Kvartmílan => Alls konar röfl => Topic started by: R 69 on October 23, 2007, 23:13:53

Title: Geðveik talva !
Post by: R 69 on October 23, 2007, 23:13:53
http://www.69.is/openlink.php?id=88365
Title: Geðveik talva !
Post by: Belair on October 23, 2007, 23:18:20
(http://quick-game.com/images/2007/10/19/104150.jpg)

eina takk fyrir
Title: Geðveik talva !
Post by: Gilson on October 23, 2007, 23:29:52
fkn nice  :shock:  :D
Title: tölva
Post by: TONI on October 24, 2007, 00:23:12
Er þetta selt svona eða er þetta bara eitt eintak?
Title: Geðveik talva !
Post by: Kimii on October 24, 2007, 17:23:17
Quote
Geðveik talva !


Maður seigir tÖlva með Ö-i

íslensku kennsla í boði Kimi :D
Title: Geðveik talva !
Post by: R 69 on October 24, 2007, 22:26:18
Kimi, orðið TALVA er upprunið úr orðinu valva og er þessvegna skrifað með
A en ekki Ö.
Ég veit fátt um stafsetningu en veit þó þetta.

Íslenskukennsla í boði Helga  8)
Title: Geðveik talva !
Post by: Belair on October 24, 2007, 22:27:17
:smt043
Title: Geðveik talva !
Post by: Lindemann on October 24, 2007, 23:05:20
Ég var ekki alveg að kaupa þetta með orðið TALVA.....svo ég leitaði í orðabók.
Ekki gat ég fundið orðið TALVA í minni orðabók, en tölvan var hinsvegar á sínum stað á bls 1076......................


Íslenskukennsla í boði Máls og menningar  :roll:
Title: Geðveik talva !
Post by: Valli Djöfull on October 24, 2007, 23:41:31
það er klárlega ekki til neitt sem heitir talva  :lol:

http://www.visindavefur.hi.is/svar.asp?id=1013

Quote
Spurning
Er jafnrétt að nota orðið tölva og talva?

Svar
Þegar búa þurfti til íslenskt orð yfir enska heitið 'computer' varð orðið tölva fyrir valinu. Í desember árið 1964 eignaðist Háskóli Íslands fyrstu tölvu sína, IBM 1620. Orð þótti vanta yfir gripinn og er Sigurði Nordal prófessor eignað orðið tölva sem hann setti fram 1965. Áður höfðu menn notast eitthvað við orðið rafeindareiknir. Tölva er myndað eftir orðum eins og slöngva og völva. Rétt mynd er því tölva sem beygist svona:

       et.   ft.
    nf.   tölva   tölvur
    þf.   tölvu   tölvur
    þgf.   tölvu   tölvum
    ef.   tölvu   tölva

Benda má á greinina „Um orðið tölva“ eftir Baldur Jónsson í Sagnaþingi helguðu Jónasi Kristjánssyni. I: 33-44. Reykjavík 1994.

Í þessu svari felst að íslenska nýyrðið er tölva en ekki "talva".


En þessi tölva er samt flott þó hún heiti ekki "talva"  :wink: