Kvartmílan => Almennt Spjall => Topic started by: TONI on August 28, 2007, 23:26:39

Title: Vinna
Post by: TONI on August 28, 2007, 23:26:39
Hvað segja reglurnar hérna á spjallinu, má ég auglýsa eftir manni/konu/strák/stelpu í vinnu hérna á spjallinu og undir hvaða dálk þá ef það er leyfilegt, þori ekki annað en að spyrja til að hafa alla góða.
P.s Þetta er tryggilega bílatengt :D
Title: Vinna
Post by: Jón Þór Bjarnason on August 28, 2007, 23:36:29
ÝMISLEGT TIL SÖLU/ÓSKAST

Án þess að ég hafi hugmynd um það.
Title: vinna
Post by: TONI on August 28, 2007, 23:47:27
En varahlutir óskast :D
Title: Vinna
Post by: Jón Þór Bjarnason on August 28, 2007, 23:51:24
Það stendur þarna

VARAHLUTIR ÓSKAST KEYPTIR :idea:
Title: Vinna
Post by: Valli Djöfull on August 29, 2007, 10:21:16
Ég bjó til þennan "ýmislegt" söludálk því það var verið að troða snjósleðum, hestum og öllum fjandanum í "Bílar til sölu"..  Það má segja ALLT í þennan ýmislegt dálk  :wink:

EN... ATH..  Ég er ekki sáttur við að fyrirtæki séu að dæla inn auglýsingum á spjallið okkar..  Það endar í rugli..  En eitthvað svona saklaust eins og þú ert að spá í t.d. er í góðu..
Title: Vinna
Post by: TONI on August 29, 2007, 22:17:19
Geri eflaust vel við KK meðlimi en gott væri að fá menn með áhuga á bílum í, þetta er sem sagt bónstöð og er stefnan að skella inn auglýsingu hér á spjallinu jú og bjóða upp á eitthvað spennandi fyrir KK
Title: Vinna
Post by: Nóni on August 30, 2007, 19:42:55
Þetta er ekkert mál, ef þú ert með fyrirtæki sem er með fólk í vinnu og þig vantar fólk þá er þér velkomið að auglýsa. Við erum hins vegar líka alveg til í að fá eitthvað fyrir það.  Pantaðu bara auglýsingu á forsíðunni fyrir fyrirtækið þitt og þá erum við sáttir :)


Nóni