Kvartmílan => Aðstoð => Topic started by: trausti on January 10, 2008, 23:02:18
-
okei nú er það þannig að hitamælirinn hjá mér dettur í hug að gera það sem hann vill er samt mest í að hoppa frá eðlilegum hita og svo í botn allt í einu og alveg jafn snögt niður einhvern tíman.
Ég er búinn að vera lesa mér til um þetta og það sem ég hef lesið er minnst á 2 hita nema og að það sé algengt að menn skipti um þennan á vatnsdælunni en ekkert lagist sem er einmitt það sem ég er buinn að gera.
Veit einhver hvar hinn nemin er staðsettur og er það bara eins nemi og þessi á vatnsdælunni
ps:þetta er lt1 úr buick roadmaster
með fyrirfram þökkum Trausti
-
Skynjarinn er á dælunna að framanverðu,you can´t miss it
Búinn að ath allt annað?
-
lýstu þessum vandræðum þínum fyrir okkur í smáatriðum trausti!!!,ef þetta væri Coolant sensorinn famann á vatnsdælunni sem væri að stríða þér eða tengið í hann þá gengi bíllinn hjá þér ekki hálfan snúning eftir að hann næði upp smá hita og kæmist ekki einusinni af stað!!!.kv-TRW
+ það sé yfirleitt einhver bilanakóði inni þá ganga báðar viftur stanslaust í botni,sem þær eiga ekki að gera!.
-
þannig er mál með vexti að ég set í gang og mælirinn er yfirleitt eðlilegur og ég keyri bílinn í svona10-15 mín þá allt í einu dettur honum í hug að fara í botn og kemur check gages svo keyri kannski 10 min í viðbót þá dettur hann niður og svona lætur hann ekki með neinni reglu
og já ég er búinn að skipta um neman framan á vatnsdælunni en ég hef verið að lesa um að það að það séu tveir hita nemar en var ekkert tekið fram hvar sá seinni átti að vera
Kv:Trausti
-
sensorinn fyrir mælirinn er í öðru heddinu, sensorinn í vatnsdælunni er fyrir ecu-ið. ef minnið er ekki að bregðast mér
-
já okei það er flott þakka þér fyrir.
Vitið þið nokkuð hvort þeir eru eins sýndist það nefnilega þegar ég var að skoða þetta á ebay ?
Kv:Trausti
-
nei, þeir eru ekki alveg eins, ég skipti um þennan í heddinu á 96 Firebirdinum mínum og fekk þann sensor bara í bílanaust/n1 á einhvern þúsundkall
-
http://shbox.com/1/temp_sensor2.jpg
Mynd sem sýnir hvar hinn skynjarinn er, tekin undir bílnum..
Slatti af hjálplegum myndum og upplýsingum á:
http://shbox.com/1/4th_gen_tech1.html
-
Ég fór í n1,benna og fleiri staði en þetta var hvergi til ætla að athuga með sambandsleysi á þessu áður en ég panta .
Finnst líklegra að þetta sé sambandsleysi þar sem þetta kemur stundum inn þegar hann skiptir um þrep fer í holu eða ´þegar álíka högg koma á bílinn
Þakka ykkur fyrir þessar upplýsingar
Kv:trausti
-
Ég fór í n1,benna og fleiri staði en þetta var hvergi til ætla að athuga með sambandsleysi á þessu áður en ég panta .
Finnst líklegra að þetta sé sambandsleysi þar sem þetta kemur stundum inn þegar hann skiptir um þrep fer í holu eða ´þegar álíka högg koma á bílinn
Þakka ykkur fyrir þessar upplýsingar
Kv:trausti
-
Benni getur pantað þetta fyrir þig..
Ég keypti hitaskynjara þar fyrir stuttu, kostaði um 2-3þús. man ekki nákvæmlega