Kvartmílan => Keppnishald / Úrslit og Reglur => Topic started by: Heddportun on October 21, 2007, 02:18:03

Title: Tillögur að Breytingum á GT flokk
Post by: Heddportun on October 21, 2007, 02:18:03
Tillaga frá Ara Gíslasyni

Grænt fer inn  -  Rautt fer út

GT flokkur

Flokkslýsing:

GT eða Gran Turismo, er flokkur fólksbíla sem smíðaðir eru eftir 1980. Með 4, 5, 6, 8, 10 og 12 strokka með einum aflauka eða án, með drif á einum ás eða öllum fjórum hjólum. Einnig fyrir bíla með Wankel vél. Allir bílar verða að vera á númerum, löglegir til götuaksturs með rétta skoðun. Undantekningar á þessu má lesa í reglum hér að neðan. Ræst skal á jöfnu með "full tree"Merking:GT/númer.

Vél:
Aðeins má nota vélar sem voru í boði í því boddíi sem nota á. (T.d. má aðeins nota vélar úr 4 gen Camaro í 4 gen Camaro)
Verður að vera samskonar blokk og kom í bílnum upprunaleg frá verksmiðju.  Setja má forþjöppur á vélar sem ekki voru með forþjöppu original.

Blokk:
Aðeins má nota blokk sem voru í boði í því boddíi sem nota á. (T.d. má aðeins nota blokk úr 4 gen Camaro í 4 gen Camaro)

Sveifarás:
Frjálst val er á sveifarásum. Auka má slaglengd sveifaráss á vélum með engan aflauka.
Aðeins upprunalegir eða eins og upprunalegir sveifarásar leyfðir. Þó er leyfilegt að nota hvaða efni í sveifarás sem er.
Ekki má auka slaglengd sveifaráss. Aðeins slitrennsla á sveifarás leyfð.

Hedd:
Frjálst val er á heddum. Öll vinnsla á heddum er leyfð, svo framarlega að hún breyti ekki útliti þeirra.
Frjálst val er á ventlum, ventlagormum, rockerörmum osf…..
Leyfilegt er að stækka og vinna ventla að vild.

Ventlalok:
Allar gerðir og tegundir ventlaloka leyfðar.

Kambás:
Frjálst val er á kambásum.

Undirlyftur:
Frjálst val.

Tímagír:
Frjáls val á tímagírum, beltum, reimum, keðjum, osf…..

Stimpilstangir:
Frjálst val er á stimpilstöngum.

Stimplar:
Frjálst val er á stimplum.

Stimpilhringir:
Allar gerðir og tegundir stimpilhringja leyfðar.

Olíudæla:
Nota má olíudælu sem dælir auknu magni og/eða þrýsting.
"Dry sump" olíudælur eru bannaðar nema að viðkomandi bíll hafi verið fáanlegur með slíkri dælu frá verksmiðju.

Olíukerfi:
"Dry sump" olíukerfi bönnuð nema að viðkomandi bíll hafi verið fáanlegur með því frá verksmiðju.
Að öðru leiti er frjálst að nota hvaða olíu kerfi sem er frá hvaða framleiðanda sem er.
Einnig má vinna og slípa olíugöng í blokkum, heddum, osf…. Til að fá sem besta endingu vélar.

Tölvur:
Breytingar, endurforritun og ísetning á tölvukubbum er leyfð. Eftirmarkaðs tölvukubbar og/eða örflögur leyfðar. Eftirmarkaðsinnspýtingartölvur leyfðar.

Trissur.
Skipta má um driftrissur sem drífa: vatnsdælu, rafal, vökvastýri, osf…. Og setja niðurgíraðar trissur í þeirra stað.

ELDSNEYTISKERFI

Soggrein:
Frjáls val er á soggrein, þó verður hún að komast undir vélarhlíf.

Innspýtingar/Blöndungar:
Breyta má vél með blöndungi yfir í innspýtingu og öfugt.
Eftirmarkaðs innspýtingar leyfðar.
Breyta má innspýtingum eins og hver vill: það er spíssum, rúmtaki, inntaki, osf….

Bensínleiðslur:
Allar tegundir og sverleikar af viðurkenndum bensínleiðslum eru leyfðar.

Bensínsýur:
Allar gerðir og tegundir af viðurkenndum bensínsýum leyfðar.

Bensíntankur:
Bensíntankur verður að vera original eða eins og original. Ef ekki er upprunalegur tankur notaður verður sá sem notaður er að líta eins út, taka sama magn og vera í sömu festingum og sá upprunalegi. Bensínleiðslur verða að vera teknar út úr tankinum á upprunalegum stað. "sump" er bannað.
Bensínsellur leyfðar en ekkert heimasmíðað

Lofthreinsari:
Lofthreinsari er aukahlutur og ráða keppendur hvort hann er notaður eða ekki.

Forþjöppur:
Frjálst val.

Millikælir:
Millikælir er aukahlutur og er því hverjum semer frjálst að nota hann eða ekki.
Þá má einnig setja millikæla í vélar sem ekki voru original með þeim búnaði.

Eldsneyti:
Aðeins það bensín leyft sem fæst á bensínstöðvum og er afgreitt af dælu.
Eingöngu má nota bensín sem eldsneyti.
Bensínbætiefni bönnuð.

KVEIKIKERFI

Kveikja:
Allar tegundir kveikikerfa eru leyfðar.

Háspennukefli:
Allar tegundir háspennukefla leyfðar.

Kertaþræðir:
Allar tegundir kertaþráða leyfðar.

Kerti:
Allar tegundir kerta leyfðar.

ÚTBLÁSTURSKERFI

Pústflækjur:
Pústflækjur leyfðar, þó má ekki klippa úr yfirbyggingu til að koma þeim fyrir.

Púströr:
Púströr skulu ná útfyrir yfirbyggingu bílsPúströr skal ná útundan farþegarýmis. Annars er sverleiki og lögun frjáls.
Pústkerfi skal þó smíðað þannig að það sé hægt að fara með það beint úr keppni á viðurkennda skoðunarstöð og það fái fulla skoðun.

Hljóðkútar:
Hljóðkútar verða að vera til staðar og skoðun verður að fást á þá hjá viðurkenndri skoðunarstöð.
Frjálst val

GÍRKASSI:

Sjálfskipting:
Frjáls val er á gírkassa/sjálfskiftingu.

Skiptir:
Nota má hvaða skipti sem er sem á við viðkomadi gírkassa/sjáfskiptingu.
Kúpling/

Converter:
Nota má hvaða kúplingu/converter sem er.

DRIFRÁS:

Hásing&Drif:
Frjáls val er á hásingum og drifum.
Læsingar í drif eru leyfðar.
Rafsoðin drif bönnuð, spólulæsingar bannaðar.
Drifskaft:
Æskilegt er að baula sé utan um drifskaft á bílun neð afturdrif.

BÚKKAR & FJÖÐRUN

Fjöðrun:
Fjöðrum og fjaðrarkerfi má ekki breyta frá original í neinum bíl.
Fjöðrunakerfi verður að vera eins og hver tegund og gerð kom með frá verksmiðju.
Þetta á við bæði um fram og afturfjöðrun.
Staðsetning fjöðrunarkerfis og festinga verður að vera sú sama og var frá verksmiðju á hverri tegund og gerðStaðsetning festinga og festingum má breyta.Breyta má stífleika fjaðra, gorma vindustanga osf….
Ekki má nota einblöðung sem afturfjöðrun.
Breyta má yfir í Coilover fjöðrunn

Demparar:
Frjálst val er á dempurum:

Búkkar:
Allir venjulegir spyrnubúkkar leyfðir.
Bannað er að nota annað en original "four link" eða "ladder link".Festingum má breyta og staðsetnigu þeirra.
Ekki má klippa úr yfirbyggingu til að koma búkkum fyrir.

YFIRBYGGING

Yfirbygging:
Yfirbygging verður að vera eins og original hvað efni, stærð og útlit varðar. Plastboddy Bönnuð
Setja má þó á vængi og vindskeiðar sem seldar og smíðaðar eru fyrir viðkomandi bíl.
Einnig er leyfilegt að setja aukaopnun (cowl induction) á vélarhlíf ef hún er hulin og máluð í sama lit og bíllinn, "cowl induction" má þó aldrei vera hærra en 4" (10,16cm). Vélarhlíf má vera úr öðru efni en yfirbygging ökutækis.

Innrétting:
Allir bílar verða að vera með upprunalegri innréttingu  þ.m.t. teppi stóla klæðning osf…
Skipta má út framstólum fyrir keppnistóla sem verða að vera í upprunalegri staðsetningu.
Aftursæti má fjarlægja til að koma fyrir veltiboga, en ganga verður snyrtilega frá því gati sem myndast milli ökumannsrýmis og farangursrýmis.

DEKK & FELGUR

Felgur:
Allar gerðir af felgum leyfðar, mega þó ekki vera minni en 13" nema að bíllinn hafi komið original á þeim frá verksmiðju. Felgur mega ekki ná út fyrir yfirbyggingu bíls.

Dekk:
Allar tegundir dekkja leyfðar fyrir bíla með afturdrif þar á meðal slikkar sem mega þó ekki fara upp fyrir 28" á hæð og 9" á breidd. 30" á hæð og 13" munsturbreydd og verð að vera D.O.T. merktir Bílar með drifi að framan mega ekki nota slikka nema þá sem sérstaklega eru gerðir fyrir framdrifs bíla. Bílar með drifi á öllum hjólum mega eingöngu nota radial dekk, en er þó leyft að nota radial götuslikka.  Dekk mega aldrei standa út fyrir yfirbyggingu bíls.

ÖKUMAÐUR

Ökumaður:
Ökumaður skal sitja í ökumannssæti sem er í sömu staðsetningu og orginal, og vera með löglegan og staðlaðan hjálm á höfði. Tregbrennandi keppnisgalli æskilegur.

Hjálpartæki:
Öll hjápartæki til að aðstoða ökumann við brautarræsingu eru bönnuð.

Öryggisbelti:
Allir bílar verða að vera útbúnir með amk. Þriggja punkta beltum.
Allir bílar sem fara niður fyrir 11,99sek verða að vera með 5. Punkta keppnisbelti.
Title: Tillögur að Breytingum á GT flokk
Post by: Racer on October 21, 2007, 02:35:59
Quote
Sveifarás:
Frjálst val er á sveifarásum. Auka má slaglengd sveifaráss á vélum með engan aflauka.
Aðeins upprunalegir eða eins og upprunalegir sveifarásar leyfðir. Þó er leyfilegt að nota hvaða efni í sveifarás sem er.
Ekki má auka slaglengd sveifaráss. Aðeins slitrennsla á sveifarás leyfð.

er þetta eitthvað að virka? má ekki auka slaglengd á aflgjafa en samt má ekki auka slaglengd af Na vél
Title: Tillögur að Breytingum á GT flokk
Post by: Heddportun on October 21, 2007, 03:12:35
Quote from: "Racer"
Quote
Sveifarás:
Frjálst val er á sveifarásum. Auka má slaglengd sveifaráss á vélum með engan aflauka.
Aðeins upprunalegir eða eins og upprunalegir sveifarásar leyfðir. Þó er leyfilegt að nota hvaða efni í sveifarás sem er.
Ekki má auka slaglengd sveifaráss. Aðeins slitrennsla á sveifarás leyfð.

er þetta eitthvað að virka? má ekki auka slaglengd á aflgjafa en samt má ekki auka slaglengd af Na vél

Þú mátt bora og vera með FI en ekki stróka og verð með FI

En þetta gleymdist,ég laga þetta
Title: Tillögur að Breytingum á GT flokk
Post by: baldur on October 21, 2007, 11:16:31
Á að fara að többa? 8)
Title: Tillögur að Breytingum á GT flokk
Post by: Heddportun on October 21, 2007, 12:39:59
Quote from: "baldur"
Á að fara að többa? 8)

Nei þarf þess ekki  8)
Title: Tillögur að Breytingum á GT flokk
Post by: baldur on October 21, 2007, 14:28:21
kemurðu 13" breiðum 30" háum dekkjum undir Camaro án þess að többa eða setja brettakanta?
Title: Tillögur að Breytingum á GT flokk
Post by: Gunni gírlausi on October 21, 2007, 16:35:41
Það er til svona flokkur, hann heitir SE
Title: Tillögur að Breytingum á GT flokk
Post by: Heddportun on October 21, 2007, 17:30:01
Quote from: "baldur"
kemurðu 13" breiðum 30" háum dekkjum undir Camaro án þess að többa eða setja brettakanta?

Já þau komast undir en þarf að taka samsláttarpúða af og skera horn af brettum
Title: Tillögur að Breytingum á GT flokk
Post by: Heddportun on October 21, 2007, 17:37:15
Quote from: "Gunni gírlausi"
Það er til svona flokkur, hann heitir SE

Mér fynnst hann ekkert líkur
Title: Tillögur að Breytingum á GT flokk
Post by: Kiddi on October 21, 2007, 18:40:37
Á að banna allar Corvettur?? ...
Title: Tillögur að Breytingum á GT flokk
Post by: Heddportun on October 21, 2007, 19:38:27
Quote from: "Kiddi"
Á að banna allar Corvettur?? ...

Nkl og þær sem og aðrir bílar í dag koma með breiðari en 9" dekk
Title: Tillögur að Breytingum á GT flokk
Post by: SupraTT on November 09, 2007, 21:18:26
en eg er aðeins að spa með þessa reglu

Quote
Eldsneyti:
Aðeins það bensín leyft sem fæst á bensínstöðvum og er afgreitt af dælu.
Eingöngu má nota bensín sem eldsneyti.
Bensínbætiefni bönnuð.

Mætti ekki breyta þessu og leyfa allar gerðir af bensini.  Semsagt Race bensin.   Margir sem eru að spa i að keppa a næsta ari eru með frekar litlar velar og þurfa einfaldlega betra bensin til að na að nyta setupið eitthvað.  

Leiðinlegt að t.d eg þarf að lækka boostið niður fyrir 19 psi ef eg ætla að vera a 98 okt /  V-power og þar af leiðandi ekki nærri þvi að nyta allt aflið sem billin a inni,   en með race bensini ætti eg alveg að geta verið að blasa 30+ psi.   Það er frekar mikill hestafla munur þarna a milli , munar um 200 hestöflum ut i hjol

og er þa  meth/water Injection  lika bannað ?

Svo seinasta spurningin ef það verður farið að selja E85 , væri þa i lagi að nota það a brautinni ?
Title: Tillögur að Breytingum á GT flokk
Post by: Valli Djöfull on November 09, 2007, 22:47:03
Samkvæmt núverandi reglum mætti nota e85 ef það fer í sölu já..  En Reglunefndin góða þarf að taka sæmilega til í reglunum í vetur..  Einfalda þær..  Í mörgum þeirra er talið upp það sem ekki má og talið það sem má..   En svo eru hlutir sem eru ekki taldir upp..  Má nota þá eða ekki o.s.frv..:)  Það þarf bara að einfalda þær helling..  Taka út óþarfa klausur og laga þær til.  Það var meðal annars tilgangur reglunefndar..  Er það ekki?  Þurrka út gráu svæðin?
Title: Tillögur að Breytingum á GT flokk
Post by: Heddportun on November 09, 2007, 23:14:05
Quote from: "SupraTT"
en eg er aðeins að spa með þessa reglu

Quote
Eldsneyti:
Aðeins það bensín leyft sem fæst á bensínstöðvum og er afgreitt af dælu.
Eingöngu má nota bensín sem eldsneyti.
Bensínbætiefni bönnuð.

Mætti ekki breyta þessu og leyfa allar gerðir af bensini.  Semsagt Race bensin.   Margir sem eru að spa i að keppa a næsta ari eru með frekar litlar velar og þurfa einfaldlega betra bensin til að na að nyta setupið eitthvað.  

Leiðinlegt að t.d eg þarf að lækka boostið niður fyrir 19 psi ef eg ætla að vera a 98 okt /  V-power og þar af leiðandi ekki nærri þvi að nyta allt aflið sem billin a inni,   en með race bensini ætti eg alveg að geta verið að blasa 30+ psi.   Það er frekar mikill hestafla munur þarna a milli , munar um 200 hestöflum ut i hjol

og er þa  meth/water Injection  lika bannað ?

Svo seinasta spurningin ef það verður farið að selja E85 , væri þa i lagi að nota það a brautinni ?

Allavega mín skoðun er að Þessi flokkur eigi að vera götuflokkur fyrir bíla frá 80 og uppúr þ.e. allt sem er leyfilegt á götunni sé leyfilegt í honum nema að í honum sé sama vél og kom upprunalega
 
þ.e. Ef bílinn fær skoðunn þá sé hann löglegur í flokknum á DOT merktum dekkjum

Varðandi bensín þá keyriru ekki á race fuel á götunni,í þínu tilfelli sé ég ekki tilganginn í að keyra á svoleiðis bensíni því bílinn trackar ekki á 98 eða því sem þú notaðir í sumar :wink:

Ég var allavega að reyna að fjarlægja óþarfa rugl reglur og annað þvíumlíkt

Annað sem ég vildi sjá er að reglurnar sem kosnar eru núna séu óbreytanlegar 3-5ár því það er ekkert gaman að smíða bíl í flokk sem síðan þarf að breyta á hverju ári útaf e-h tilgangslausum breytingum
Title: Tillögur að Breytingum á GT flokk
Post by: Valli Djöfull on November 09, 2007, 23:17:48
Sammála, það þarf að stoppa breytingarnar..   Ekki breyta á hverju ári.   Og einnig er ég sammála með GT, það er götubílaflokkur, ef menn ætla í race bensín verða menn bara að velja sér flokk sem það má nota race bensín í  8)
Title: Tillögur að Breytingum á GT flokk
Post by: 3000gtvr4 on November 10, 2007, 14:43:42
Ég held bara að fólk ætti nú að byrja á því að koma og keppa ekki alltaf væla og væla yfir þessum reglum

Og bara smíða sinn bíl eftir flokk ekki flokk eftir sínum bíl :lol:
Title: Tillögur að Breytingum á GT flokk
Post by: Jón Þór Bjarnason on November 10, 2007, 16:18:56
Quote from: "3000gtvr4"
Ég held bara að fólk ætti nú að byrja á því að koma og keppa ekki alltaf væla og væla yfir þessum reglum

Og bara smíða sinn bíl eftir flokk ekki flokk eftir sínum bíl :lol:

Þetta er akkurat sem er talað um á hverju ári. Réttast væri að það sé bara hægt að breyta flokki á 3-5 ára fresti.
Title: Tillögur að Breytingum á GT flokk
Post by: SupraTT on November 10, 2007, 16:21:24
Quote from: "BadBoy Racing"

Allavega mín skoðun er að Þessi flokkur eigi að vera götuflokkur fyrir bíla frá 80 og uppúr þ.e. allt sem er leyfilegt á götunni sé leyfilegt í honum nema að í honum sé sama vél og kom upprunalega
 
þ.e. Ef bílinn fær skoðunn þá sé hann löglegur í flokknum á DOT merktum dekkjum

Varðandi bensín þá keyriru ekki á race fuel á götunni,í þínu tilfelli sé ég ekki tilganginn í að keyra á svoleiðis bensíni því bílinn trackar ekki á 98 eða því sem þú notaðir í sumar :wink:

Ég var allavega að reyna að fjarlægja óþarfa rugl reglur og annað þvíumlíkt

Annað sem ég vildi sjá er að reglurnar sem kosnar eru núna séu óbreytanlegar 3-5ár því það er ekkert gaman að smíða bíl í flokk sem síðan þarf að breyta á hverju ári útaf e-h tilgangslausum breytingum

Eg var nu að meina a næsta ari þegar maður mætir a alvöru dekkjum.  

Herna sest nu hvað beinskipt Supra getur gripið vel a goðum dekkjum og almennilegri Prepped braut.  Eg t.d greip mun meira a nyju malbiki a götunni heldur en uppa braut a M/T ET Street Radial

http://www.youtube.com/watch?v=j2gtvAw9q7Y

Hvaða flokk þarf eg að fara i til að nota bilinn minn a fullu boosti / race bensini ?    Er það SE Flokkur ?

Quote from: "3000gtvr4"
Ég held bara að fólk ætti nú að byrja á því að koma og keppa ekki alltaf væla og væla yfir þessum reglum

Og bara smíða sinn bíl eftir flokk ekki flokk eftir sínum bíl :lol:

Ef þetta er eitthvað ætlað mer.   Eg reyndi að mæta,  mætti a æfingu og kuplingin for.   Mætti siðan a 1 keppni lika en var hvortsemer að fara of hratt meirisegja a low boostinu.  Þarf að redda roll cage og 5 punkta belti fyrir næsta ar

Svo er nu aðeins dyrara fyrir mann að reyna mæta oft þegar maður a heima svona langt i burtu.  Ekkert serstaklega odyrt að keyra 500 km til að keppa og svo ef eitthvað bilar þa er maður fastur  i rvk með bilaðann bil
Title: Tillögur að Breytingum á GT flokk
Post by: 1965 Chevy II on November 10, 2007, 17:34:38
Quote from: "SupraTT"

Hvaða flokk þarf eg að fara i til að nota bilinn minn a fullu boosti / race bensini ?    Er það SE Flokkur ?

[

GF
Title: Tillögur að Breytingum á GT flokk
Post by: 3000gtvr4 on November 10, 2007, 20:23:33
Þetta er bara á við alla þá sem eru alltaf að væla yfir þessum reglum og keppa aldrei

Er ekki bara málið að leyfa þessum reglum að standa allvega í 2 til 3 ár svo endurskoða þær????

Mér finnst til dæmis ekki gott ef það á að leyfa racebensín í bæði RS og GT flokk þá eru þetta varla götubílaflokkar
Title: Tillögur að Breytingum á GT flokk
Post by: SupraTT on November 10, 2007, 21:34:23
Quote from: "3000gtvr4"
Þetta er bara á við alla þá sem eru alltaf að væla yfir þessum reglum og keppa aldrei

Er ekki bara málið að leyfa þessum reglum að standa allvega í 2 til 3 ár svo endurskoða þær????

Mér finnst til dæmis ekki gott ef það á að leyfa racebensín í bæði RS og GT flokk þá eru þetta varla götubílaflokkar

juju meiga alveg vera svona afram

Eg var bara að  meina Race bensinið bætir ekki beint hestöflin eitt og ser.  Bara Auka öryggi og  Leyfir manni að hækka boostið og aggressive-ari ign timing.  Maður nær einflaldlega ekki að nyta setupið sitt þegar maður er limited af 98 okt / v-power  þegar maður er með frekar litla vel

Tokum t.d sem dæmi ef að það yrði fluttur inn TT Viper og hann yrði i GT flokk ,  1000+rwhp a 98 okt bensini,   Mjög gaman að reyna halda i við svoleiðis bil þegar maður er limitaður við  500-600 hp eða bara Corvette , Mustang eða eitthver þannig með Supercharger og kannski 700+ hestöfl a 98 okt

Finnst þessi regla bara gefa bilum með stærri velar svolitið forskot
Title: Tillögur að Breytingum á GT flokk
Post by: Gunni gírlausi on November 10, 2007, 22:45:58

Væri auðveldara að halda í við þá ef þú og þeir væru á "race bensíni"?

Mér sýnist að þú sért bara á of öflugum bíl fyrir GT. Þú verður annaðhvort að lækkar þjöppu eða lækkar búst eða stilla fyrir E-85 ef það kemur nokkurntíman í almenna sölu, eða rúlla bara upp GF í staðin.

Gunni
Title: Tillögur að Breytingum á GT flokk
Post by: SupraTT on November 10, 2007, 22:59:43

Eg var bara að taka sem dæmi ,  atti ekkert bara við mig og ekkert endilega alveg svona öfluga bila.  Bara meina að bilar með stærri velar með svolitið mikið advantage fyrst að maður ma ekki nota betra bensin  

En ja það munar dalitið a low boost 16-18 psi = 500-550 hestöfl og high boost 30+psi = sem ætti að vera hatt i 800 hestöfl ut i hjol
Eg er semsagt að meina með gripi.  A slikkum

GF flokkurinn er nu full öflugur flokkur og frekar mikið breyttir bilar þar.  Vill nu helst halda mig i flokki með Götubilum sem eru notaðir mikið a götunni.  Minn bill var notaður daglega i sumar,  það er að segja þegar hann var i lagi  :wink:  og keyrður að allaleið suður til að keppa og til baka.  Semsagt Daily Driven bill

Ragnar
Title: Tillögur að Breytingum á GT flokk
Post by: Heddportun on November 11, 2007, 03:05:56
MT Drag Radial eru Mjög góð dekk,ekkert að þeim og get lofað þér því að það er búið að gera meira en að setja undir hana Slikka til að hún trakki svona

Það að nýta setupið sitt er að skila því sem vélin býr til í götuna til að koma sé áframm

CID er ekki mælikvaarði á afl,Stórar vélar eru t.d oftast sveltar á loft eða aðeins með 2 ventla per cyllender ect....

700hp bíll sem viktar 1500kg er svipaður og 500hp bíll sem er 1200kg(fattaru) Hp eða Cid er enginn mælikvarði á afl eða kvartmílutíma

Það er t.d ekkert "sanngjarnt" að 4wd,Rwd og Fwd séu í sama flokki

Ef reglurnar verða eins þá eru t.d allir F Body Bílarnir ólöglegir,Vetturnar,Mustangarnir og fleiri,þessi Dekkjastærðar regla er úr sér gengin

t.d Hversu margir í GT voru á 235 dekkjum?Hversu margir á stærri og þessvegna ólöglegir í honum? Sennilega flestir

Afhverju þarf húddið að vera í sama lit og bílinn :WTF:
Fullt af rugli í þessum flokk
Title: Tillögur að Breytingum á GT flokk
Post by: SupraTT on November 11, 2007, 03:37:15

Eg er reyndar ekkert að fatta þig.  

Veit alveg að M/T ET Street radial eru fin dekk

Sagði aldrei að CID væri malikvarði a afl.  Sagði bara að t.d bill með stærri vel og t.d turbo eða blower getur fengið meira afl en litil vel a 98 okt pumpu bensini.   Og sagði að mer fyndist þessi regla i raun hindra þa sem eru með minni velar i að geta nytt aflið sem þeir ættu inni.

Og ja það er ekki buið að gera mikið annað en að henda slikkum undir þessa supru svo hun trakki

Þetta er sama Supran , þegar hun var með Orginal fjöðrun,  Orginal Longblock keyrð 85 þus milur,  PT71-GTS @ 32 psi // All boost run // Orginal Kassi // Orginal Drif // Full weight

1.38 60 , 9.56@144.5mph
http://www.youtube.com/watch?v=Zer1Wcfy6Rw

Og hvaðan kom þetta alltieinu ?  

Title: Kæri Slæmi strákur keppnis...
Post by: Gunni gírlausi on November 11, 2007, 13:19:45
Slæmi strákur!

berðu saman dekkjareglur í RS, GT SE og GF. Þá sérð þú að leyfð stærð  stækkar eftir flokkum.

Það er ekkert vit í því að leyfa stærri dekk í GT en SE.
En atugaðu það að þetta er stærð á slikkum, ekki hámarks stærð á dekkjum.

Og, hvað finst þér ósangjarnt við að framdrifsbílar rúlli upp afturdrifs og fjórhjóladrifsbílum?

Raggi, þú að keppa í GT með racegas væri eins og Ben Jonson að keppa á Special olympics. þú ert með GF markmið og GF bíl  :D

Gunni
Title: Tillögur að Breytingum á GT flokk
Post by: 3000gtvr4 on November 11, 2007, 13:38:16
Quote from: "SupraTT"
Quote from: "3000gtvr4"
Þetta er bara á við alla þá sem eru alltaf að væla yfir þessum reglum og keppa aldrei

Er ekki bara málið að leyfa þessum reglum að standa allvega í 2 til 3 ár svo endurskoða þær????

Mér finnst til dæmis ekki gott ef það á að leyfa racebensín í bæði RS og GT flokk þá eru þetta varla götubílaflokkar

juju meiga alveg vera svona afram

Eg var bara að  meina Race bensinið bætir ekki beint hestöflin eitt og ser.  Bara Auka öryggi og  Leyfir manni að hækka boostið og aggressive-ari ign timing.  Maður nær einflaldlega ekki að nyta setupið sitt þegar maður er limited af 98 okt / v-power  þegar maður er með frekar litla vel

Tokum t.d sem dæmi ef að það yrði fluttur inn TT Viper og hann yrði i GT flokk ,  1000+rwhp a 98 okt bensini,   Mjög gaman að reyna halda i við svoleiðis bil þegar maður er limitaður við  500-600 hp eða bara Corvette , Mustang eða eitthver þannig með Supercharger og kannski 700+ hestöfl a 98 okt
Finnst þessi regla bara gefa bilum með stærri velar svolitið forskot

Skil bara ekki hvernig það getur þá verið betra að vera á racebensíni þegar þessir bílar eru um 1000hp á 98 bensíni þeir hljóta nú að græða líka að nota racebensín líka er það ekki????

Ég held líka að þegar þú ert kominn með um eða yfir 1000hp bíl þá ætti nú að skoða að fara í annan flokk heldur en GT er það ekki
Title: Tillögur að Breytingum á GT flokk
Post by: baldur on November 11, 2007, 14:07:21
punkturinn með þessum bensínreglum er að menn komi ekki með vélar í þessa flokka sem eru með of háa þjöppu til að vera nothæfar í götubíl. Til þess að hægt sé að kalla þetta götubíla þá þurfa þeir nú að vera keyrðir á götunni eitthvað meira en bara á milli bílskúrsins og brautarinnar.
Það er nóg til af bílum úti sem eru að keyra í 10 sek á 98 oktan með 2 lítra vélar og á götudekkjum, ekki "dekkjum sem eru tæknilega lögleg til aksturs á götunni en myndu tætast upp á örfáum kílómetrum".
Það er svo aftur annað mál að það er auðveldara að gera eitthvað á race bensíni og slikkum, en ef menn vilja kalla þannig bíla götubíla þá eru þeir að ljúga að sjálfum sér :wink:
Title: Tillögur að Breytingum á GT flokk
Post by: Ingó on November 11, 2007, 15:03:55
GT flokkurinn er að mörgu leiti ágætur flokkur og sama  má segja um SE og GF en að mínu mati eru þeir ekki í takt við tímann enda voru þeir smíðaðir fyrir al mörgum árum.
Það sem vantar fyrir raunverulega götubíla þ.a.s. þá bíla sem eru á rúntinum t.d. 2 flokka annan án aukaaflgjafa og hinn með einum aukaaflgjafa og báðir takmarkaðir við fulla skoðun venjulegt bensín og drag radial dekk.

Kv Ingó. :)
Title: Tillögur að Breytingum á GT flokk
Post by: Heddportun on November 11, 2007, 15:06:47
Quote from: "SupraTT"

Eg er reyndar ekkert að fatta þig.  

Veit alveg að M/T ET Street radial eru fin dekk

Sagði aldrei að CID væri malikvarði a afl.  Sagði bara að t.d bill með stærri vel og t.d turbo eða blower getur fengið meira afl en litil vel a 98 okt pumpu bensini.   Og sagði að mer fyndist þessi regla i raun hindra þa sem eru með minni velar i að geta nytt aflið sem þeir ættu inni.

Og ja það er ekki buið að gera mikið annað en að henda slikkum undir þessa supru svo hun trakki

Þetta er sama Supran , þegar hun var með Orginal fjöðrun,  Orginal Longblock keyrð 85 þus milur,  PT71-GTS @ 32 psi // All boost run // Orginal Kassi // Orginal Drif // Full weight

1.38 60 , 9.56@144.5mph
http://www.youtube.com/watch?v=Zer1Wcfy6Rw

Og hvaðan kom þetta alltieinu ?  

Quote
700hp bíll sem viktar 1500kg er svipaður og 500hp bíll sem er 1200kg(fattaru) Hp eða Cid er enginn mælikvarði á afl eða kvartmílutíma

Nei ekkert endilega því vélar með litla borvídd geta frekar keyrt á lægri þjöppu en stórar,sérstaklega fjölventlavélar

Þetta með 700 og 500hp átti að sína þér að hp er ekki allt,Bílar með stórar vélar t.d Fbody eru oftast þungir ect..
Title: Re: Kæri Slæmi strákur keppnis...
Post by: Heddportun on November 11, 2007, 15:26:52
Quote from: "Gunni gírlausi"
Slæmi strákur!

berðu saman dekkjareglur í RS, GT SE og GF. Þá sérð þú að leyfð stærð  stækkar eftir flokkum.

Það er ekkert vit í því að leyfa stærri dekk í GT en SE.
En atugaðu það að þetta er stærð á slikkum, ekki hámarks stærð á dekkjum.

Og, hvað finst þér ósangjarnt við að framdrifsbílar rúlli upp afturdrifs og fjórhjóladrifsbílum?

Raggi, þú að keppa í GT með racegas væri eins og Ben Jonson að keppa á Special olympics. þú ert með GF markmið og GF bíl  :D

Gunni

Afhverju þurfa dekkin að stækka eftri flokkum?Ætti það ekki að vera eftir afli/Vélastærð?

Þetta er nkl það sem verið er að tala um,reglurnar eru óljósar og asnalegar
Reglur eiga að vera einfaldar svo það sé hægt að frammfylgjaþeim og enginn vafi sé á þeim

Hver er skilgreiningin á muninum á slikkum og götudekkjum?
t.d í Götuspynuni á AK er allt sem er merkt DRAG þó DOT merkt sé talið slikkar

Það að takmarka dekkja stærð/breydd er bara til að gera vesen.Bíll sem er aflmikill getur ekki nýtt aflið á skurðarskífu reglunum í GT

Hafa einfalda reglu eins og allt sem passar undir án þess að Tubba og fer í gegnum skoðunn

Þetta FWD,4WD,RWD,þetta var fyrir Ragga  um hvað sé "sanngjarnt",gæti ekki meira sama um það :lol: