Kvartmílan => Leit að bílum og eigendum þeirra. => Topic started by: Ramarinn on November 27, 2007, 12:39:46

Title: Mercury Cyclone
Post by: Ramarinn on November 27, 2007, 12:39:46
veit einhver hvort að það sé hægt að fá þennan til kaups langar að gera hann upp eins og hann var í denn
Title: Mercury Cyclone
Post by: edsel on November 27, 2007, 13:14:50
er þetta á Ysta-Felli?
Title: Mercury Cyclone
Post by: Packard on November 27, 2007, 14:30:13
Nei,hjá fornbílageymslunum við Esjumel.Held að hann sé ekki til sölu þessi
Title: Mercury Cyclone
Post by: ljotikall on November 27, 2007, 18:15:59
frændi minn a willys-inn þarna i bakgrunni 8)  liggaliggalái... en annars er þetta ekki "pioneer" cyclone-inn???
Title: Mercury Cyclone
Post by: motors on November 27, 2007, 18:20:56
Passar,big block 429, flottur vagn.
Title: Mercury Cyclone
Post by: Ramarinn on November 27, 2007, 19:14:05
ég veit ekki hvar vélin er hún er ekki í bílnum á að vera 429 cobra jet
Title: Mercury Cyclone
Post by: JONNI on November 27, 2007, 20:31:30
Hvaða gersemis hásing er þetta í bakgrunninum...........Anton einhver saga á bakvið hana?? :lol:  :lol:  :lol:
Title: Mercury Cyclone
Post by: Kiddicamaro on November 27, 2007, 20:35:24
er þetta ekki undan ford vörubíl 36 eða 37 mótelið sem Gvendur í Grafningi átti hér um árið :?:
Title: Mercury Cyclone
Post by: ljotikall on November 27, 2007, 22:30:32
hann hefur nu munað sinn fífil adeins flottari
(http://www.bilavefur.net/album/albums/uploads/myndaalbum/ford/374.jpg)
Title: Mercury Cyclone
Post by: sveri on November 27, 2007, 22:39:14
hvernig stendur á því að svona flottur bíll eins og þessi og svo margir aðrir enda svona? inn í skemmu þar sem max 10 íslendingar vita af honum? grotnar þar niður í rólegheitunum og oft einhver afdala bóndi og þverhaus á  og neitar að selja ? segist ætla að gera upp og gerir aldrei neitt?? hvað ætli það hafi margir fallegir bílar farið í ruslið út af svoleiðis ...


ATH ég er alls ekki að segja að þetta sé tilfellið með þennan bíl ... bara almennt.. þetta var greinilega glæsilegur bíll og átti ekki að enda svona :( .. má samt vel vera að einhver höfðingi sé að fara að byrja a þessum  og að gera hann geðveikann aftur :)   veit það ekkert :)

bara svo sorglegt hvað margir bílar hafa endað illa út af eh þverhausum
Title: Mercury Cyclone
Post by: m-code on November 27, 2007, 22:45:24
Þetta er klikkaður bíll og það þarf að koma þessum bíl í lag.
Title: Mercury Cyclone
Post by: Gummari on November 27, 2007, 23:37:28
flottur bíll og má hann nú samt eiga það sá sem á þennan að hann er búinn að varðveita hann vel hann stendur allaveganna í stað ogskemmist ekki á meðan en er ekki allt til sölu fyrir réttan pening menn eiga bara fara beint í manninn ef alvöru áhugi er fyrir hendi
Title: Mercury Cyclone
Post by: Packard on November 27, 2007, 23:59:55
Quote from: "sveri"
hvernig stendur á því að svona flottur bíll eins og þessi og svo margir aðrir enda svona? inn í skemmu þar sem max 10 íslendingar vita af honum? grotnar þar niður í rólegheitunum og oft einhver afdala bóndi og þverhaus á  og neitar að selja ? segist ætla að gera upp og gerir aldrei neitt?? hvað ætli það hafi margir fallegir bílar farið í ruslið út af svoleiðis ...


ATH ég er alls ekki að segja að þetta sé tilfellið með þennan bíl ... bara almennt.. þetta var greinilega glæsilegur bíll og átti ekki að enda svona :( .. má samt vel vera að einhver höfðingi sé að fara að byrja a þessum  og að gera hann geðveikann aftur :)   veit það ekkert :)

bara svo sorglegt hvað margir bílar hafa endað illa út af eh þverhausum


Held að hann grotni ekki mikið í svona upphitaðri skemmu eins og hann er í núna.Er þó allavegana í höndum manns sem passar hann og gerir hann upp einn daginn.
Title: Mercury Cyclone
Post by: Ramarinn on November 28, 2007, 00:27:25
Veit enginn hver á þennan bíl ef ég væri ekki útá sjó þá væri ég búinn að fynna hann og tala við hann langar nefnilega mikið af fá að gera hann upp frekar en að kaupa annan að utan.
Title: Mercury Cyclone
Post by: Packard on November 28, 2007, 15:09:21
Af hverju viltu frekar gera þennan upp heldur en að kaupa bíl í toppstandi úti ?
Title: Cyclone
Post by: Ramarinn on November 28, 2007, 15:24:10
það er saga á bakvið þennan bíl hérna heima og það er betra að varðveita hana heldur en að kaupa eitthvað nýtt.ekki það að það verði ekki gert við bílinn þó að ég eignist hann ekki en þá langar mér bara að eiga þennan bíl.ég er með hann á heilanum í langan tíma og ég á efn á að gera hann upp núna og aðsöðu svo það er að hrökkva eða stökkva.
Title: Mercury Cyclone
Post by: maxel on November 28, 2007, 16:32:59
þessi bíll er nú bara í nokkuð góðu standi meðan við marga aðra sem hafa staðið
Title: Re: Cyclone
Post by: Packard on November 28, 2007, 17:53:46
Quote from: "Ramarinn"
það er saga á bakvið þennan bíl hérna heima og það er betra að varðveita hana heldur en að kaupa eitthvað nýtt.ekki það að það verði ekki gert við bílinn þó að ég eignist hann ekki en þá langar mér bara að eiga þennan bíl.ég er með hann á heilanum í langan tíma og ég á efn á að gera hann upp núna og aðsöðu svo það er að hrökkva eða stökkva.


Þú átt EP
Title: sá græni
Post by: Guðmundur Björnsson on November 28, 2007, 21:43:42
Sælir félagar,
Maður hefur nú klappað þessum aðeins í gamla daga og sitið í hjá GK.
Hvað er hann búinn að standa lengi í fornbílageymsluni 20 ár eða meira?
Hann er ábygilega ekki mikið keyrðu,gaman væri vita hvað mælirin stæði í.Var hann ekki keyrður niður tröppur og hvaðeina í eyjum ca 83 og eitthvað skemmdur í þeim æfingum.
Hann er greinilega vélarlaus og hvar er vélinn? aftur skotti.
Það vantar alla listana á hliðina á honum gæti trúað að það væri erfitt að
fá þá,en þetta er (var)flottur bíll og gaman fá á götuna aftur.
Title: Mercury Cyclone
Post by: Anton Ólafsson on November 28, 2007, 21:53:31
Hann hefur ekki verið á númmerum síðan 18.6.1983
Title: forvitinn....
Post by: Guðmundur Björnsson on November 28, 2007, 22:07:44
Smá forvitni,
ert þú eigandinn Sigurbjörn?
Title: Mercury Cyclone
Post by: Packard on November 29, 2007, 00:00:52
Nei,ég á ekki þennan bíl.Bara oft dáðst að því að einhver skyldi hafa sett hann í góða geymslu og varðveitt.Væri örugglega löngu ónýtur annars eins og margir aðrir
Title: Mercury Cyclone
Post by: burgundy on November 29, 2007, 15:32:57
Quote from: "Packard"
Nei,ég á ekki þennan bíl.Bara oft dáðst að því að einhver skyldi hafa sett hann í góða geymslu og varðveitt.Væri örugglega löngu ónýtur annars eins og margir aðrir


Eða nýuppgerður  :wink:
Title: Mercury Cyclone
Post by: sveri on November 29, 2007, 17:54:41
ef ég þyrfti að veðja.. .þá myndi ég setja mína pen á það sem Sigurbjörn sagði :)