Kvartmílan => Leit að bílum og eigendum þeirra. => Topic started by: hilmar on December 26, 2007, 14:13:22

Title: Pontiac Lemans 350 '69
Post by: hilmar on December 26, 2007, 14:13:22
Meira gamalt, núna Lemans ´69 sem ég átti, myndaður með ´68 GTO sem félagi minn átti. Myndir teknar sennilega 1979 og sú svarthvita á sýningu KK í Húsgagnahöllinni (bíllinn er með stýrið v.megin, myndin er öfug). Lemansinn var upphaflega dökkgrænn með græna innréttingu.  Það var griðarlega vinsælt á þessum árum að mála strípur uppúr því sem maður fann í amrískum blöðum og mig minnir að þessi skelfing sé úr gömlu Car Craft blaði.  GTOinn er sá sem Rudolf reif og eru myndir af honum inni á vef Mola.  Veit einhver hvað varð um þann röndótta?
Title: Pontiac Lemans 350 '69
Post by: Kiddi on December 26, 2007, 16:07:57
Meira svona.... :)  :)

PS. hef ekki hugmynd um randafluguna en staðfesti þetta hjá þér með bláa...