Kvartmílan => Aðstoð => Topic started by: edsel on November 02, 2007, 20:15:20

Title: Artic Cat Wildcat 1989
Post by: edsel on November 02, 2007, 20:15:20
þegar snjórinn kom þá var þotið á sleða, en mér finnst hann koka svo rosalega þegar maður gefur honum í og tekur að stað, hann reykir líka eins og það sé kviknað í honum, er hann kanski soldið stirður eða er eitthvað að?
ps: það er ekkert langt síðan blöndungarnir og lofthreinsarinn voru tekinn í gegn
Title: Artic Cat Wildcat 1989
Post by: Kristófer#99 on November 02, 2007, 23:02:41
Gætir þurft að hita sleðan,
Kv Kristo#99
Title: Artic Cat Wildcat 1989
Post by: Gulag on November 03, 2007, 00:22:22
er hann með sjálfvirkan olíublandara?
ef svo er, þá er hann eitthvað bilaður eða vanstilltur.

Ef þú blandar olíunni í bensínið, þá ertu sennilega að blanda of mikilli olíu í bensínið.  minnir að hlutföllin eigi að vera 1:30, en aðeins misjafnt eftir olíum.
Title: Artic Cat Wildcat 1989
Post by: edsel on November 03, 2007, 01:15:27
sleðinn er með sjálfblandara, hvernig stillir maður hana og hver eiga hlutföllinn að vera?
Title: Artic Cat Wildcat 1989
Post by: Gulag on November 03, 2007, 09:54:30
man ekki alveg hvernig þetta er í þessum sleða, sennilegast er barki sem togar í olíublandarann, prófaðu að slaka aðeins á barkanum.

En eins og Kristó segir, hitaðu sleðann fyrst og sjáðu hvort þetta hætti..
Title: Artic Cat Wildcat 1989
Post by: edsel on November 03, 2007, 11:03:45
láta hann ganga eða?
Title: Artic Cat Wildcat 1989
Post by: Kristófer#99 on November 03, 2007, 11:37:49
Þú getur haldið honum uppi að aftan svo að beltið snerti ekkert jörðina og gefið honum vel inn i sma tima kannski ca 3-4 prófaðu það
Title: Artic Cat Wildcat 1989
Post by: Kristján Skjóldal on November 03, 2007, 11:42:46
[-X Kristófer svona gerir maður ekki
Title: Artic Cat Wildcat 1989
Post by: Robbi on November 03, 2007, 12:17:59
Ef þú tæmdir ekki undan toronum(blöndungunum) síðasta vor er nokkuð líkleg að það þurfi að hreinsa þá  hreinsa út gamla bensínið og setja nýtt á svo er gott að snúa mótornum nokkra hringi áður enn startað er með látum ein-tvo oliudropa fyrst í kertagatið og þá ertu nokkuð góður :wink:
Title: Artic Cat Wildcat 1989
Post by: edsel on November 03, 2007, 14:54:25
Quote from: "Robbitoy"
Ef þú tæmdir ekki undan toronum(blöndungunum) síðasta vor er nokkuð líkleg að það þurfi að hreinsa þá  hreinsa út gamla bensínið og setja nýtt á svo er gott að snúa mótornum nokkra hringi áður enn startað er með látum ein-tvo oliudropa fyrst í kertagatið og þá ertu nokkuð góður :wink:

taka kertin úr og láta 1-2 olíu dropa oní báða sílendrana?
hvernig olíu? 2T eða smur olíu?
Title: Artic Cat Wildcat 1989
Post by: Robbi on November 03, 2007, 15:36:53
Quote from: "edsel"
Quote from: "Robbitoy"
Ef þú tæmdir ekki undan toronum(blöndungunum) síðasta vor er nokkuð líkleg að það þurfi að hreinsa þá  hreinsa út gamla bensínið og setja nýtt á svo er gott að snúa mótornum nokkra hringi áður enn startað er með látum ein-tvo oliudropa fyrst í kertagatið og þá ertu nokkuð góður :wink:

taka kertin úr og láta 1-2 olíu dropa oní báða sílendrana?
hvernig olíu? 2T eða smur olíu?


Skiptir ekki öllu bara gera þetta áður en byrjað er að starta ég notaði síðast 2-t :D
Title: Artic Cat Wildcat 1989
Post by: edsel on November 03, 2007, 15:44:33
prófa þetta takk fyrir
Title: Artic Cat Wildcat 1989
Post by: Kristófer#99 on November 03, 2007, 19:11:33
Quote from: "Kristján Skjóldal"
[-X Kristófer svona gerir maður ekki


Title: Artic Cat Wildcat 1989
Post by: Halldór H. on November 05, 2007, 23:49:29
þarf ekki bara að snúa úr honum skítinn :D
Title: Artic Cat Wildcat 1989
Post by: Gulag on November 05, 2007, 23:56:35
enginn tilgangur að hella olíu í cylinderana, þetta er tvígengis, reykir eins og mofo segir hann þannig að mitt gisk er að það er nóg af olíu í cylendrunum eins og stendur, 1-2 dropar í viðbót breyta engu..
Title: Artic Cat Wildcat 1989
Post by: edsel on November 06, 2007, 00:24:39
Quote from: "Halldór H 935"
þarf ekki bara að snúa úr honum skítinn :D

hvernig er það gert? :oops:
Title: Artic Cat Wildcat 1989
Post by: snipalip on November 06, 2007, 00:59:04
bara keyra hann alveg í syngjandi botni eins og þú getur í sotla stund og ætti hann þá að vera byrjaður að hita sig ef ekki bara hreinsa líka.
Title: Artic Cat Wildcat 1989
Post by: edsel on November 06, 2007, 11:32:44
prófa það, næst þegar snjórinn kemur, takk fyrir góð svör :wink:
Title: Artic Cat Wildcat 1989
Post by: Kristófer#99 on November 06, 2007, 15:25:08
Quote from: "Halldór H 935"
þarf ekki bara að snúa úr honum skítinn :D
nákvælega þetta er líka orðirð Helvíti gamalt
Title: Artic Cat Wildcat 1989
Post by: edsel on November 06, 2007, 15:53:35
hann virkar samt ágætlega, gaman þegar maður nær honum upp í einhvern hraða 8)
Title: Artic Cat Wildcat 1989
Post by: JHR on November 06, 2007, 22:55:56
ég átti svona sleða og vá hvað ég sé eftir honum. hann lét svona þetta var eitthvað í blöndungnum píla eða eitthvað. þetta er allavega í sambandi við súrefnisblönduna. hann varð hundleiðinlegur í mikilli hæð en mjög fínn í þéttbýli :lol:
Title: Artic Cat Wildcat 1989
Post by: edsel on November 06, 2007, 23:24:35
mér finnst hann ganga líka svoldið hratt í hægagangi eða í kringum 3000 snúninga
Title: Artic Cat Wildcat 1989
Post by: Dart 68 on November 08, 2007, 13:53:44
Quote from: "JHR"
hann varð hundleiðinlegur í mikilli hæð en mjög fínn í þéttbýli :lol:


Það er nú bara stillingaratriði, hækkar/lækkar prjónana í bullunum eftir þörfum, miðað við hæð og hitastig  :wink:

Hægagangurinn er líka stillingaratriði. Skrúfa á blöndungunum -ísípísí-
Title: Artic Cat Wildcat 1989
Post by: edsel on November 08, 2007, 14:39:06
prófa að stilla hann, takk fyrir