Kvartmílan => Almennt Spjall => Topic started by: 3000gtvr4 on February 20, 2008, 23:20:22
-
Mig vantar að vita hvort það væri í lagi að nota svona búr hjá ykkur í keppni eins og þarna er verið að sýna
http://www.jegs.com/p/Jegster/758645/10002/-1
Ósk um svar/svör
Kveðja Birgir
-
Biggi minn... Er ekki 11 og undir skildugir?...
Luv...
-
Já þau væru lögleg en þetta eru mild steel,ættir að geta fengið þessi búr úr chromemoly sem eru léttar
-
Takk fyrir þetta núna er ég ekki allveg inní þessu en eru chromemoly búr eitthvað mikið léttari????? Eða væri ég að spara mér 0,5kg eða
-
Sælir félagar :)
Sæll Birgir.
Þetta búr sem að Jegs býður upp á er vel yfir þeim kröfum sem að við gerum um búr.
Þau standast líka allar kröfur FIA og NHRA fyrir veltibúr.
Þú getur séð þetta hérna: http://www.nopi.com/nopims/dsp_TC.php?vn=RB01
Kafli 4:10.
Og hérna: http://kvartmila.is/display.php?PageID=4
"Aðalreglur Kvartmíluklúbbsins"
Kafli 4:10.
-
Hvenar er það orðið skylda að hafa búr? Hvað tími setur mörkin?
-
Sælir félagar. :)
Sæll Hrannar.
Það er skylda að vera með veltigrind í öllum bílum sem fara á 11,49sek eða betri tíma, og búrið er síðan skylda í 9,99sek eða betri tíma.
Ef þú ert á blæjubíl þá er grind skylda í 13,90sek og búr í 11,99sek.
Allir sem eru komnir niður fyrir 8,50sek verða að hafa veltibúr samkvæmt stöðlum SFI Foundation fyrir viðkomandi tegund keppnistækis.
-
Takk fyrir þetta núna er ég ekki allveg inní þessu en eru chromemoly búr eitthvað mikið léttari????? Eða væri ég að spara mér 0,5kg eða
Man ekki hver munurinn er en .134 og mót við .085 vegg þar er talsverður munur á þyngd + moly er um 1/3 léttara(minnir mig) og sterkara
-
Ef maður tekur undir 11,49sek.... fær maður þá ekki að taka run nema að það sé komin veltigrind?
Mundi það bara verða þitt seinasta run á brautinni ef maður vildi ekki setja grind í bílinn...?
-
Ef maður tekur undir 11,49sek.... fær maður þá ekki að taka run nema að það sé komin veltigrind?
Mundi það bara verða þitt seinasta run á brautinni ef maður vildi ekki setja grind í bílinn...?
Þannig eru reglurnar.

Já ok... E-h var að segja að maður gæti sagt að maður ætlaði á eitthverjum ákveðnum tíma og e-h... ég skildi hann ekki alveg enda sagðist hann ekki alveg vita þetta nkl... veit ekki meir....
-
Ef maður tekur undir 11,49sek.... fær maður þá ekki að taka run nema að það sé komin veltigrind?
Mundi það bara verða þitt seinasta run á brautinni ef maður vildi ekki setja grind í bílinn...?
Þannig eru reglurnar.
en ef maður hægir á bílnum með að seta t.d FBB í hann fær maður þá að taka run :D
en kvað með æfingar :?:
-
Ef maður tekur undir 11,49sek.... fær maður þá ekki að taka run nema að það sé komin veltigrind?
Mundi það bara verða þitt seinasta run á brautinni ef maður vildi ekki setja grind í bílinn...?
þarf ekki endilega að vera þitt seinasta runn á brautinni ef þú hægir á bílnum þá máttu keyra. Í annan stað gæti það orðið þitt síðasta ef eitthvað kæmi fyrir úti í enda og bíllinn færi útaf á þeim hraða sem fylgir að keyra á um miðjum 11sec.En að topici skoðið þennan þráð hérna mjög fróðleg lesning http://speedtalk.com/forum/viewtopic.php?t=7993&highlight=
-
Sælir félagar. :)
Það hefur nú alltaf verið þumalputtaregla gegnum árin að ef þú ferð undir veltigrindar/búrs-tíma í keppni, þá færðu að klára keppnina, en þarft síðan að vera komin með viðhlítandi öryggistæki í næstu keppni þar á eftir.
Annars fer þetta algerlega eftir keppnisstjóra hverju sinni og hans ákvörðun.
Það skiptir líka máli hversu mikið farið er undir viðmiðunartíma, hvort að það sé 1/100 asti úr sekúndu eða heil sekúnda, Það skiptir miklu mál.
Við þurfum einnig að líta á það að reglur NHRA/IHRA og FIA og síðan SFI, sem að við förum eftir eru reglur um lágmarks öryggi og hver braut getur sett sínar sér reglur sem ber þá að fara eftir. :!:
-
Svo má ekki gleyma því að þessar reglur um grindur og búr eru hraðatengdar líka sem sagt 11.49 eða 192km/klst eftir því hvort kemur fyrr.