Kvartmílan => Leit að bílum og eigendum þeirra. => Topic started by: dilbert on September 10, 2007, 15:17:34

Title: Camaro
Post by: dilbert on September 10, 2007, 15:17:34
hvar er þessi camaro??

http://www.bilavefur.net/album/displayimage.php?album=111&pos=49
http://www.bilavefur.net/album/displayimage.php?album=111&pos=48
http://www.bilavefur.net/album/displayimage.php?album=111&pos=47
Title: Camaro
Post by: Moli on September 10, 2007, 15:22:25
Síðast þegar ég vissi var hann á sama stað og myndin er tekin, eða út í Garði.
Title: Camaro
Post by: dilbert on September 10, 2007, 15:35:04
hvar?
Title: Camaro
Post by: Jón Þór Bjarnason on September 10, 2007, 16:12:16
Quote from: "Moli"
Síðast þegar ég vissi var hann á sama stað og myndin er tekin, eða út í Garði.

Hann er á suðurnesjunum nánar tiltekið í Garði.
Title: Camaro
Post by: Ragnar93 on September 10, 2007, 16:30:24
hver á hann í garðinum?
Title: Camaro
Post by: gaulzi on September 10, 2007, 17:23:48
fínasta garðskraut
Title: Camaro
Post by: Zaper on September 10, 2007, 17:46:47
í gömlu minkabúi. sennilega bara eitt þannig í garðinum.
Title: Camaro
Post by: Ragnar93 on September 10, 2007, 18:30:40
ég held að hann heitir hebbi sem á hann og hann er frægur fyrir að safna bílum  :)
Title: Camaro
Post by: GunniCamaro on September 11, 2007, 16:51:37
Það er alltaf að koma upp aftur sömu bílarnir, þessi rauði er sá sem ég var að tala um í þræðinum : Bíll dagsins - Camaro ""toppurinn fór á 67 blæjubílinn sem var eini 1. kynslóðar blæjuCamaroinn hérna (sjá myndir hjá Mola, rykfallinn rauður með hvítar rendur)"" þennan bíl á (síðast þegar ég vissi) Guðmundur Hermannsson úrsmiður.
Þessi bíll var/er? með 427 chevy vél sem Hlöðver nokkur Willyskall átti, einn frægasti bíladellukall landsins en bíllinn stóð í mörg ár úti í Byggðarenda eftir að hann var málaður og síðan var hann í einhver ár upp í Grafarvogi.