklúbburinn?
Kvartmíla er kapp tveggja ökutækja úr kyrrstöðu yfir vegalengd fjórðungs úr mílu í beinni línu.
Kvartmíluklúbburinn var stofnaður árið_____ , með þá hugsjón að koma spyrnuakstri úr Hvalfirði og Kúagerði inná lokað afmarkað svæði.
Kvartmílubrautin var lögð árið ____, og var framkvæmdin kostuð nær eingöngu af einstaklingum í klúbbnum.
Ýmsar lagfæringar hafa verið gerðar á og í kringum brautina til að mæta síauknum öryggiskröfum félagsmanna klúbbsins.
• Markmið klúbbsins;
Koma hraðakstri af götum borgarinnar og inná afmörkuð lokuð svæði.
Koma upp aðstöðu til æfingaaksturs við breytileg skilyrði.
Halda keppnir, æfingar og sýningar.
Efla félagsanda fólks með áhuga á öflugum ökutækjum.
• Af hverju KK? Af hverju braut?
KK er eina íþróttafélagið sem stendur fyrir keppnum og æfingum sem fólk getur stundað á sínum eigin ökutækjum, án nokkurra breitinga.
Enginn þarf að efast um gagnsemi lokaðrar brautar fyrir æfingar ökunema og þjálfun neyðarökumanna s.s. lögreglu og sjúkraliðs.
• Starfið hingað til
KK heldur umþb. tíu kvartmílukeppnir ár hvert og tvær sandspyrnur.
KK heldur eina árlega bílasýningu.
KK heldur föstudagsæfingar á kvartmílubrautinni yfir sumartímann.
Ástundun ungra ökumanna á föstudagsæfingum undirstrikar þörfina sem er fyrir alhliða aksturssvæði, en 50 til 70 manns hafa æft sig á hverri æfingu og hafa áhorfendur skipt hundruðum.
Vinna klúbbsins er í einkar góðu samstarfi við lögreglu, sýslumannsembætti og Hafnarfjarðarbæ.
• Styrkur ykkar
Stuðlar að bættri umferðarmenningu.
Gefur lögreglu kost á að æfa og samhæfa aðgerðir gegn vítaverðum akstri.
Eykur skilvirkni í akstri neyðarökutækja, s.s. sjúkraflutninga og hjálparsveita.
Nýtist þeim ungu ökunemum sem geta lært nauðhemlun og almenn viðbrögð við hættum í umferðinni.
• Okkar framlag við þínu framlagi
Helstu fjölmiðlar landsins hafa gert starfsemi klúbbsins góð skil og munu halda því áfram.
Á heimasíðu klúbbsins www.kvartmila.is birtist merki fyrirtækisins.
Á brautarstæði klúbbsins verður merki fyrirtækis sýnilegt beggja vegna brautar.
Stærð merkis fer eftir upphæð styrks og má miða við að ___ þús. krónur séu 100x100 pixlar á www.kvartmila.is og tvö; eins fermetra skilti við brautarstæðið.
•
Á heimasíðu klúbbsins má sjá nánari upplýsingar og myndir um starfsemi og sögu klúbbsins, ásamt dagskrá komandi tímabils.
Með fyrirfram þökk og von um gæfuríkt samstarf
Stjórn klúbbsins
Mika Hakkinen
Warren Johnson
-
Já það er hægt að styrkja hann á marga vegu en fólk er viljugara að styrkja við að fá eitthvað í staðin kaup/kaups eins og sást hvað fólk var duglegt að kaupa björgunarsveita kallana litlu.....
-
já einmitt.
Það hefur verið hægt að kaupa boli í sjoppunni og ýmsann varning tengdann klúbbnum
ég setti inn umræðu um þetta hérna
http://www.kvartmila.is/spjall/viewtopic.php?t=25424
-
var 1 til í fyrra þegar eg kom , hann var ekki í rettir stærð :(
-
Stjórn klúbbsins er búin að fá sent tilboð í boli peysur og fl frá einum aðila
við lögðum inn fyrirspurnir til nokkura aðila í þessum geira um að senda okkur tilboð. Núna er verið að ýta eftir svörum frá hinum.Svo hægt sé að
taka ákvörðun um þetta.
-
:smt041 :smt038 =D>
-
ég væri sko mikið meira en til í boli 8)
-
Gömlu bolirnir voru miklu flottari en þessir flaming gay bolir.
-
Gömlu bolirnir voru miklu flottari en þessir flaming gay bolir.
Sammála því enda er stefnan núna að láta búa til boli sem eru látlausari
-
einhvað í þessum dúr þá :D
(http://i205.photobucket.com/albums/bb183/1Belair/kkbolur2.jpg)
(http://i205.photobucket.com/albums/bb183/1Belair/kkbolur1.jpg)
-
Voru ekki fyrstu bolirnir bara með hvítu logoinu s.s útlínurnar.
Eða er ég í ruglinu bara :lol:
-
Man reyndar ekki hvernig fyrstu bolirnir voru en hugmyndin er að hafa lógó klúbbsins vinstra eða hægra megin framan á bolnum og svo kvartmila .is á bakinu á bolnum. En eins og ég segi þá er þetta bara hugmyndin að því hvernig bolurinn eða peysan gæti verið.Allavega þá viljum við breyta bolunum frá því sem var.
-
ég mundi fá mér alveg 3 boli, 2 peysur og 2 derhúfur alveg klárlega :wink:
En hvað með að fá límmiða til að líma í rúður á bílunum?
-
ég mundi fá mér alveg 3 boli, 2 peysur og 2 derhúfur alveg klárlega :wink:
En hvað með að fá límmiða til að líma í rúður á bílunum?
Límmiðarnir hafa verið til í sjoppuni.
Ef peysunum og bolunum yrði breytt lítillega eins og til stendur mun ég kaupa, ekki spurning.
-
3bolir,3peysur og 3 derhúfur á mig 8) þarf að koma yngstu meðlimunum inní þetta líka :twisted:
-
Þakka fyrir áhugann á bolum og fleiri merktum varningi.
Þetta fer allt í naflaskoðun hjá okkur en ég er þegar búinn að fá eitt tilboð og á eftir að fá staðfestingu um fleiri.
Einnig vil ég minna á sérstakan reikning sem er fyrir frjálsframlög.
Kvartmíluklúbburinn hefur opnað reikning sem er eingöngu fyrir frjáls framlög.
Þeir fjármunir sem koma inn á þennan reikning verða eingöngu notaðir í malbik og steypu upp á kvartmílubraut.
Nú er um að gera og hreinsa sparibaukinn. Peningarnir verða meðal annars notaðir í breikkun kvartmílubrautar og gerð hringakstursbrautar.
Nafn: Kvartmíluklúbburinn
Kennitala: 660990-1199
Reikningur: 1101-05-485719
[/b]